Dagblaðið - 05.08.1981, Síða 28
Indrifli setur nýja meflð 6 töfratening-
inn: byrja á að fá hvitan kross á tening-
inn. DB-mynd: Einar Óiason
Nýrtöfratenings-
methafi:
Bætti metið
umnær
helming
— búinn að slíta þrem
teningum á
fjórum mánuðum
— Ég komst fyrst i kynni við töfra-
teninginn fyrir um fjórum mánuðum
síðan og á þessu tfmabili hef ég átt
fjóra teninga. Þrír eru ónýtir vegna
ofnotkunar og sá fjórði orðinn ansi
slitinn, sagði Indriði Björnsson, 13 ára
piltur sem býr í Búrfellsvirkjun, en
hann leit við á ritstjórn DB í því skyni
að slá met það sem Guðmundur
Haukur Magnason setti hér á
dögunum.
Guðmundur Haukur leysti gátu
töfrateningsins á þrem mínútum og
tuttugu sekúndum. Þegar í fyrstu til-
raun bætti Indriði um betur og raðaði
öllum sex hliðum teningsins rétt eftir
aðeins 1.48.6 mínútu. í þessari tilraun
notaði hann sinn eigin tening, vel
þjálan, en i næstu tveim tilraununum
varð hann að notast við nýrri tening
sem DB lagði honum til. Árangurinn
varð ekki síðri, 1.49.4. og 2.02.0. 1
siðustu tilrauninni notaði Indriði svo
eigin tening og náði þá sinum bezta
tlma að þessu sinni, 1.45.5 mínútu.
Þess má geta að teningnum var alltaf
ruglað af tveimur eða fleiri blaðamönn-
um DB og þvi ekkert létt verk að greiða
úrþeirriflækju.
Indriði sagði að það hefði tekið sig
um einn mánuð að læra á teninginn.
Hann hefði komist yfir leiðbeiningar á
sænsku sem hann hefði stúderað og
sfðan einn daginn hefði allt smollið
saman.
— Ég byrja alltaf á að fá hvftan
kross á teninginn, sagði Indriði. —
Reyni svo við hvítu hornin og þvi næst
miðjuna. Þá raða ég botninum, en
síðan er afgangurinn mikið til handa-
vinna.
Þess má geta að Indriði segist hafa
raðaö teningnum á 55 sekúndum er
honum tókst bezt upp og oft á undir
einni minútu.
-ESE.
Tekinn með
600 grömm
af hassi
Sex hundruð grömm af hassi fundust
innan klæða á 28 ára gömlum
íslendingi sem kom með flugvél frá
Luxemburg til íslands þann 27. júlí.
Hann hafði farið i stutta ferð til
Amsterdam þar sem hann mun hafa
keypt hassið. Sennilega er það upp-
runnið í Marokkó. Rannsóknarlögregl-
unni i Keflavik höfðu borizt spurnir af
•því að hann mundi hafa fikniefni i
fórum sínum og var hann handtekinn í
flughöfninni. Hann hefur verið
úrskurðaður í tfu daga gæzluvarðhald
meðan mál hans verða athuguð. Komið
hefur í ljós að hann hefur áður verið
kærður fyrir svipað mál en dómur i þvf
mun enn ekki vera fallinn.
Rannsóknarlögreglan í Keflavlk telur
að hassið, sem maðurinn var með,
mundi seljst fyrir um hundrað þúsund
krónur á markaði hér. -IHH.
Búlgaríuferöir
Iseargo ekki
auglýstar aftur
\
—enda hafði félagið ekki leyfi stjóravaida til að fara þær
„Iscargo hefur ekki auglýst þessar un er hann var inntur eftir lyktum hætt við ferðirnar eða selt þær i gegn-
ferðir aftur, enda hefur flugfélagið máls þess er spannst út af fjórum um einhverja ferðaskrifstofu. Að
ekki ferðaskrifstofuleyfi. Við létum ferðum til Búlgaríu sem Iscargo sögn Ólafs er það ekki mikið mál að
nægja að tala við framkvæmdastjóra auglýsti í Morgunblaðinu 26. júlí. útvega ferðaskrifstofuleyfi, helzt að
félagsins en fjölmörg mál sem þetta Ferðirnar átti að fara 6. og 20. bankaábyrgð, sem er 400 þúsund
koma upp á hverju árt,” sagði Ólafur ágúst og 10. og 24. september og krónur og skylt er að leggja fram,
Steinar Valdimarsson í samgöngu- skyldi hver standa i 18 daga. Ólafur geti orðið fjötur um fót.
ráðuneytinu f samtali við DB f morg- sagðist ekki vitá hvort Iscargo hefði .
Vilmundur Gyifason ritstjóri ásamt biaðamönnunum Garðari Sverrissyni og Helga Má Artúrssyni (t.v.) á ritstjórn Alþýðu-
biaðsins i morgun. DB-mynd Einar Ólason.
