Dagblaðið - 05.08.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1981.
27
Útvarp
Sjónvarp
»
IDNAÐARMÁL,—útvarp kl. 11,00 ífyrramálið:
Sjóefnavinnsla
og fy rirhugað-
artilraunir:
Iðnaðarmál verða á döfinni í fyrra-
málið og ræða þeir Sveinn Hannesson
og Sigmar Ármannsson um sjóefna-
vinnslu á Reykjanesi. Fyrst ræða þeir
við Guðmund Einarsson verkfræðing
sem er stjórnarformaður Undirbún-
ingsfélags saltverksmiðju á Reykjanesi
hf. Guðmundur gerir þá grein fyrir
hvernig tilraunir í saltverksmiðjunni
hafa gengið og ræðir um fyrirhugaða
sjóefnavinnslu á Reykjanesi. Einnig
verður talað um annan efnaiðnað sem
verður í tengslum við sjóefnavinnslu og
tilraunir til að nota önnur efni en
salt. Má þá t.d. nefna tiiraunir til að
rykbinda vegi úr sérstökum efnum úr
sjónum og sem vegagerðin er þegar
farin að nota.
Þá ræða þeir við dr. Sigurð Péturs-
son sem hefur lýst yfir efasemdum
varðandi rekstrargrundvöll í þessari
saltvinnslu. M.a. óttast hann að saltið,
sem er framleitt i saltverksmiðjunni,
hafi áhrif á saltfiskútflutning og jafn-
vel skemmi saltfiskinn. Telur hann að
verksmiðjan framleiði lélegra salt en í
aðrar slíkar verksmiðjur. En Guð-
mundur bendir hins vegar á .að til-
raunir, sem hafa farið fram, hafi
gengið vel og saltið reynzt mjög fram-
bærilegt.
Verður þá rætt um allt varðandi
þessa fyrirhuguðu sjóefnavinnslu.
-LKM
Saltverksmiðjan á Reykjanesi og sjóefnatiiraunir verða á dagskrá útvarpsins i fyrramálið.
Skemmir saltið saltfiskinn?
SUMARVAKA, - útvaip kl. 20,00:
SÖNGVAR, UÓD 0G
ÆVIMINNINGAR
Sumarvakan í kvöld hefst með því að
Jóhann Konráðsson syngur lög eftir
Jóhann Ó. Haraldsson og Guðrún
Kristinsdóttir leikur með á píanó. Þvi
næst les Þorsteinn Matthiasson frásögu
sem hann skráði eftir Hirti Sturlaugs-
syni frá Snartartungu og heitir Áttundi
desember 1925.
Þá les Oddný Guðmundsdóttir frá
Ingimarsstöðum í Þórshafnarhreppi
kvæðabálk úr nýrri ljóðabók sinni,-
„Aldarháttur”.
Síðan kemur þáttur sem heitir
Smalar á roðskóm og er frásöguþáttur
Jóhann Konráðsson syngur einsðng i
Sumarvökunni. Einnig koma þar fram
Árnesingakórinn i Reykjavik, Valborg
Ben tsdóttir, Þorsteinn Matthíasson og
Oddný Guðmundsdóttir.
Valborgar Bentsdóttur. Segir hún frá
eftirminnilegum æskuminningum
sfnum þegar hún og Bjarni bróðir
hennar sátu yfir fé. Á þeim tíma voru
ærnar mjólkaðar kvölds og morgna og
tekur hún þá sérstaklega fyrir einn dag
sem er henni eftirminnilegastur. Þessar
minningar eru fá Haukadal i Dýrafirði
árið 1920.
Þegar Valborg er búin að segja frá
því hvernig kvíannir voru og hvernig
hestarnir eyðilögðu allt nestið fyrir
þeim systkinum verður kórsöngur
síðastur á dagskrá Sumarvöku. íslenzk
lög verða sungin af Árnesingakórnum í
Reykjavík við pianóundirleik Jónínu
Gísladóttur. Stjórnandi er Þuriður
Pálsdóttir.
í gamla daga voru klndur mjólkaöar
kvölds og morgna og búið tll smjör og
skyr sem fólkl þótti með afbrigðum
gott. f Sumarvökunni segir Valborg
Bentsdóttir frá kvíönnum.
Mynd: Ragnar Th.
I$.f Jónsson
& Co. h.f.
Höfum til afgreiðslu nú
þegar nokkra uppgerða
STILL lyftara. Greiðslu-
kjör.
Upplýsingar á skrifstofunni,
Hverfisgötu 72. Sími 12452
og 26455.
ÞINGEYRI
Nýr umboðsmaður á Þingeyri,
SIGURÐA PÁLSDÓTTIR,
Brekkugötu 44, sími 94-8173.
MMBIABIB
Frá Sjálfsbjörg,
félagi fatíaðra / Reykjavík
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar býður Sjálfsbjargarfélögunum veiði í
Djúpavatni og afnot af veiðihúsi frá kl. 22.00, 10. ágúst til kl. 22.00, 13.
ágúst.
Nánari uppl. í síma 17868.
LAUS STAÐA
Staða bókavarðar í Háskólabókasafni er laus til umsóknar.
Bókaverðinum er ætlað að sinna upplýsingaþjónustu og
notendafræðslu sem aðalverkefni. Laun skv. launakerfi
starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um
námsferil og störf, sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, fyrir 15. september 1981.
Menntamálaráðuneytið,
29. júK 1981.
Seffossbúar
og nágrannar
Dagana 6. og 7. ágúst verður kannaður áhugi á stofnun
öldungadeildar við fjölbrautaskólann á Selfossi. Um getur
orðið að ræða kennslu í flestum bóknámsgreinum fram-
haldsskóla eftir áhuga og þátttöku. Hafið samband við
skrifstofuna í Iðnskóla Selfoss milli kl. 10 og 16 ofan-
greinda daga. Skólameistarí