Dagblaðið - 05.08.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
3
Raddir
lesenda
Hver einstakl-
ingur er
„óendanlega
dýrmætur
þáttur
tilverunnar”
— undrast
lögmál lífsins
Halldór Vlgfússon skrifar:
Undravert er þetta lögmál, ham-
skiptin og flutningurinn frá einni
jörð til annarrar sem stendur djúpt i
tilverunni svo ekkert lögmál stendur
raunverulega dýpra.
Hver einstaklingur er gæddur
ódauðlegri sál. Þannig er ekki hægt
að útrýma honum hvernig sem reynt
væri til þess. Kraftur hvers eins er
ævarandi og hæfileikinn til endur-
líkömunar er lögmálsbundinn svo
hver einn hlýtur að endurlíkamnast á
einhverjum öðrum hnetti.
Þannig er hver einn einstaklingur
óendanlega dýrmætur þáttur tilver-
unnar. Því betur sem ég hugsa þetta
og skil þetta því meir undrast ég lög-
mál lifsins.
Þegar að því er gætt að hver ein-
staklingur virðist vansæll og litils-
virði i fyrstu er það vlst að hans biður
i framtiðinni sffellt stærra og stærra,
merkilegra og merkilegra hlutverk
sem þáttur í guðlegri tilveru stjarn-
geimsins.
Elnstaldingurinn „sem þáttur I guð-
legri tllveru stjarngelmsins”.
Hefur vaflzt fyrir mönnum hvernig
beri að ftvarpa forseta íslands, Vig-
disi Finnbogadóttur?
DB-mynd Bj.Bj.
Óhemju baggi er
fyrir prest að greiða
kostnað vegna hús-
næðis eða reksturs
—er það þyngri baggi á prestum en öðrum?
Forviða skrifar:
Ég las viðtal við séra Ólaf Skúlason
í DB þann 8. júlf.Þar segir hann:
„Óhemju baggi er fyrir prest að
greiða kostnað vegna húsnæðis eða
reksturs bils.”
Nú er mér spurn: Af hverju er það
eitthvað þyngri baggi á prestum en
öðrum þegnum þjóðfélagsins? í
framhaldi af því þá stendur ofar i
viðtalinu, einnig haft eftir séra Ólafi:
„Bústaðir prestanna eru víða í hörm-
ungar ásigkomulagi, halda tæplega
vatni og vindi.”
Þeir eru ekki öfundsverðir, sem
þannig ér ástatt fyrir, en það leiðir
hugann að þvi að flestum okkar er
ekki séð fyrir húsnæði sem eðlilegum
fylgifiski embættis, en tekst samt að
skrimta.
Hver eru mánaðarlaun presta yfir-
leitt og hvaða friðindi fylgja embætti
prests?
Sagt hefur verið að nú á tímum
sæki margir ungir menn í þessa stétt
því tiltölulega lftið þurfi fyrir starfmu
að hafa og jafnframt bjóði það upp á
góðar og öruggar tekjur, auk eftir-
launa.
Síðan kannast vafalaust flestir við
orð það er legið hefur á samkeppni
presta um „hverabrauðin” svokðll-
uðu, þ.e.a.s. embætti á svæðum þar
sem jarðhiti er nýttur til upphitunar
húsa. Hvers vegna skyldi þessi
ákveðna stétt virðast veigra sér við
útgjöldum sem allir aðrir sætta sig
við?
Svar:
DB hafði samband við séra Þor-
vald Karl Helgason í Njarðvík því
hann er manna fróðastur um kjara-
mál presta, enda i kjaranefnd fyrir
hönd Prestafélags íslands.
Séra Þorvaldur Karl sagði presta
vera i BHM og samkvæmt nýjustu
tölum, frá 1. júnl í ár, væru 56
prestar í 109. launaflokkl; 37 i 110.; 2
í 111.; 14 prófastar i 112. (prófastar
byrja i 111.); 1 í 113., dómprófastur-
inn í Rvk; biskupsritari væri i 114. en
/—
DB-mynd Sig. Þorri.
meiri úti á landi heldur en sá styrkur
sem prestum er úthlutaður.
