Dagblaðið - 05.08.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
<§
Erlent
Erlent
ErKent
Erlent
D
REUTER
Dawda Kairaba Jawara forseti
Gambiu.
Halda forseta-
frúnniogl8
bömum
ígíslingu
íGambfu
Marxiskir uppreisnarmenn er halda
34 manns í gíslingu hafa enn ekki gefizt
upp fyrir hersveitum frá Senegal er
umkringt hafa þá i hinu litla ríki
Gambíu í Vestur-Afriku, sex dögum
eftir að þeir reyndu að ræna völdum i
landinu.
Dawda Jawara forseti Gambiu skor-
aði f gær öðru sinni á uppreisnarmenn
að gefast upp. Meðal gisla uppreisnar-
mannanná eru Dembo Jatta mennta-
málaráðherra Gambiu, Thielal
N’Diaye eiginkona Dawdas forseta og
átjánbörn.
Ríkisstjórn Gambíu kom saman i
fyrsta sinn f gær siðan valdaránstil-
raunin var gerð í landinu síðastliðinn
fimmtudag. Þá var Dawda forseti
staddur í Bretlandi vegna brúðkaups
Karls prins og lafði Díönu Spencer.
Dawda forseti Gambiu bað um
aðstoð hersveita Senegals i lok síðustu
viku á grundvelli gagnkvæms varnar-
samkomulags þjóðanna. Forsetinn
hefur heitið því að lifi uppreisnar-
manna verði þyrmt ef þeir gefast upp.
Forseti
Bólivíusegir
afsér
embætti
-190 stjómarbyltingar
ílandinu á 156 árum
Luis Garcia forseti Bólivíu sagði af
sér í gærkvöldi eftir að tveir af ráðherr-
um hans ákváðu að ganga f lið með her-
foringjum er gert hafa uppreisn
gegn stjórn hans.
Forsetinn tilkynnti um þessa
ákvörðun sína í sjónvarpsávarpi og
sagði hann þá að herforingjarnir tveir
er stjórnað hefðu uppreisninni gegn
honum væru , .valdagráðugir ævintýra-
menn” sem dæmdir væru til mistaka á
pólitíska sviðinu sem og i starfi sinu.
Stjórnarbyltingin í Bólivíu núna er sú
190. frá þvi landið öðlaðist sjálfstæði
fyrir 156árum.
Sadatræðir
við Reagan
Anwar Sadat forseti Egyptalands er
kominn til Washington þar sem hann
mun eiga viðræður við Reagan forseta í
dag. Reiknað er með að hann muni
halda áfram tilraunum sínum til að fá
Bandaríkjamenn til að fallast á aðild
PLO (Frelsissamtaka Palestínuaraba) að
friðarviðræðum í Miðausturlöndum.
Begin myndaði ríkisstjórn á elleftu stundu:
Eintómir harölínumenn
f nýju ríkisstjóminni
— Strangtrúarmenn auka mjög áhrif sín á þjóðlíf ið
Menachem Begin forsætisráðherra
israels mun f dag leita eftir trausts-
yfirlýsingu ísraelska þingsins
(Knesset) við stjórnarmyndun hans
þar sem harðlinumaðurinn og striðs-
hetjan Ariel Sharon fer með hið
valdamikla ráðherraembætti varnar-
mála.
Sem varnarmálaráðherra verður
Sharon sjálfkrafa yfirumsjónar-
maður með hinum herteknu lands-
svæðum araba og hann mun ráða
miklu um afstöðu ísraels þegar
kemur að viðræðum um sjálf-
stjórnarmál araba á vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu.
Fréttaskýrendur eru almennt
þeirrar skoðunar að nýja ríkisstjórn-
in muni fylgja meiri harðlínustefnu í
málum Miðausturlanda en nokkur af
fyrri stjórnum landsins.
í gærkvöldi undirritaði Begin sam-
komulag við þrjá trúarlega stjórn-
málaflokka eftir fimm vikna stjórn-
armyndunarviðræður sem einkum
snerust um strangari trúarleg lög af
ýmsu tagi. Samkomulagið tryggir
Begin nauman meirihluta i Knesset,
61 þingsætiaf 120.
öfugt við fyrri stjórn Begins þá
vantar nú í stjórnina menn er fylgja
hógværari stefnu — eins og til dæmis
Moshe Dayan utanrikisráðherra sem
þrásinnis lenti 1 deilum við forsætis-
ráðherrann vegna þess sem hann taldi
of öfgafulla stefnu.
Stjórnarsáttmálinn var undir-
ritaður þrátt fyrir mótmæli Davids
Levy fyrrum húsnæðismálaráðherra
á síðustu stundu. Hann er einn af
helztu stuðningsmönnum Begins en
neitaði að eiga sæti í nýju stjórninn.
Levy var ósáttur við þá ákvörðun
Begins að fá húsnæðismálin i hendur
Aharon Anuhatzeira, leiðtoga hins
iitla Tami-flokks, sem nýtur stuðn-
ings trúaðra gyðinga af norður-
afriskum ættum.
Abuhatzeira hafði sett það sem
skilyrði fyrir stjórnarþátttöku flokks
sins að hann fengi húsnæðismálin
eftir að flokkurinn hafði orðið að
sætta sig við að trúmálaráðuneytið
kæmi í hlut Jósefs Burg formanns
Þjóðlega trúarflokksins en Tami-
'flokkurinn er klofningur út úr Þjóð-
lega trúarflokknum.
