Dagblaðið - 05.08.1981, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
Kenna reiðmennsku, temja og þjálfa:
LÍFIÐ ER EKKISALT-
FISKUR HELDUR HROSS
— stutt innlit
hjá Freyju
ogAlberti
íSyðra-
Garðshorni
„Okkur líkar vel lifíö. Hér er gott
aö búa og svo er allt annað að vera
orðinn eiginn húsbóndi,” sagði Albert
Jónsson, hrossabóndi aö Syðra-
Garðshorni í Svarfaðardal, við Dag-
blaðsmenn þegar við heimsóttum hann
á dögunum. Albert og kona hans,
Freyja Hilmarsdóttir, tóku jöröina á
leigu í fyrravor og stunda þar eingöngu
hestabúskap. Þau kenna reiðmennsku,
temja og þjálfa hesta. Á sama hátt og
lif sumra er saltfiskur, er lif þeirra
hross. Og þau lifa bara dágóöu lífi.
„Það þótti mörgum ekki gáfulegt
að ætla sér að lifa af því að fást við
hesta og hestamennsku. En þetta sýnir
sig geta gengið þokkalega vel,” sagði
Albert.
Þau hjón þykja fær vel og lagin við
að fást við hrossin, enda eru margir um
að vilja koma hestum í tamningu og
þjálfun hjá þeim. Þau hafa vasazt lengi
í hestamennskunni og haft hana að at-
vinnu. Albert vann hjá Sigurbirni
Eiríkssyni á Stóra-Hofi í ein 7 ár,
Freyja var hjá Sigurði Haraldssyni í
Kirkjubæ. Báðir eru þeir Sigurbjörn og
Sigurður þekktir hrossabændur á
Rangárvöllum.
Freyja var ekki heima við þegar
okkur bar að garði. Hún var á Dalvík
að kenna krökkum undirstöðuatriði
reiðmennskunnar. Reyndar var Albert
ekki heima heldur. Hann var 1 reiðtúr
(hvað annað!) en skilaöi sér heim von
bráðar. Hjá þeim er llka 1 sumar bróðir
Freyju, Óli.
Hann vinnur ásamt þeim við
tamningar. Hestar eru tamdir fyrir
menn viðs vegar um land. Aðra temja
þau og selja svo. Albert og Freyja hafa
líka farið um nágrennið og haldið
námskeið fyrir hestamenn. Þannig
fengu hestamenn á Húsavlk og Ölafs-
Freyja leiðbeinii ungviðinu ng kennir fyrstu sporin i reiðmennsku og umgengni við
hestana. Nemandinn heitir Hólmfriður, dóttir Stebba og önnu Möggu.
Albert og mágur hans, Óli, I hestaréttinni. Ofáa glæsta fáka mátti sjá þar.
Allt á fullu i gerðinu ofan við fjösið I
Syðra-Garðshorni (þar sem hestar hafa
tekið völdin af kúnum). Albert lagði á
kenjóttan klár sem hljóp hring eftir
hring og lét öllum illum látum. Knapinn
hló dátt en fréttamenn góndu skelfdir á.
Það er greinilega engin tilviljun að
Albert var i hópi sigursælustu knapa á
íslandsmótinu i hestaiþróttum fyrir
skömmu. Meira en meðal iþróttamenn
þarf til að lafa á baki á sprellhestum á
borð við þennan.
Hér tók sá villti sig til og lét eins og hann væri aðalstjarnan I vesturheimskri kúreka-
kvikmynd. En Albert bognaði hvergi og lét klárinn ólmast þangað til hann þreyttist á
hamaganginum. DB-myndir: Sig. Þorri.
firði leiðsögn góða. Auk þess fór
Albert um og kenndi rétt vinnubrögð
við járningu.
Þannig gengur lífið fyrir sig i stórum
dráttum. Þó ekki árið um kring:
,,A haustin er gott að taka sér pásu,
gefa hestunum frí. Ég býst við að fara á
sjóinn í haust, það er mikil og góð
tilbreyting,” sagði Albert.
Við þáðum með þökkum kaffitár og
tertusneið i stofu 1 Syðra-Garðshorm.
Síðan var ekkert eftir annað en að
þakka fyrir sig og kveðja. Heimamenn
mátti ekki tefja lengur. Þeir áttu eftir
að stússast í hestum enn frekar áður en
dagur yrði úti. Þarna erlinnulaustriðið
frá morgni til kvölds.
-ARH.
Nýja sundlaugarhúsið i Mývatnssveit og sundlaugin að verða til fyrir framan. A minni myndinni eru sundlaugarsmiðirnir
Ólafur Guðmundsson, Valdimar Valdimarsson og Jón Ingvar Valdimarsson. DB-mynd: Finnur Baldursson, Reykjahlið.
Mývetningar fá
nýjá sundlaug
— sem flutt var í hlutum frá Skagaströnd
Þessa dagana er veriö að setja
niður nýa sundlaug í Reykjahlíð í
Mývatnssveit. Áður var búið að
byggja stórt og glæsilegt hús með
búningsaðstöðu, böðum og öðru sem
tilheyrir. Á neðri hæð hússins eru
búningsklefar og böð fyrir notendur
knattspyrnu- og iþróttavallar. Síðast-
liðinn vetur hafði Tónlistarskóli
Mývatnssveitar aðstöðu í húsinu og
eins mun íþróttafélagið Eilífur fá til
afnotahlutaþess.
Nýja sundiaugin, sem er 25 x H
metrar, er úr trefjaplasti. Hún var
búin til i trésmiðju Guðmúndar
Lárussonar á Skagaströnd og flutt til
Reykjahlíðar í pörtum. Þrir menn frá
framleiðanda vinna nú við að setja
laugina saman. Reikna þeir með að
Ijúka verkinu eftir hálfan mánuð.
Knstján Yngvason oddviti sagðist
i samtali við fréttaritara DB í
Reykjahlíð vonast til að hægt yrði að
taka þessa nýju og glæsilegu
sundlaug (notkun í næsta mánuði.
-FB, Reykjahllð.