Séra Þorvaldur Karl sagði presta
fara fram á að fá greiddan útlagðan
kostnað en ekkert fram yfír það.
Hann sagði jafnframt erfiðleika
presta aukast við það að þeir starfa
sjálfstætt en ekki t.d. i heilsugæzlu-
stöðvum eins og læknar gera. Slikt
sagði hann koma sér illa fyrir presta í
ýmsu, ekki sízt i sambandi við sima-
kostnað, þar eð starfið á sér að svo
miklu leyti stað inni á heimili prests-
ins svo ekki er hægt að vísa til sima á
sérstökum vinnustað. Hann sagðist
til samanburðar hafa frétt að sam-
kvæmt nýgerðum samningum við
lækna i Reykjavik fengju þeir nú bif-
reiðastyrk sem næmi 8.000 km á ári,
en prestar gætu ekki fagnað neinu
sllku.
-FG
Sira Ólafur Skúlason.
biskup I 121. Samtals gerir þetta 112
manns.
Til þess að gera grein fyrir hvað
þetta merkti í tölum sagði séra Þor-
valdur Karl okkur dæmi um prest i
þorpi utan Reykjavfkur. Hann er i
109. launaflokki, efsta þrepi, en þau
eru raunar 5 i hverjum flokki, eins og
flestir vita sennilega.
Mánaðarlaunin eru kr. 8.100,
siðan fær hann kr. 800 i bifreiða-
styrk, 99 kr. i símakostnað og kr. 446
í skrifstofukostnað. Samtals verður
þetta kr. 9.445, en af þessu greiðir
prestur siðan kr. 943 í húsaleigu fyrir
'embættisbústaðinn. Sú leiga fer eftir
brunabótamati hvers embættisbú-
staðar.
f bifreiðastyrk fá prestar að meðal-
tali síðan greitt fyrir 4000—6000 km
á ári en kostnaðurinn við rekstur bif-
reiðar i þágu embættisins er mun
NOTAÐIR
Wa
BÍLAK
Seljum
tr
I
dag
SAÁ B96 77,2ja dyra, brúnn, ekinn 74 þús. km.
SAAB 99 GL W, 4ra dyra, grœnsanseraður, ekinn 24 þús. km.
SAAB 99 GL 79, 4ra dyra, guiur, ekinn 26þús. km.
SAAB 99 GL 78, 2ja dyra, ijósbrúnn, sjátfskiptur, ekinn 53 þús. km.
SAAB 99 Combi 77, 3ja dyra, ijósbrúnn, ekinn 55 þús. km.
SAAB 99 L 74, 2ja dyra, grænn, ekinn 88 þús. km.
SAAB99 74, 2ja dyra, hvítur, ekinn 30 þús. km.
VOL VO244 de luxe 78, Ijósdrappaóur, vökvastýri, ekinn 59 þús. km.
TOGGURHR
SAAB UMBOÐIÐ
BILDSHÖFÐA 16.
SIMI 81530
Spurning
dagsins
Hefurðu farið
ífjallgöngu?
(Spurt í Mývatnsavalt)
Helga Þorsteinsdóttlr, 7 ftra (að verða
8): Já, ég hef komið upp á Hverfjall.
Katrin Ólafsdóttir, 7 ftra: Já, ég hef
farið upp á Hverfjall og eitthvað fleira,
en ég man ekki hvað var.
Hilmar Finnsson, 6 ftra (að verða 7) :
Já, ég fór upp á Belgjarfjall i sumar.
Kristinn Magnús Þorbergsson, 5 ftra:
Já, ég fór upp á Belgjarfjall.
Sverrir Lange, 6 ftra: Já, ég gekk upp á
Hverfjall í fyrra.
'Hllmar Ágústsson, 9 ftra: Já, ég hef
farið upp á Hliðarfjall og Hverfjall og
kannski eitthvað fleira.