Enn kemur Alþýðublaðið ekki ut:
Hljótum að óska eftir
traustsyfirlýsingu
—segir Vilmundur Gylfason sem kveðst hafa verið rekinn
af blaðinu fjórum sinnum sama daginn
„Ég þekki þá menn sem við eigum
í höggi við og við á ritstjóm Alþýöu-
blaðsins báðum þá um snyrtilega orð-
aða traustsyfirlýsingu. Hún hefur
látið á sér standa og þvf kom Alþýðu-
blaðið ekki út,” sagði Vilmundur
Gylfason ritstjóri Alþýðublaðsins í
samtali við DB í morgun.
Vilmundur sagði að deilurnar um
Alþýðublaðið hefðu nú staðið f
rúman mánuð. Þeir forystumenn Al-
þýðuflokksins væru til sem hefðu
mislikað stórlega sú róttækni f verka-
lýðsmálum sem Alþýðublaöið hefði
boðað og það hefði þvi ekki verið
nein tilviljun þegar blaðið var
stöðvað sl. miðvikudag, heldur hefðu
þeir haldið að þeir hefðu gripið rit-
stjórn Alþýðublaösins „i bólinu”.
„Ég var rekinn fjórum sinnum i
votta viðurvist umræddan miðviku-
dag,” sagði Vilmundur, ,,en ég neit-
aði að yfirgefa Alþýðublaðið fyrr en
bannaða blaöið kæmi út. Þessir
menn reyndu þá að fá annan blaða-
mann AÍþýðublaðsins til að taka við
ritstjórn, með þvi skilyrði að ég
færi,” sagði Vilmundur.
Vilmundur sagði að þessari mála-
leitan hefði verið hafnað en á föstu-
dag hefði náðst samkomulag ,,þar
sem framkvæmdastjórnin leyfði að
bannaða blaðiö kæmi út sem kálfur
með Alþýðublaðinu og sérmerkt, auk
þess sem við samþykktum að ögra
ekki þessum mönnum með þvi að
skrifa um næturheimsóknina í prent-
smiðjuna.
Á sama tima og þetta gerðist höfðu
þessir menn samband við Jón Bald-
vin Hannibalsson ritstjóra þar sem
hann var í sumarfrfi á ítalfu. Varla
hafa þeir veriö að spyrja hann um
heilsufar páfans,” sagði Vilmundur.
,,Við Jón Baldvin höfðum rætt um
það okkar i milli að ég tæki að mér
ritstjóm fram til a.m.k. 10. ágúst i
samræmi við sumarleyfi hans og öll-
um var fullkunnugt um þetta sam-
komulag okkar,” sagði Vilmundur.
„Eftir að Jón Baldvin kom heim og
kynnti sér málavöxtu þá kom f ljós
það sem við á ritstjórninni þóttumst
raunar vita að hann skildi róttæka
pólitik og kynni auk þess pólitíska
mannasiði. Þrátt fyrir allt þetta
settist ég hér inn með minni ritstjóm f
gærmorgun en ég held að allir hljóti
að skilja að við hljótum að óska eftir
traustsyfirlýsingu til þess að blaðið
geti haldið áfram að koma út með
eðlilegum hætti.”
-ESE
fíjálst, úháð daghlað
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST1981
Slgurður Harðarson.
Léztíum-
ferðarslysi við
Kögunarhól
Maðurinn sem lézt í bflslysinu við
Kögunarhól i fyrrakvöld hét Sigurður
Harðarson, 23 ára, til heimilis að
Fjölnisvegi 18 i Reykjavfk.
Maðurinn og barnið f ameríska biln-
um voru lögð inn á gjörgæzludeild. Er
maðurinn illa brotinn, en barnið fær að
faraheimfdag.
Vegna misskilnings var sagt í DB f
gær að slysið hefði átt sér stað klukkan
9.00 í gærmorgun, en hér skal leiðrétt
að slysið varð i fyrrakvöld kl. 21.00.
-LKM
,2i.Q ef
|vín|nincur1
lyiKUHVEBBI
Vinningur vikunnar
Tíugíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vinningur I þessari viku er 10
gira Raleigh reiðhjól frá Fálkan-
um, Suðurlandsbraut 8 í Reykja-
vik. 1 vikunni verður birt á þessum
stað I blaðinu spuming tengd smá-
auglýsingum Dagblaðsins. Nafti
heppins áskrifanda verður slðan
birt daginn eftir I smáauglýsingun-
um og gefst honum tœkifœri á að
svara spumingunni. Fylgizt vel
með, áskrifendur. Fyrir nœstu
helgi verður einn ykkar glœsilegu
reiðhjóli ríkari.
hressir betur,