Dagblaðið - 05.08.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGUST 1981.
DB á ne ytendamarkaði
Dóra
Stefánsdóttir
Væri ein gulrót I svona poka skemmd hlyti hún aö skemma allar hinar.
Kaupum ekki plast-
pakkað grænmeti
Við sögðum frá nýju íslenzku
grænmeti hér á sfðunni á' laugar-
daginn. Nú höfum við rekið okkur á
það að meðferð á þessari góðu vöru
er ekki sem skyldi í verzlunum. Víða
sést grænmeti sem pakkað er í plast.
Eins og öllum er kunnugt, sem eitt-
hvað vita um grænmeti á annað
borð, er þetta mjög varhugavert.
Raki myndast innan í plastinu og
sezt að grænmetinu sem sfðan
skemmist. Ef einhverju magni er
pakkað saman f plast skemmir lélegt
grænmeti út frá sér. Þetta er hlutur
sem írauninni má ekki koma fyrir.
Ef nauðsynlegt reynist að pakka
grænmeti í verzlunum á frekar að
setja það í papplr en plast. Þá sést
reyndar ekki innihaldið þannig að
bezt er auðvitaö aö neytandinn geti
keypt grænmeti sem vegið er jafn-
óðum og því síðan pakkað í pappír.
Plastpakkaö grænmeti ætti fólk ekki
aðkaupa. -DS
Ef mjólkin stendur f opinni hyrnu f fsskápnum er hún fljót að taka i sig bæði bragð
og sýkla. DB-mynd Sigurður Þorri.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði!
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé mcðaltal heimiliskostnaðar |
fjnlskvldu af sömu stærð og vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda____________________________________________,
;í
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks-----
Kostnaður í júlímánuði 1981
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
m vikuv
Gosbrunnarmeðstyttumogljósum: r
DÆLURNAR NIÐRII
SJÁLFU VATNINU
Gosbrunnar voru til unjræðu hér á
Neytendasíðunni á föstudag. Þá var
sagt frá brunnum frá ísleifi Jónssyni.
Þeir voru þannig gerðir að dælan sem
dældi vatninu upp varð að vera inn-
anhúss. Nú hafði Guðjón Jónsson
samband við okkur og benti okkur á
að hann flytti inn brunna sem væru
þannig gerðir að dælan væri niðri í
vatninu. Guðjón rekur fyrirtækið
Vörðufell en Sölufélag garðyrkju-
manna selur fyrir hann brunnana.
Þar er allt til til þess að koma upp
skemmtilegum gosbrunni.
Fyrst kemur auðvitað sjálf skálin
undir vatnið. Hún er úr fíberglass.
Til eru þrjár stærðir. 2,17 m sinnum
1,52 m á 2664 kr., 2,20 m sinnum
1,60 m á sama verði og 2,31 m
sinnum 2,05 m á 3529 kr. Þessar
skálar eru 45 sentimetra djúpar og
því vel hægt að nota þær sem ker að
sitja í á góðviðrisdögum ef menn vilja
það heldur en gosbrunna.
Næst kemur dælan. Til eru tvær
stæröir, minidæla á 1074 krónur og
önnur stærri á 1882 krónur. Sú minni
er aðeins fyrir litla polla og lyftir
vatninu i um 76 sentimetra hæð i 9
bunum. Vatnið fellur i um 20 senti-
metra fjarlægð frá dælunni. Sú
stærri er fyrir stærri polla. Hún lyftir
vatninu í 1,83 m hæð og það felíur i
1,06 m fjarlægð frá henni.
Sérstök ljós eru til til þess að setja
niður í gosbrunninn til að gera hann
fallegri. Tvö slik i pakka kosta 1079
krónur. Við þau er tengdur sérstakur
11 voltarafgeymir.
Sérstakar styttur i gosbrunninn
setja síðan punktinn yfir i-ið. Þær
eru til úr tveim efnum, gervisteini og
blýi. Steinstytturnar eru. mun ódýr-
ari. Þannig kostar til dæmis haf-
meyja 774 krónur, drengur með
kuðung 851 krónu, drengur með skál
á öxlinni 850 krónur, stúlka með
vatnsker 851 krónu og höfrungur 881
krónu. Undir þetta þarf að setja
undirstöðu úr sama efni og kostar
hún 548 krónur.
Úr gervisteíninum eru einnig til
gömul hjú, sitt á hvorum bekknum, á
742 krónur stykkið. Þau eru ætluð
sem garðskraut en ekki út (gosbrunn.
Til eru tvær gerðir af blýbrunnum,
báðar litlir drengir. Annar stendur á
litlum kletti og gýs vatnið upp úr
honum. Hann kostar 3319 krónur.
Hinn stendur i skel sem vatnið kemur
upp úr. Hann kostar 2726 krónur.
Síðan eru til vatnsstútar sem miðla
vatninu í þá boga sem menn vilja láta
það falla. Einn er til úr málmi á 210
krónur en fimm geröir úr plasti á 174
krónur stýkkið.
Allar tengingar, slöngur, kranar og
slíkt fást siðan. Dælan í brunninum
má ekki vera í gangi nema niðri i
vatninu vegna kælingarinnar. - DS
Mjólkina í loftþétt ílát
Litið geymsluþol mjólkur hefur
mikið verið til umræðu í Dagblaðinu
undanfarið. Vonandi eru bjartari
dagar framundan með betri mjólk.
