Dagblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JÚLt 1981.
Keppt ífjölmörgum
greinum f rigningunni
Þórdis úthlutar krökkum reiðtygjum: Margir voru um að riða Glað!
DB-myndir Sig. Þorri.
Hestamannamót var haldið á Kald-
ármelum helgina 17. og 18. júli sl.
Mótið fór í alla staði mjög vel fram
þrátt fyrir hellirigningu báða dagana.
Nálægt fjögur þúsund manns mættu á
mótið en keppt var i fjölmörgum grein-
um.
Góðhestar A-flokkur, þar var fyrstur
Léttir, 12 vetra. Eigandi hans og knapi
er Guðmundur Teitsson, Stykkishólmi.
Góðhestar B-flokkur, i fyrsta sæti varð
Hrafn 8 vetra. Eigandi Andrés Krist-
jánsson, knapi Guðmundur Bærings-
son, Stykkishólmi.
Þá var keppt í unglingaflokkum,
tölti, 250 metra skeiði, 800 metra
brokki, 250 metra unghrossahlaupi,
350 metra stökki og 800 metra stökki.
- Bæring, Grundarfirði.
Þeir voru hressir karlarnir á hestamannamótinu, enda venjulega Uf og fjör á
slikum mótum. DB-mynd Bæring Cecilsson.
,,Nú er mál til komiðað þú hættir að
vera hrædd við hestinn, á síðasta degi
námskeiðsins. Sjáðu bara hvað hestur-
inn er rólegur!”
Ekki bar á öðru. Freyja gekk að
klárnum og hjálpaði nemanda sínum
að lagfæra reiðtygin. Svo var bara eftir
að drifa sig á bak og ríða.
Við erum stödd í reiðskóla á vegum
Hestamannafélagsins Hrings og æsku-
lýðsráðs Dalvíkur að morgni dags. Í
gerði Hrings ofan við Dalvíkurkaup-
stað er verið að setja hnakk og beizli á
hesta svo krakkar geti riðið út i fylgd
eldri og reyndari hestamanna.
Aðalkennari í reiðskólanum er
Freyja Hilmarsdóttir, þekktur hesta-
maður sem fluttist að sunnan i
Svarfaðardalinn í fyrra. Hún býr góðu
hrossabúi að Syðra-Garðshorni, ásamt
Albert Jónssyni, eiginmanni sínum.
Freyju til aðstoðar við kennsluna er
Þórdís Hjálmarsdóttif frá Dalvík.
Þórdís úthlutaði reiðtygjum og
hestum til krakkanna. Það var erfitt að
samræma óskirnar því flestir vildu ríða
á Glað! En allir gengu þeir út að lok-
um; Krummi, Jarpur, Gáski og Helga-
fells-Jarpur, svo einhverjir séu nefndir.
Síðu-Rauður var þar líka. Hann köll-
uðu krakkarnir Elephant (fíl) upp á
engelsku í tilefni af því að klárinn var
svo feitur og sællegur. Hópurinn, sem
þarna var að leggja upp í reiðtúr á
síðasta degi vikulangs námskeiðs, var
sá fyrsti yfir daginn. Alls voru 4 hópar,
Freyja Hilmarsdóttir stjórnar reiðskólanum og notar reiðtúrana til að temja og
þjálfa.
Viðir Kristjánssoa, 9 ára, með fullt fang
af reiðtygjum og Good-Year húfu. Hann
er sonur Margrétar Ingólfsdóttur, um-
boðsmanns Dagblaðsins á Dalvik, og
Kristjáns Jónssonar (Stjána Jóns).
á fimmta tug krakka, sem stunduðu
námskeiðið á hverjum degi. Að þessum
námskeiðum loknum var ætlunin að
hefja annað strax á eftir. Að sögn
Þórdísar voru yfir 30 krakkar búnir að
skrá sig til þátttöku. Áhuginn er því
sýnilega mikill. Áður hafði Freyja verið
með námskeið fyrir yfir 20 krakka í
Svarfaðardal.
„Við kennum helztu þættina í um-
gengni við hestana, að beizla og leggja
á, ásetu og taumhald. Á kvöldin eru
eldri krakkar, á aldrinum 13—15 ára.
Með þá er hægt að fara í gang
hestsins,” sagði Freyja. Hún sagði að í
dalnum og á Dalvík væri „hár standard
á hestamennskunni og margir góðir
hestamenn finnanlegir.”
- ARH
Verðandi knapar komnir i skipulagða röð, vígalegir með hjálma á höfðum. Svo var lagt af stað með Þórdisi i broddi fylkingar. Freyja rak lestina.
Margir voru um
að ríða á Glað
—í reiðskóla Hestamannaf élagsins Hrings og æskulýðsráðs Dalvíkur