Dagblaðið - 05.08.1981, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
Ingvar Ernir Pálsson fæddur 1. okt.
1977, lézt 3. júli 1981 í umferðarslysi í
Svíþjóð. Foreldrar hans eru Kristín
Hjörleifsdóttir kennari og Páll E.
Ingvarsson cand. med., nú læknir á
Sigiufirði.
Veðrið
Vestanlands ar gert ráfl fyrir golu
an hœgviflri á suflurhluta landsins.
NorAvestan gola fyrir norflan afla
hœgviflrl. Skýjafl og súld víflast hvar.
Klukkan 6 var suflvostan 2, súld og
9 stig í Reykjavlt, suflauflaustan 2
skýjafl og 11 stig á Gufuskálum,
norflan 1 láttskýjafl og 10 stig á
Galtarvita, norflnorflvastan 4 rigning
og 8 stig á Akuroyri, norflvestan 2
súld og 7 stig á Raufarhöfn. Logn,
aiskýjafl og 8 stig á Dalatanga. Norfl-
vostan 4, skýjafl og 10 stig á Höfn.
Vestan 5, abkýjafl og 8 stig á Stór-
höffla.
í Þórshöfn var skýjafl og 8 stig,
lóttskýjafl og 17 stig í Kaupmanna-
höfn, skýjafl og 16 stig í Osló, lótt-
skýjafl og 16 stig í Stokkhólml,
skýjafl og 19 stig (London, láttskýjafl
og 19 stig f Hamborg, þoíaanófla og '
20 stig f Parfs, skýjafl og 18 stig I
Madrid, haiflskirt og 17 stig f Lissa-
bon, skýjafl og 25 stig f Naw York.
Ancflát
Guðrún Elisabet Kristjánsdóttir, sem
lézt 24. júlí, var fædd 17. október 1892
að Bæ í Staðarsókn í Súgandafiröi.
Fyrri maður hennar var Þorsteinn
Jónsson, bjuggu þau að Bólstað í Súða
vík. Fósturdóttir þeirra var Olga
Pálmadóttir. Eftir lát Þorsteins giftist
Guðrún aftur og var sfðari maöur
hennar Jón Valgeir Hallvarðsson.
Bjuggu þau á Blómsturvöllum í Súða-
vík.
Inglbjörg Sigriður Jónasdóttir Njáls-
götu 4 B er látin. Hún átti æsku sina i
Borgarfirði, var dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Loftsdóttur og Jónasar Jónas-
sonar. Minninarathöfn um Ingibjörgu
Sigríði verður i Dómkirkjunni í
Reykjavík 5. ágúst kl. 13.30. Jarðsett
verður á Borg á Mýrum 6. ágúst kl. 14.
Jón G. G. Pétursson andaöist að
Hrafnistu 3. ágúst 1981..
Guðrún Bjarnadóttir Bakkastíg 12 B
Bolungarvík lézt að heimili sínu mánu-
daginn 3. ágúst 1981.
Katrin Jóhannesdóttir Kleppsvegi 142
lézt á Landspítalanum 1. ágúst 1981.
Sigurður Harðarson Fjölnisvegi 18 lézt
af slysförum 3. ágúst 1981.
Jón Þórir Gunnarsson Brekkustíg 6 A
Reykjavik andaðist aö heimili sínu að
kvöldi 1. ágúst.
Jóhanna Bjarnadóttir frá Stapadai
andaöist að heimili sínu Mjóuhlíð 12 1.
ágúst 1981.
Ragnheiður Kristin Kristjánsdóttir frá
Sveinseyri, Norðurbyggð 23 Akureyri,
andaðist á fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 31. júlí 1981. Jarðaförin fer
fram 7. ágúst 1981.
Ólafur Kristjánsson Þórhól Neskaups-
stað andaðist 31. júlí sl. Verður
jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju 8.
ágúst kl. 14.
Sveinbjörn Kristjánsson andaðist 31.
júlí. Útförin fer fram i Fossvogskirkju
7. ágúst kl. 10.30.
Sigriður Ketilsdóttir Melabraut 63 Sel-
tjarnarnesi verður jarðsungin í Foss-
vogskirkju i dag 5. ágúst kl. 15.
Magnús Kjartansson verður jarðsung-
inn í Dómkirkjunni 6. ágúst kl. 15.
Ástriður Guðrún Eggertsdóttir verður
jarðsungin 6. ágúst kl. 10.30.
Ólafur Þ. Kristjánsson Tjarnarbraut 11
Hafnarfirði andaöist á St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði 3. ágúst sl.
Helgi P. Briem Sólheimum 23 Reykja-
vík lézt í Borgarspítalanum 2. ágúst
1981.