Þriðji flokkurinn sem aðild á að
ríkisstjórninni er strangtrúarflokkur-
inn Agudat Israel. Hann fer ekki með
neitt ráðherraembætti en setti fram
langan lista yfir kröfur í trúarlegum
efnum i skiptum fyrir stuðning við
stjórnina.
Kröfur Agudat Israels fela meðal
annars í sér bann við sölu á svína-
kjöti, bann við að vélar flugfélagsins
E1 A1 fljúgi á hvildardögum (sabbat-
dögum) eða öðrum gyðinglegum
hátíðisdögum, aukið framlag rikisins
til trúarlegra stofnana og að þeir einir
teljist gyðingar sem teknir hafa verið
inn i hið gyðinglega samfélag
samkvæmt siðvenjum „rétttrúaðra”.
Þó að Reagan Bandarikjaforseta hafi fram til þessa gengið mæta vel aö koma ctna-
hagsstefnu sinni i gegnum Bandarikjaþing þá hefur stefnan þó veríð ákaflega umdeild
og mætt mikiili andstöðu viða. Andstæðingar forsetans segja að stefnan dragi mjög úr
öryggi þeirra þjóðfélagsþegna sem minnst mega sin. Forsetinn svarar þvi hins vegar
til að allir þegnar þjóðfélagsins muni hagnast á stefnunni þegar til lengrí tima sé litið
vegna þess að hún feli i sér endurreisn efnahagslifs þjóöarinnar. Myndin er frá mót-
mælum fyrir utan þinghúsið í Washington þar sem efnahagsstefnu forsetans var mót-
mælt.
Reagan Bandaríkjaforseti segist í dag
muni hefjast handa um að víkja úr
starfi meira en tólf þúsund flugum-
ferðarstjórum ef þeir binda ekki enda á
þriggja daga ólöglegt verkfall sem
valdið hefur miklu öngþveiti I innan-
landsflugi Bandaríkjanna.
, ,Ég vona að allir flugumferðarstjórar
geri sér grein fyrir þvi að ekki verður
aftur snúið, enginn annar kostur. Þeir
verða ekki endurráðnir,” sagði
Andrew Lewis samgönguráðherra.
Hann endurtók hótanir Reagans um að
ef flugumferðarstjórarnir hefðu ekki
snúið aftur til starfa fyrir miðjan dag i
dag þá yrði þeim vikið úr starfi.
Roberto Poli forseti samtaka flug-
umferðarstjóra (PATCO) sagði 1 gær-
kvöldi að verkfallinu yrði haldið áfram
þrátt fyrir hótanir forsetans og refsiað-
gerða dómstóla. Hann sagði að stéttar-
félag þeirra gæti ekki greitt þær 3,4
milljónir dollara sem tveir dómarar
hefðu úrskurðað að því beri að greiða
daglega vegna hins ölöglega verkfalls.
Reagan stjórnin hefur heitið öllum
þeim flugumferðarstjórum er snúa
aftur til vinnu i dag fullri sakarupp-
gjöf. Samkvæmt bandarískum lögum
er ríkisstarfsmönnum óheimilt að fara 1
verkfall.
Bandarísku flugfélögin segjast tapa
milljónum dollara á dag vegna verk-
fallsins.
Andrew Lewls, samgönguráðherra:
„Þeir verða ekkl endurráðnir.”
Embættismenn ríkisstjórnarinnar og
talsmenn flugumferðarstjóranna
greinri mjög á um hversu víðtæk áhrif
verkfallsins séu.
Baháíar of sóttir grimmilega í íran:
UNGLINGSSTÚLKUR NUMDAR
Á BROTT 0G TRÚARLEIÐTOG-
ARNIR TEKNIR AF LÍFI
Tvær unglingsstúlkur úr Baháf-trú-
flokknum i íran hafa verið numdar á
brott úr skólum sfnum af trúfræði-
kennurum múslima, að því er skýrt
var frá í höfuðstöðvum Baháí-trú-
flokksins f Bandaríkjunum um helg-
ina.
í yfirlýsingu frá höfuðstöðvunum
sagði að stúlkurnar hefðu verið
hindraðar í að snúa heim og foreldr-
um þeirra tjáð að þær hefðu snúizt til
islams (múhameðstrúar). Samkvæmt
islömskum lögum kynnu þær að
verða teknar af lifi ef þær gerðust
virkir þátttakcndur I trúarsamfélagi
baháf-manna að nýju.
Síðan byltingin í íran var gerð árið
1979 hafa margir baháfar í íran látið
snúast til islamskrar trúar.
I yfirlýsingunni sagði einnig að níu
leiðtogar baháí-trúflokksins i íran
hefðu verið leiddir fyrir aftökusveitir
í Tabriz I siðustu viku og skotnir til
bana. Þar með hafa um 70 baháí-
menn veriö teknir af lífi í f ran frá því
byltingin var gerð þar í landi.
Bahál-trúin er upphaflega islamsk-
ur sértrúarflokkur og er þar að leita
ástæðnanna til jjess að baháiar hafa
öðrum trúflokkum fremur sætt of-
sóknum í íran. Þeir eru álitnir hafa
svikið hina islðmsku trú.
Fylgjendur bahái-trúarinnar um
allan heim hafa skorað á Kurt Wald-
heim framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna að skerast í leikinn og
hjálpa baháium í Iran.