Dagblaðið - 05.08.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
I
Erlent
Erlent
Erient
Erlent
I
Þegar ljónynja ein í dýragaröinum í
Borás í Svíþjóð neitaði að sinna tveim-
ur nýfæddum hvolpum sinum komst
yfirmaður dýragarðsins, Káre Stures-
son, í mikinn vanda. Engu tauti var
komið við móðurina, hún hvæsti og
sýndi tennurnar í hvert sinn sem hvolp-
arnir reyndu að vingast við hana. Káre
sá þann kost vænstan að fara með
hvolpana heim og ala þá upp þar. Börn
Káre, Roger, Petra og Johan, þóttust
eðlilega hafa himin höndum tekið er
faðir þeirra kom færandi hendi með
hvolpana. Ljónahvolpar eru ekki ama-
legir leikfélagar.
Hvolparnir voru nær dauða en lífi
úr hungri er þeir komu heim til Káre og
fyrstu dagana varð að gefa þeim mjólk
að drekka á tveggja klukkustunda
fresti. Öll fjölskyldan tók þátt í að gefa
hvolpunum og óx þeim kraftur dag frá
degi. Þegar hvolparnir höfðu að fullu
náð sér þurftu þeir umhyggju og frið og
ró. Erfiðast var að halda tiðindunum
leyndum fyrir skólasystkinum Rogers,
Petru og Johans, því krökkunum í
skólunum þótti skrítið að systkinin
þutu beinustu leið heim um leið og
skólabjallan hringdi út í seinasta sinn.
Eftir mánuð komst upp um hvolpana
og þá var daglega mikill gestagangur á
heimili yfirdýravarðarins þvi allir
krakkarnir vildu fá að halda á og leika
við litlu ljónin. Nú var líka búið að
skíra hvolpana, hét annar Trold og
hinn Blondie.
Eftir því sem hvolparnir stækkuðu
urðu þeir fjörugri og fyrirferðarmeiri
og þar kom að fjölskyldan neyddist til
að fara með Troíd og Blondie aftur I
dýragarðinn. Þá var ástandið orðið
þannig á heimilinu að alla hluti úr leðri
varð að fela vandlega þvi hvolparnir
voru sólgniríleður.
Grátur og gnístan tanna fylgdi brott-
för hvolpanna en systkinin þrjú geta þó
huggað sig við það að hægt er að fara
og heimsækja Trold og Blondie í dýra-
garðinn. Þar fá hvölparnir næstum
að leika lausum hala því þeir eru ekki í
búri heldur tjóðraðir utan dyra.
Skólafélagar systkinanna komu oft f
heimsókn til aö leika við hvolpana.
Petra sem er nlu ára og hvolpurinn Trold.
Ljónynjan hirti ekki um hvolpa sína:
Þtjú systkini fengu
óvenjulega leikfélaga
Leikkonan sem fer meö aðalhlutverkið í Lili Marleen
Það væri dásamlegt — segir Hanna
. _ u Schygulla,
að eignast bam 37
,,Nú höfum við eignazt nýja Marlene
Dietrich,” skrifuðu hrifnir gagnrýn-
endur um Hönnu Schygulla, vestur-
þýzku leikkonuna, þegar þeir höfðu
séð hana leika hlutverk óþekktu söng-
konunnar sem kemst á toppinn með
laginu Lili Marleen í seinustu heims-
styrjöld. Þýzku hermennirnir á vígvöll-
unum elskuðu þetta lag'um unga her-
manninn sem veit ekki hvora hann
elskar meira, Lili eða Marleen.
Hanna Schygulla hafði leikið í einum
þrjátíu myndum þegar hún sló f gegn
f myndinni Hjónaband Maríu Braur
og varð um svipað leyti heimsfræg í
sjónvarpsþáttum um Berlin
Alexanderplatz. (Vonandi verða þeir
sýndir í sjónvarpinu hér.)
Lennon
Japanskur viðskiptajöfur hefur í
hyggju að heiðra minningu John Lenn-
ons, sem lézt í fyrra, með því að byggja
safn til minningar um Bítilinn. Safnið á
að rísa í garði einum skammt frá
kirkjugarði í nágrenni Tókíó.
John Lennon var geysilega vinsæll í
Japan og eftir að hann giftist Yoko
„Það er leikstjórinn Fassbinder sem
hefur búið mig til,” segir Hanna.
Samband þeirra er talið líkjast því sem
er milli Ingmar Bergman og Liv Ull-
mann — með öðrum leikstjórum eru
þessar kvikmyndastjörnur meira og
minna misheppnaðar. Saman hafa þau
Hanna og Fassbinder gert einar þrjátíu
myndir en Fassbinder er sem kunnugt
Ono jukust enn vinsældir hans. Um
36000 manna Bítla-aðdáendaklúbbur
hyggst sjá um skreytingar í safninu og
þar eiga einnig að vera sýningar
tengdar Lennon.
er einhver afkastamesti leikstjóri sem
nú er uppi.
Hanna Schygulla býr í „kollektívi”
ásamt nokkrum öðrum utan við
Milnchen. Hún segist ekki geta hugsað
sér að giftast eða vera í föstu ástarsam-
bandi og hana langar ekki til að eignast
eigið heimili en hefur hins vegar keypt
draumahús handa foreldrum sínum.
,,Að eignast barn mundi gjörbreyta
Iffi mínu,” segir hún. -,,Ég á erfitt með
að ákveða mig en enn er það ekki of
seint, ég er 37 ára. Það hlýtur að vera
dásamleg tilfinning að hafa sitt eigið
barn í fanginu.
1»
Hanna Schygulla, leikkonan sem fer
með aðalhlutverkið f Lili Marlcen,
Hjónabandi Maríu Braun og mörgum
öðrum myndum þýzka leikstjórans
Fassbinders.
Safii til minningar um