Þráinn Sigurðsson Litlagarði 14 and-
aðist að heimili sínu 4. ágúst 1981.
Ásta Hólmkelsdóttir Mávabraut 2
Keflavík verður jarðsungin frá Kefla-
víkurkirkju 6. ágúst kl. 14.
Ferðalög
Sumarferð Nessafnaöar
Sumarferöin verður farin sunnudaginn 9. ágúst.
Ekið verður að Skógum undir Eyjafjöllum. Nánari
upplýsingar fást hjá kirkjuverði milli kl. 17 og 18
fram að helgi i síma 16783.
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
fer sina árlegu sumarferð dagana 14.—16. ágúst.
Lagt verður af stað kl. 19 stundvislega föstudaginn
14. Ekiö verður að Heklu við Selsund, farið hjá
Næfurholti, Rangárbotnum og Tröllkonuhlaupi,
austur með Skjólkvíum og gist í tjöldum við Land-
mannahelli. Á laugardeginum kl. 9 verður lagt af
stað i Hrafntinnusker, þar sem jaröhitinn bræðir
jökulisinn. Þaöan verður svo haldið aftur á Dóma-
dalsleiö, hjá Frostastaðavatni i Landmannalaugar
þar sem gerður verður stuttur stanz. Siðan verður
ekiö austur yfir Jökulgilskvísl, hjá Kýlingum um
Jökuldali að Herðubreið viö Eldgjá. Hjá Ljónstindi
veröur ófærufoss í Eldgjá skoðaður. Tjaldað verður
I efstu grösum austan Grænafjallgarðs. Á sunnudeg-
inum kl. 9 verður siöan lagt af stað á Sveinstind sem
ris 1090 m hár við suövesturenda Langasjávar og
Fögrufjalla. Um hádegiö verður haldið heimleiöis
um Landmannalaugar, Sigöldu og Þjórsárdal en þar
verður ckið hjá Gjánni og komið viö 1 Stöng. Litið
veröur á Hjálp og síðan farið niöur Gnúpverjahrepp
og Skeið ogáætluöheimkomaum kl. 21.
Upplýsingar og miðar fást hjá Lovisu Hannes-
dóttur í síma 41279 og Gisla Ól. Péturssyni í sima
42462.
Ferðafólk! Þetta er sannkölluö draumaferð! Látiö
ekki happ úr hendi sleppa.
Framsóknarfélag
Borgarfjarðarsýslu
efnir til helgarheimsóknar til Vestmannaeyja 4. sept.
nk. ef nægileg þátttaka fæst. Fararstjóri verður
Trausti Eyjólfsson, kennari viö Bændaskólann á
Hvanneyri, og skráir hann feröafélaga í síma 7019.
AA-samtökin
í dag miðvikudag verða fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010) kl.
12 (opinn), 14, 18 og 21. Grensás, safnaðarheimili
kl. 21. Hallgrímskirkja kl. 21. Akranes (93-2540)
Suöurgata 102 kl. 21. Borgarnes, Skúlagata 13, kl.
21. Fáskrúðsfjörður, Félagsheimilið Skrúður, kl.
20.30. Höfn, Hornafirði, Miötún 21, kl. 21. Kefla-
vík (s. 92-1800), Klapparst. 7 enska, kl. 21.
Á morgun, fimmtudag, verða fundir í hádeginu
sem hér segir: Tjamargata 5, græna húsiö, kl. 14.
MINNKANDISVÆLA
í TÖLUM 0G PRÓSENTUM
Ég var svo stálheppinn í gærkvöldi
að allt það sem mig langaði að hiusta
á kom i bunu eftir fréttalesturinn.
Með góðri samvjzku var hægt að
slökkva á tækinu um níuleytið og
snúa sér að öðru, í stað þess að hlusta
hlustunarinnar vegna og nöldra. Sem
er hallærislegt i meira lagi.
Vettvangsþátturinn var í þyngra
lagi að þessu sinni. Einhver náungi
kynnti nýja ferðaskrifstofu, einhvers
konar leppfyrirtæki íscargó að mér
skilst. Mál til komið að við fáum nú
tækifæri til að skutlast yfir pollinn.
Svo komÞorvarðurörnólfsson fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins
og sagði okkur frá því að íslendingar
svældu minna af tóbaki en áður. Þá
léttist brúnin mín agnarögn. Að visu
verður ekki sagt að fróðleikurinn
hafi veri settur fram á aðgengilegan
hátt fyrir hlustandann: endalausar
talnarunur og prósentur. Mér skildist
þó að þetta færi frekar minnkandi.
