Dagblaðið - 06.08.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Konungbollir Bretar. Þótt brúðkaupið
kosti skildinginn ætti þokkalegasta
summa að renna i rikissjóð vegna hins
mikla aðdráttarafls sem brúðkaupið
hafði fyrir ferðamenn hvaðanæva úr
heimi.
naiuiu iu KirKju i upnum nesivagoi.
Svipmyndir úr brúðkaupi aldarinnar:
Erkibiskupinn af Kantaraborg, Robert Runcies, gaf Karl og Díönu saman.
A þökum voru hvarvetna lögreglumenn
er fylgdust gaumgæfilega með manna-
ferðum og vöktu yfir hverju fötmáli brúð-
hjónanna og hinna tignu gesta.
Drottningarmóðirin, sem verður 81 árs
gömul i vikunni, grét ofurlitið, eins og
kvenna er siður við brúðkaup.
Drottningarmóðir felldi tár er
erkibiskupinn gafhjónin saman
Brúðkaup aldarinnar var það kallað
þegar þau Karl Bretaprins og lafði
Dlana Spencer gengu í það heilaga í
Pálskirkju í London i síðustu viku. Víst
er að brúðkaupið var hið glæsilegasta
enda ekkert til sparað að gera það sem
bezt úr garði. En dýrt var það. Sam-
kvæmt nýjustu fréttum frá London var
kostnaður við brúðkaupið jafnvirði
14,25 milljónum króná.
Kostnaðurinn skiptist þannig að
öryggisgæzlan kostaði 4,1 milljón,
blóm og skreytingar 700 þúsund
krónur, brúðkaupsterta og morgun-
verður tæplega 300 þúsund krónur,
brúðkaupsferð með konungssnekkj-
unni Britanniu rúmlega tvær milljónir
króna, hringur Díönu 400 þúsund
krónur og kostnaður við brúðarmeyj-
arnar nam tæplega 70 þúsund krónum.
Aðrir útgjaldaliðir voru minni.
En burtséð frá smásmugulegum at-
hugasemdum um kostnaðinn var brúð-
kaupið milljónum manna um allan
heim afbragðs skemmtan og kom kon-
unghollum Bretum til að gleyma hinu
bágborna efnahagsástandi sem nú rikir
í landinu. En frekari orð eru óþörf,
myndirnar segja meira en nokktlf orð.
Lafði Dfana Spencer þrammar upp
kirkjutröppurnar, fklædd hinum
glæsilega brúðarkjól.
FÓLK
Lundúnabúar voru f hátfðarskapi. og
þessir tveir tóku að sér að mála brezka
fánann á andUt fólks fyrir einungis 14