Dagblaðið - 05.08.1981, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
AMC Jeep 401 cid árg. ,72:
‘'víí, <
VERKLEGASTIIEPPINN
NORDAN HEIÐA
AMC-félagarnir fyrir norðan stilla sér
upp við hliðina á jeppanum i sandgryfj-
unum áður en æfingin hefst. Frá vinstri:
Sigursteinn Þórsson, Halidór Jóhannes-
son og Jóhannes Jóhannesson.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
ur, Roller rockerarmar og þrefaldir
ventlagormar. Auk þess er sett Nitrous
Oxide kit á vélina og er ætlunin að
spara hláturgasið hvergi þegar í spyrn-
una er komið. Með Nitrous Oxide
kittinu er notaður mjög fullkominn
elektróniskur mælir sem gerir Halldóri
kleift að fylgjast með streymi gassins,
þrýstingi og magni á kútnum. Hitt er
svo aftur vafamál hvort Halldór hefur
nokkurn tfma til að fylgjast með
mælinum þegar ( spyrnuna er komið.
Kveikjan á vélinni er fra ACCEL óg
einnig háspennukeflið. Flækjurnar eru
sérsmfðaðar Haddmann/Pústmann-
flækjur og eru rörin í þeim 2” breið,
32” löng og Cellectorinn á þeim er 4”.
Bensíndælan er frá Holley.
Aftan á vélinni er álsvinghjól og 3000
punda kúplingspressa, hvort tveggja
frá Hays. Gfrkassinn er stóri fjögurra
gfra Chryslerkassinn og er hlutfall
fyrsta gfrsins 2,64:1. Við kassann er
notaður Hurstskiptir. Millikassinn er
sá upprunalegi sem var í bílnum.
Dekkjabúnaður bílsins er mismun-
andi eftir aðstæðum. í torfærukeppni
eru notaðar 22 1/2” breið skófludekk
að aftan og 15 1/2” terrur að framan. í
sandspyrnu verða notaðar 221/2 ”
skóflur að aftan og mjó dekk að
framan. Og þar sem engar breytingar
þarf að gera á bflnum þegar hann er út-
búinn fyrir sandspyrnu til að geta tekið
Halldór hlffði jeppabúrinu hvergi þegar hann botnaði það upp brekkurnar. Iðulega
hélt jeppinn áfram upp eftir að brekkan endaði og flaug hann oft langar leiðir.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Þjóðsögurnar segja að á Jónsmessu-
nótt flytjist álfar búferlum. Samkvæmt
sögunum stunduðu framgjarnir ungir
menn þann sið að seijast við krossgötur
og hindra þannig álfana í að komast
leiðar sinnar. Buðu álfarnir mönnun-
um þá gull og gersemar ef þeir heftu
ekki för þeirra en ef maðurinn þáði
gjafir álfanna trylltist hann og hvarf i
kletta með þeim. Ef maðurinn hins
vegar stóðst allar freistingarnar stóð
hann uppi að morgni með allt það sem
álfarnir höfðu boðið honum og geð-
heilsu sfna aðauki.
Sjálfsagt hafa þeim álfum er stóðu f
flutningum undir Hlíðarfjalli við Akur-
eyri síðastliðna Jónsmessunótt ekki
gengið flutningarnir vel. Ekki var það
þó vegna þess að einhver sæti þar á
krossgötum og varnaði þeim
framgangs heldur vegna þess að við
rætur fjallsins, í malargryfjum sem þar
eru, var harðasti jeppakarl norðan
heiða að æfa sig f torfæruakstri með
viðeigandi hávaða og látum.