Að meinalausu mættu þó fleiri hætta
svælinu. Við sem ætlum að drepa
okkur á einhverju öðru en reykingum
myndum ekki sakna þess. Það þykir
bara sjálfsagt að svæla framan i okkur
hvar sem gengið getur. Kerlingunum
sem sátu framan við mig í Ferða-
félagsrútunni um siöustu helgi þótti
ekkert athugavert við að svæla hver í
kapp við aðra — hvað sem aðrir far-
þegar sögðu. Og eyðileggja andrúms-
loftið fyrir okkur hinum.
Guðmundur Einarsson forstjóri
Skipaútgerðar nkisins kom síðastur
viðmælenda í Vettvanginn og sagði
frá væntanlegum skipakosti. Sigmar
B. var, að þvi er ég bezt gat heyrt,
stútfullur af kvefpest. Hann á samúð
mína óskipta. Pestir og flensur eru
andstyggileg fyrirbæri. En hvers
vegna er Ásta „samstarfsmaður”
orðin nánast eingöngu kynnir í
þættinum og Sigmar alltaf í spyrils-
hlutverkinu?
Áfangarnir brugðust ekki frekar en
fyrri daginn. Þar fengum við meira
að segja að heyra i félaga Bubba
Morthens. Og á eftir Áföngum var
Finnbogi Hermannsson, pólitiskur
flóttamaður úr Framsóknarflokkn-
um á Vestfjörðum, með ágætis þátt
um Árneshrepp á Ströndum. Finn-
bogi er góður hljóðvarpsmaður og
hefur náð þokkalegum tökum á fag-
legri vinnu í þáttagerð. Árneshreppi
kynntist hlustandinn öllu betur í
þættinum, a.m.k. sá er vissi lítið um
hann fyrir og vildi vita meira. Ámes-
hreppur komst í fréttir fyrr í sumar
þegar Vigdís forseti kom þangað í
heimsókn. Dagblaðslesendur eru á
hverju sumri ágætlega upplýstir um
hræringar í þessum hreppi á Strönd-
unum. Það er auðvitað henni Regínu
að þakka. Hún flytur sig um set eins
og farfuglarnir. Eyðir veturnóttunum
í loðnubrælunni á Eskifirði en flytur
sig svo i ferskt Strandaloftið þegar
sólin hækkar á lofti á vorin.
Sjónvarpsfríinu fer bráðum að
ljúka. Þá er von til að óróa og tauga-
veiklun linni á heimilunum. Og menn
hætti að vera eirðarlausir og vesælir
eftir kvöldmatinn. Sérstaklega þeir
sem eru borubrattir og mannalegir;
þykjast sko ekki sakna helvftis sjón-
varpsins í eina mínútu. En hlakka
undir niðri óskaplega til að fá Dallas-
inn sinn og allt hitt. Það er kannski
sama fólkið ogskammasteilíft yfir að
ekkert standi af viti í blöðum — en
kaupir þau nú samt. Svei.
Stjornmaíafundir
L miMúí
sus-
Sveitarstjórnarmál
Málefnanefnd um sveitarstjórnarmál heldur fund
sinn í dag, kl. 171 Valhöll við Háaleitisbraut. Stjórn-
andi Davíð Oddsson.
Sjálfstœðisfélögin
á Suöurnesjum
Sameiginlegur fundur verður haldinn í kvöld kl.
20.30 i Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, Njarðvik
(sama húsi og sparisjóðurinn).
Fundarefni: Aukin þátttaka kvenna innan Sjálf-
stæðisflokksins og á vettvangi landsmála. Fram-
sögumenn: Margrét S. Einarsdóttir, form. Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna, Björg Einarsdóttir,
form. Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Rvík.
Salome Þorkelsdóttir alþingismaöur og Arndis
Björnsdóttir varaþingmaður mæta á fundinn.
Fundurinn er öllum opinn.
Alþjóðagiktarþingið í Parts
— Gikt algengasta orsök
fötlunar
Fimmtánda alþjóöaþing giktarfélaga var haldið i
París dagana 21.—27. júní sl. Á þinginu voru
samankomnir nær 4500 fulltrúar frá flestum löndum
heims. Meirihluti þingfulltrúa var læknar og vís-
indamenn, en þeir hafa fiestir með sér félög í sinum
heimalöndum. Félög giktsjúkra eru aftur á móti
einkum starfandi i hinum þróaöri lýðræðislöndum
Evrópu og Norður-Ameríku og hafa þar víða náð
mjög góðum árangri.
Þingið sóttu sex íslenzkir læknar, lyfjafræðingur
og fulltrúi Giktarfélags íslands.