En fyrir þá sem lítið drekka af mjólk
og vilja gjarnan geta geymt hana
lengur en unnt er nú benti Eiríka
Friðriksdóttir okkur á ráð. Þaö er að
um leið og mjólkurkassi er opnaður
að hella innihaldinu í brúsa eöa ann-
að ílát sem er með loftþéttum tappa.
Mjólkin tekur auöveldlega í sig bæði
bragð og sýkla úr öðrum mat í
isskápnum komist að henni loft. En í
loftþéttu iláti sagðist Eirfka geta
geymt hana svona 5—7 daga við
venjulegar aðstæður. Er það um
helmingi lengri tími en unnt er ef
mjólkin er í opnum kassanum.
Til þess að mjólkin spillist ekki í
llátinu má aldrei nota það undir ann-
að en mjólk og verða menn að þvo
það vel úr sápuvatni milli notkunar.
Við þökkum Eiríku ráðið og
komum því hér með á framfæri.
-DS
Ítalíuferðin fór
með bókhaldið
—envarþessvirði
G.S. skrifar:
Nú get ég ekki sent ykkur sundur-
liðaðan júniseðil þar sem við fórum i
sólarlandaferð og engir búreikningar
voru færðir þar. Eyðslan í júní var
27.742,55 það sem skrifað var, eitt-
hvað hefur sennilega fallið niöur,
áður en farið var, þvf í ýmsu var að
snúast eins og gengur. Einn fjöl-
skyldumeðlimur varð eftir heima og
hélt enga reikninga svo þetta er kann-
ski ekki marktækt en nógu hátt er
það samt. í þessari tölu er gjaldeyrir
og tvær innborganir í ferðina, vextir
af ógreiddum víxlum, sem borgaðir
eru mánaðarlega, ásamt ýmsu öðru.
Viö vorum 3 vikur úti en þegar heim
var komið eftir mánaðamót beið
bunki af skuldareikningum, tvö lán
af bll, sem við vorum nýbúin að
kaupa, viðbótarhækkun af bilatrygg-
ingu, hitaveita, simi og svo dag-
blöðin. Það er eins og aldrei megi slá
slöku við þá fer kerfið úr sambandi.
Og nú er bara að vinna og borga. En
Ítalíuferðin var vel þess virði því hér
fyrir norðan er alltaf rigning og sólin
læturekkisjásig.
Oft erf itt að fá úti-
legumat ísveitinni
K.S. skrifar:
Júnímánuður er töluvert hærri hjá
mér en næsti mánuöur á undan.
Skýringin er að verulegu leyti fólgin í
því að tvö afmæli voru í þessum
mánuði og þá aðeins breytt út af þvi
vanalega, þá verða allar upphæðir
hærri. Svo er ég búin að ganga frá
júlí-seðlinum líka. Fjölskyldan er að
fara út á land og verður að mestu hjá
ættingjum. í útilegu á þó að fara um_
heila helgi og fyrir hana erum viö
búin að birgja okkur upp. Af gamalli
reynslu ætla ég ekki að treysta á aö fá
alla hluti i næstu verzlun (eða þá
matvöru sem ég tel aö henti okkur
bezt i útilegu). Bara litið dæmi get ég
nefnt þessu til sönnunar. í fyrra-
sumar var ég úti á landi í mánuð og
fékk aldrei súrmjólk handa börnun-
um. Þetta þykir sjálfsagt ótrúlegt en
fólk sem býr úti í sveit fær svo iðu-
lega ekki þær vörur sem það biður
um simleiðis.
Eitthvað bætist sjálfsagt við svo ég
hafði upphæðina aöeins riflega. Ég
læt seöilinn fljóta hér með, annars
fellur hann niður hjá mér.
ÍRaddir )
neytenda
.. _____4
Óhentugar
umbúðir
mjólkurvara
A.J. skrifar:
Betra er seint en aldrei. Hér kemur
þá júnlseðillinn, þó seint sé. Ég er
alltaf tilbúin meö tölurnar snemma i
mánuðinum en svona er nú framtaks-
semin. Matartölurnar eru heldur háar
enda voru 7 manneskjur i 11 daga og
einnig var haldin skírnarveizla og hún
kostaði sitt. Mér hefur heldur tekizt
að lækka sjoppuliðinn, enda er nú
opið til kl. 23.30 þannig að ekki þarf
að birgja sig upp.
Þegar ég kom út í heildartölurnar
sé ég alltaf betur og betur að matur-
inn er ekki stærsti liðurinn heldur allt
hitt sem tekur til sin peninga.
Ég má til með að minnast á
mjólkurmálin. Við hér þurfum ekki
að kvarta undan gæðum á mjólkinni
og viö fáum okkar vörur unnar hér á
staðnum. En hins vegar er stór ókost-
ur hvernig vörunni er pakkað. Við
fáum aðeins 2 lítra fernur af mjólk,
enga undanrennu, 1/2 lítra af rjóma
og 1/2 kg af skyri. Þetta eru mjög
óhentugar pakkningar fyrir þá sem
eru með litil heimili og maður veigrar
sér oft við að bjóða upp á t.d. skyr og
rjóma eins og það er nú gott.