Dagblaðið - 05.08.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981. <-
r------------------:--------------------------------——s
Utgáf ustöðvun Alþýðublaðsins:
dráttarvél á
Sauðárkróki
—ogveltu henni
niðurNafirnar
Piltar- tveir á Sauðárkróki stálu
dráttarvél í bænum i fyrrinótt, óku
henni upp í Nafirnar í nágrenninu og
veltu þar niður. Rúllaði vélin nokkrar
veltur og er mikið skemmd eða jafnvel
ónýt að sögn.
Lögreglan á Sauðárkróki vildi sem
minnst um málið tala í gær. Dagblaðið
hefur eftir öðrum heimildum að
piltarnir tveir, 18 og 19 ára
Sauðkræklingar, hafi við yfírheyrslur
játað vélarstuldinn. Bakkus var með í
för.
Dráttarvélin er af Farmal-gerð. Hún
er gömul að árum en nýuppgerð.
Eigandinn, Ármann Kristjánsson,
notaði vélina meðal annars til
heyvinnu. Hann er með fé og hross.
Tjón Ármanns er tilfinnanlegt og óvíst
hvort og hvernig það verður bætt.
-ARH.
„ALGJÖR VANTRAUSTSYFIRLÝSING
Á HENDUR RITSTJÓRA”
—segir Jón Baldvin Hannibalsson
ábyrgðarmaður Alþýðublaðsins um
umdeildar aðgerðir blaðstjórnar
,,Ég tel að það hafi verið misráðið
af blaðstjórninni að stöðva útkomu
gamanblaðs Vilmundar
miðvikudaginn fyrir verzlunar-
mannahelgi,” sagði Jón Baldvin
Hannibalsson ábyrgðarmaður
Alþýðublaðsins.
„Þetta er algjör vantraustsyfír-
lýsing á hendur ritstjóra og ég mundi
aldrei liða svona framkomu gagnvart
sjálfum mér, heldur segja upp starfi
mínu þegar í stað,” sagði Jón Bald-
vin ennfremur.
Jón er fastráðinn ritstjóri
Mynd að f ærast á útitaf lið
Mörg högg, þung og létt, þarf til að snyrta til grjótið svo það passi i kantinn, sem
verður umhverfis hellulagða svæðið við Lækjargötu. Miðja þess svæðis verður siðan
sjálft útitafiiö, bitbein Reykvikinga undanfarnar vikur. Ráðgert var að útitaflið yrði
fullgert 18. ágúst og er ekki annað vitað en sú áætlun muni standast. Til hægri á
myndinni sjást hvar aðrar tröppurnar niður á svæðið verða, en hinar verða I
norðausturhorni svæðisins. Á bak við steinsmiðina sést i sárið fyrir taflmanna-
geymsluna, en hún verður niðurgrafin og á ekki að verða sýnileg fyrr en komið er fast
að henni. SA/DB-mynd: Gunnar örn.
Jón Baldvin og Vilmundur: „Ætla ekki að taka fram fýrír hendurnar á
Vilmundi,” segir Jón Baldvin. „Fram til 10. ágúst er ég I sumarfrii og einbeiti mér
að trésmiði, enda er það mjög róandi starf.” DB-mynd: Hörður.
Alþýðublaðsins en var 1 sumarleyfi
og staddur erlendis þegar
blaðstjórnin fór í prentsmiðjuna að
næturlagi og stöðvaði útkomu hins
umdeilda blaðs. Það kom þó út fáum
dögum seinna ásamt laugardags-
blaðinu 1. ágúst. Ritstýrði Vil-
mundur þvl einnig, en hafði það i
öllu alvarlegri tón.
Jón Baldvin er ábyrgðarmaður
Alþýðublaðsins og skráður sem
slíkur í blaðhaus. Samkvæmt
prentlögum má enginn taka fram
fyrir hendur ritstjóra með þvi að
stöðva prentun blaðs nema
ábyrgðarmaður (og ef til vill prent-
smiðjustjóri). „Ákvörðunin um að
stööva blaðið var ekki borin undir
mig og ég vissi ekkert um málið fyrr
en eftir á,” sagði Jón Baldvin. „Það
var i fullu samráði viö mig og
blaðstjórnina að Vilmundur var
ráðinn sumarritstjóri til 10. ágúst.
Þangað til er ég í fríi og helga mig
alfarið trésmíði. Ég er að vinna að
endurbótum á húsi minu við Vestur-
götu, sem er gamalt timburhús.”
„Þú hefur þá ekki hugsað þér að
blanda þér i málin milli Vilmundar og
blaðstjórnar?”
„Ég ætla ekki að taka fram fyrir
hendurnar á Vilmundi, enda er það
alkunna að ekki eru til rólyndari
menn heldur en trésmiðir,” sagði Jón
Baldvin og sneri sér aftur að
smiöunum. -IHH.
Strákar stálu
Væringarnar milli fógeta og
yfirlögregluþjónsinsá Ólafsfirði:
STEFÁN ORÐINN
LÖGREGLUÞJÓNN
Á AKUREYRI
Ófriðaröldurnar í lögregluliði Ólafs-
fjarðar hefur nú lægt og væringar milli
Barða Þórhallssonar bæjarfógeta og
Stefáns Einarssonar yfirlðgregluþjóns
eru úr sögunni. Lausnin er fólgin í því
að Stefán lét af störfum á Ólafsfirði og
hefur verið settur lögregluþjónn á
Akureyri frá 1. júlí sl. Er hann að hefja
vinnu þessa dagana að afloknu sumar-
leyfi.
Margvíslegar sakir voru bornar á
Stefán af Barða fógeta, eins og Dag-
blaðið greindi rækilega frá á sínum
tíma. Hjalti Zóphaniasson deildarstjóri
í dómsmálaráðuneytinu sagði þessa
lausn hafa verið fundna með tilliti til
þess að ekki hefðu veriö miklar likur á
að samstarf fógeta og yfirlögreglu-
þjónsins fyrrverandi myndi batna
mikið. Um kærur fógeta á hendur
Stefáni sagðist Hjalti lítið geta sagt,
þær væru til meðferðar hjá rlkis-
saksóknara.
-ÓV.
interRent
ear rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S. 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið. besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
HRAUf
keramik
frá
GLIT
HÖFÐABAKKA 9«
SÍMI85411
GLIT
Minningin um landið