Fjórir íslendingar, Ingvar Teitsson, Alfreð
Árnason, Helgi Valdimarsson og Jón Þorsteinsson,
lögðu fyrir'þingið skýrslu um rannsóknir á 147
íslendingum sömu ættar með háa tíðni giktar. Rann-
sóknirnar fóru fram á Lyfiækningadeild Landspítal-
ans, Blóðbankanum og Dept. of Immunology, St.
Mary’s Hosp. Medical School, London.
Frummælandi var Ingvar Teitsson og kom fram í
máli hans aö rannsóknum þessum væri ekki lokið,
vegna skorts á rannsóknaraðstöðu á tslandi.
Á þinginu kom skýrt fram að giktsjúkdómar eru
algengasta orsök fötlunar. Giktsjúkdómar valda
fiestumfjarvistum frá vinnu og meiri þjáningu en
nokkrir aðrir sjúkdómar.
Menn voru einnig sammála um að giktsjúkdómar
væru ákafiega vanræktir i hinum opinberu heil-
brigðiskerfum.
Alþjóðsamband giktarfélaga hefur nú hafið stór-
aukið samstarf við Alþjóða heilbrigðisstofnunina
undir kjörorðinu ..Heilsa handa öllum áriö 2000”.
Stærsta hindrunin á vegi þessa starfs telja menn van-
þekkingu stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almenn-
ings á giktsjúkdómum og mögulegum lækningum.
Forseti Alþjóðasambands giktarfélaga, dr. E.P.
Engelman, Bandarikjunum, sagði i viðtali við dag-
blað þingsins: „Ég mun vinna að þvi að fjölga
aðildarfélögum sambandsins. Mig langar aö sjá
meiri þátttöku heilbrigðisstétta eins og hjúkrunar-
fræðinga, sjúkraþjálfara og skurðlækna. En framar
öllu legg ég áherzlu á þátttöku hinna sjúku. Það er
algengt aö vanti.átak hinna sjúku til aö sá árangur
náist sem mögulegur er.”
öldungadeild
á Selfossi
Eins og fram kemur í auglýsingu hér i blaðinu verður
kannaður áhugi & stofnun öldungadeildar við Fjöl-
brautaskólann á Selfossi á næstu dögum. Ef þátt-
taka reynist næg að mati skólans og menntamála-
ráðuneytis veröur væntanlega tekið til starfa þegar í
haust og mun þá sú fulloröinsfræösia sem farið
hefur fram í Hveragerði í samvinnu við Menntaskól-
ann viö Hamrahlíð flytjast í Fjölbrautaskólann á
Selfossi, enda hafa nemendur i Hvergerði margir
hverjir komið frá Selfossi.
öldungadeildin mun væntanlega starfa með líku
sniði og samsvarandi deild við Menntaskólann við
Hamrahllð og aðra framhaldsskóla: kennsla fer
fram siðdegis og á kvöldin og er einkanlega ætluð að
vera hjálp til heimanáms i kennslugreinum fram-
haldsskólans. Fyrst í stað verður eingöngu um að
ræöa bóknámsgreinar.
Strætisvagna-
gjöld hækka
Frá og með 1. ágúst 1981 veröa fargjöld SVR sem
hér segir:
Fargjöld fullorflinna: Einstök fargjöld kr. 3,80.
Stór farmiöaspjöld kr. 100,00/36 miðar
Litil farmiðaspjöld kr. 30,00/9 miðar
Farm.spj. aldraðra og öryrkja kr. 50,00/36.
Fargjöld bama:
Einstök fargjöld kr. 1,10
Farmiðaspjöld kr. 20,00/36 miðar.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamanna-
NR.144-4. ÁGÚST1981 , gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,581 7,601 8,361
1 Starlingspund 13,733 13,769 15,146
1 Kanadadollar 6,104 6,120 6,732
1 Dönak króna 0,9586 0,9611 1,0772
1 Norsk króna 1,2188 1,2220 1,3442
1 Sænsk króna 1,4243 1,4281 1,5709
1 Finnskt mark 1,6360 1,6403 1,8043
1 Franskur franki 1,2678 1,2712 1,3983
1 Belg. franki 0,1841 0,1846 0,2073
1 Svissn. franki 3,4771 3,4863 3,8349
1 Hollenzk florina 2,7189 2,7261 2,9987
1 V.-þýzktmark 3,0191 3,0271 3,4398
1 ítöisk Ifra 0,00609 0,00611 0,00672
1 Auaturr. Sch. 0,4294 0,4306 0,4736
1 Portug. Escudo 0,1140 0,1143 0,1257
1 Spánskur peseti 0,0755 0,0757 0,0833
1 Japansktyen 0,03100 0,03108 0,03419
1 irskt ound 11,034 11,063 12,169
SDR (sérstök dráttarréttindi) 8/1 8,4452 8,4677
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
rt