Jeppakarlinn heitir Halldór
Jóhannesson og er hann reyndar aðeins
27 ára gamall rafvirki sem búinn er að
vera með ólæknandi bíladellu f meira
en 10 ár. Áður fyrr voru það fófksbflar
sem heilluðu hug Halldórs og hefur
hann átt, gert upp og endurbyggt
marga bíla. Meðal þeirra merkilegri má
nefna ’68 Barracudu Formula LS með
340 cid; vél og ’69 AMC Javelin sem
Halldór endurbyggði allan. Upphaf-
lega var sá bill með 292 cid; vél en
þegar Dóri hafði lokið við breytingar á
honum var komin 1 hann 401 cid. vél
með ýmsum græjum. Nokkrar breyt-
ingar höfðu verið gerðar á boddíinu og
billinn klæddur með plussi að innan.
Það fór líka svo að billinn var kosinn
fallegasta tryllitækið á bílasýningu
Bflaklúbbs Akureyrar sumarið 1978.
En þar sem engin kvartmílubraut er
fyrir norðan og takmarkaðir mögu-
feikar til að njóta þess að aka og keppa
á kraftmiklum fólksbíl ákvað Halldór
að ná sér í jeppadellu. Ekki var erfitt
fyrir hann að taka þá ákvörðun og kom
þar margt til. Við Akureyri er bezta
sandspyrnubraut landsins og árlega er
haldin þar tvisvar torfærukeppni. Auk
þess vildi Halldór eiga farartæki sem
hann gæti komizt á hvert sem hann
vildi og hvenær sem hann vildi. Ekki
var erfitt fyrir Halldór að velja sér
tegund þegar hann keypti sér jeppa þar
sem mörg ár eru síðan AMC-púkinn
tók sérvaranlega bólfestu f honum.
Jeppinn sem Halldór á nú er AMC Jeep
árg. ’72 og hefur hann átt jeppann f
rúmt ár. í fyrrasumar keppti hann á
bílnum, óbreyttum, í sandspyrnu og
torfærukeppni. Gekk honum vel og
sigraði m.a. í haustkeppni Bflaklúbbs-
ins.
Undirvagn
En Halldór er einn af þessum mönn-
um sem aldrei getur látið standardbíl í
friði og leitast ávallt við að betrumbæta
framleiðslu bílaverksmiðjanna. í fyrra-
haust var bflnum stungið inn í skúr og
þegar hann kom þaðan aftur i vor var
hann gerbreyttur. Var jeppinn rifmn f
smáparta og síðan byggður upp á nýtt
frá grunni. Grindin var styrkt með því
að sjóða 6 mm járn ofan og neðan á
hana, auk þess sem aukabitar voru
settir f grindina að framan og aftan til
styrktar. Á grindina voru settar nýjar
fjaðrir úr Scout-jeppa og eru þær mun
stífari en upprunalegu fjaðrirnar.
Spicer 30 hásingin, sem var að framan,
var fjarlægð og var Spicer 44 kúfan sem
var í afturhásingunni sett í framhásing-
una. Framkvæmdi Hafsteinn
Hafsteinsson það vandasama verk en
hann sá reyndar um alla rennismíði sem
„Það er betra að brjóta eitthvað á æfingu heldur en I keppni,” sagði Halldór enda var aksturslag hans þannig að ætla mætti
að hann hygðist rústa jeppann þegar hann þjösnaðist um gamlar þrautir úr torfærukeppni bilaklúbbsins.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
framkvæmd var við jeppann. 1 fram-
hásingunni er oowerlocklæsing og
krómstál öxlar. Að aftanverðu var
sett Spicer/Dana 60 hásing, einnig með
powerlocklæsingu, og er drifhlutfallið í
báðum hásingunum 4.56:1. Við hvert
hjól voru settir tveir stillanlegir Gabriel
Adjustible E demparar. Undir bflnum
verður svo gripgrind (Ladderbars) og
prjónagrind (Wheelbars) að aftan f
spyrnunni.
