Dagblaðið - 05.08.1981, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
JÓNAS
HARALDSSON
Fræbbblar
í framfor
— fjögurra laga
plata, Bjór,
nýkomin
á markaöinn
„Við erum bara þó nokkuð
ánægðir — i það minnsta ekki.
óánægðir — með útkomuna hjá
okkur,” sagði Bjarni Sigurðsson,
ljósameistari Fræbbblanna og einn
helzti talsmaður sveitarinnar, í viðtali
við DB. I síðustu viku kom út fjög-
urra laga plata frá Kópavogspiltun-
um undir nafninu Bjór.
Að þessu sinni eyddu þeir félagar
öllu lengri tima í upptökur, en venja
er til á þeim bæ, enda útkoman betri
en áður. Allur hljóðfæraleikur
öruggari, „sándið” miklu betra og
síðast en ekki sízt söngurinn mun
sterkari, en hefur um leið misst
nokkuð sérkenni sín. Heildarsvipur-
inn eftir sem áður sterkari en spurn-
ingin er bara: Taka menn Fræbblana
alvarlega? Það er full ástæða til þrátt
fyrir allt sem á undan er gengið.
- SSv.
Valgarður Guðjónsson, söngvari
Fræbbblanna.
DB-mynd Sig. Þorri.
Purrkur Pillnik til
Englands
Liðsmenn Purrks Pillnikks héldu i
vikubyrjun til Englands. Þar mun
flokkurinn dvelja um þriggja vikna
skeið, aðallega í Lundúnum og stál-
borginni frægu, Sheffield, við laga-
smiðar, söng og upptökur.
Munu þeir Pillnikks-piltar verða
að miklu leyti á vegum Marcus
nokkurs Featherby sem er með
hljómplötuútgáfu i Sheffield. Ekki er
ljóst hvort um stóra eða litla plötu
verður að ræða í kjölfar þessa tíma-
bils en afkastagetan og hugmynda-
auðgin munu ráða þar mestu um.
- SSv.
Ásgeir Bragason, trommuleikari
Purrks Pillnikks, og þriðjihlutinn á
plötunni Dirty Dan Project.
DB-mynd SSv.
Hef aldrei áður séð það sem ég sá I
Kirkjufellinu f vor, en það var fugl sem
hafði búið sér til hreiður i snjóskafli.
sem gamlir bilar og bátar verða sem
nýir.
DB-myndir Jónas Haraldsson.
Bœring Cecilsson jréttaritari Dagblaösins í Grundarfiröi:
„Maður veit aldrei hvenœr
maður hittir atburð”
— hef aldrei fœrri en þrjár Ijósmyndavélar með mér áferð og tvær
kvikmyndavélar
f hverju plássi eru menn sem setja
meiri svip á umhverfið en gerist og
gengur. Einn slíkra manna er Bæring
Cecilsson i Grundarfirði. Plássið
væri til muna fátækara ef hans nyti
ekki við. Sjaldnar sæist og Grundar-
fjarðar getið í fjölmiðlum því Bæringl
er ötull fréttaritari.
„Myndavélina hef ég alltaf með,
fer aldrei neitt án hennar,” sagði
Bæring er blaðamaður hitti þennan
fulltrúa Dagblaðsins á heimavíg-
stöðvum. „Fyrstu myndavélina
eignaðist ég fyrir 1940. Það var
kassavél.
Filmur ístaðinn
fyrir sígarettur
Þegar ég fór á sjóinn og félagar
mfnir fóru að reykja þá sagðist ég
ætla að hafa þetta öðruvfsi. Ég
ætlaði að fá mér filmur 1 staðinn fyrir
sigarettupakka og taka myndir af
ýmsum atburðum. Hins vegar hef ég|
aldrei getað fylgt reykingamönnun-
um eftir því ég get ekki tekið á eins|
margar filmur og þeir reykja pakk-
ana. Þeir hafa margir sagt mér síðar
að þeir hefðu viljað fara eins að. Ég
hef oft verið spurður að því hvort
ekki sé dýrt að taka myndir en þá hef
ég spurt á móti hvað það kosti að
reykja.
Þar sem ég hef hvorki reykt né
notað vín er ég léttur á mér. Ég er
fæddur og uppalinn undir Kirkjufell-
inu og það var daglegur viðburður að
fara upp i fjallið. Ég hætti að telja
ferðir mínar þangað þegar þær voru
komnar f 200. Og aidrei taldi ég feróá
fjailið nema ég kæmist á toppinn. Ég
hef margt séð á Kirkjufellinu en þó
aldrei fyrr það sem ég sá í vor, en það
var fugl sem hafði búið sér til hreiður
i snjóskafli.”
Byrjaði að kvik-
mynda árið1956
„Fyrstu myndirnar eftir mig fóru
að birtast í blöðum upp úr 1950,”
hélt Bæring áfram. „En ég læt ljós-
myndavélina ekki nægja því 1956
byrjaði ég að kvikmynda. Þá fékk ég
mér 8 mm vél en 1966, þegar sjón-
varpið byrjaði, náði ég mér í 16 mm
vél og hef tekið myndir víða, bæði
fyrir mig og sjónvarpið. Ég á orðið
gott safn kvikmynda allt frá 1956 og
einnig ljósmynda lengra aftur í
timann. Það er ómetanlegt að eiga
ýmsa atburði á filmu.
Ég festi flesta atburði bæði á
venjulega ljósmyndafilmu og
„slides”, fyrir utan kvikmyndunina.
Þegar ég er á ferð hef ég aldrei færri
en þrjár ljósmyndavélar með mér
með mismunandi filmum. Þá er ég
einnig með kvikmyndavélar, bæði 8
og 16 mm. Maður veit aldrei hvenær
maður hittir atburð.”
Viðgerðir eru
aðalvinnan
Margur ferðamaðurinn hefur þurft
að leita á náðir Bærings í Grundar-
firði því hann vinnur við bílavið-
gerðir og er með verkstæði. Þá koma
heimamenn að hitta Bæring því
honum lætur ekki síður að hressa
upp á bátaflotann en bílana. Hann
var byrjaður 13 ára á vetrarvertíð og
veit því hvað snýr fram og hvað aftur
á skipum.
Viti Grundfirðingar og nágrannar
þeirra eitthvað fréttnæmt er óhætt að
hafa samband við Bæring. Hann
kemur því áleiðis til Dagblaðsins og
tekur mynd af því fréttnæma ef að
likumlætur. -JH
„Þar sem ég hef hvorki reykt né notað vin er ég léttur á mér.”
Hefur lifað
í eina öld
Stefán Jónasson, fyrrum útgerðar-
maður og bóndi, var meða) þeirra
sem Vigdfs Finnbogadóttir forseti
hellsaði upp á I Hlið, dvalarheimili
aldraðra á Akureyri, i opinberri
heimsókn sinnl. Hér sést forseti tala
við Stefán. Heyrnin er farin að
daprast hjá honum enda aldurinn
orðinn hár. Hann heldur upp á 100
ára afmæli i haust.
-ARH / DB-mynd Sig. Þorri.