Boddí
Yfirbyggingu bilsins var ekki breytt
að öðru leyti en því að styrktarbitar
voru settir undir boddfið þar sem velti-
grindin festist I það. Veltibúrið er
þriggja boga og fimm punkta öryggis-
belti eru f jeppanum. í mælaborðið var
bætt við nokkrum mælum til að
fylgjast með ástandi vélarinnar. Voru
það Dixco snúningshraðamælir, olfu-
þrýstimælir, voltmælir og vatnshita-
mælir frá Smith.
Gangverk
Upprunalega 304 cid. vélin var all-
snarlega fjarlægð og f hennar stað sett
401 cid. vél. Halldór vildi halda sig við
AMC-vél en það eru ótrúlega margir
sem setja Ford, Chevrolet eða Chrysler
vélar f jeppa. Undir vélina setti Halldór
stækkaða olfupönnu og við sveifarás-
inn skvettipönnu. Sveifarásinn er úr
stáli og stimpilstangirnar einnig. Nýjar
TRW-legur voru settar f vélina og eru
stangarlegurnar í standardstærð en
höfuðlegurnar f ,,olo” yfirstærð. High
Performance TRW olfudæla sér um að
smyrja legurnar. Borvídd strokkanna
er óbreytt og er þjöppuhlutfall stimpl-
anna 8.5:1. Þeir eru frá TRW og eru
þrykktir. Stimpilhringirnir eru einnig
frá TRW. Heddin á vélinni eru portuð,
þ.e. göngin f þeim eru stækkuð, og
framkvæmdi Hafsteinn það verk.
Ventlarnir eru frá TRW og eru sog-
ventlarnir 2,02” á stærð og blásturs-
ventlarnir 1,78”, í götuakstri og tor-
færukeþpni er kambás frá Crane í vél-
inni sem er 306 gráða heitur og hefur
0,480” lyftihæð. Undirlyfturnar eru
einnig frá Crane og ventlagormarnir.
Undirlyftustangirnar, rockerarmarnir
og stykkin sem halda ventlunum og
gormunum saman eru standard. Ofan á
vélinni er þá Torker soggrein með 780
cfm Holleyblöndungi.
Þegar jeppinn er notaður 1 spyrnu-
keppni er á vélinni Edelbrock Tunnel
Ram soggrein með tveimur 600 cfm
Holley blöndungum. Annar kambás er
einnig notaður ásamt öllum fylgihlut-
um og er það dót allt frá Crane. Ásinn
er Roller kambás, 326 gráða heitur,
með 0,608” lyftihæð. Roller undirlyft-
þátt í kvartmílu ætlar Halldór einnig að
reyna hann þannig. Þá verða mjóu
dekkin undir jeppanum að framan og
ellefu og hálftommu breiðir slikkar að
aftan.
Mikil vinna fór í að byggja bílinn
upp og ekki framkvæmdi Halldór hana
alla sjálfur. Naut hann þar dyggilegrar
aðstoðar vina sinna. Auk Hafsteins
aðstoðuðu hann þeir Sigurður Vil-
hjálmsson, öðru nafni Smurlaugur
kvarðaforingi, Sigursteinn Þórsson og
Jóhannes Jóhannesson, bróðir Hall-
dórs.
Aðeins er farið að reyna á jeppann
og eins og búast mátti við hafa komið
fram ýmsir byrjunarörðugleikar. í vor-
torfærukeppninni á Akureyri féll
Halldór fljótlega úr keppninni þegar
hann braut jókið við afturhásinguna og
í torfærukeppninni á Hellu tók jeppinn
upp á þeirri ónáttúru að drepa á sér I
tíma og ótíma. Siðar kom I ljós að
þrýstijafnari í eldsneytiskerfinu stóð á
sér og olli vandræðunum. Þrátt fyrir
þessa erfiðleika náði Halldór öðru sæti
keppninnar. Þeir félagar vinna stöðugt
að lagfæringum og endurbótum á jepp-
anum. Og þegar fullkomið samræmi
verður komið í gang jeppans og akstur
Halldórs mega keppinautar hans fara
aðvara sig.
Jóhann Kristjánsson.