Dagblaðið - 13.08.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
5
ieppa stolið í Reykjavík 22. júlí og ekkert vitað um af drif hans:
EINS OG JÖRDIN HAFI
GLEYPT WAGONEERINN
-tryggingafélög
bætaaðeins
stolna bfla
semeru
kaskótryggðir
„Engar upplýsingar liggja fyrir hvað
varð af bílnum og tjónið lendir að fullu
á mér,” sagði Bjarni Marteinsson arki-
tekt í samtali við DB.
Bjarni er eigandi Wagoneerjeppa, R-
5003, árgerð 1974, sem stolið var frá
Öldugötu i Reykjavik aðfaranótt 22.
júlí. Til bílsins hefur ekkert spurzt
síðan þrátt fyrir auglýsingar og eftir-
grennslan lögreglu.
Bíllinn er dökkbrúnn að lit, ljós-
klæddur að innan, á breiðum dekkjum
en ekki upphækkaður. Nýr Wagoneer-
jeppi kostar 200 þús. krónur. Af því
má sjá að tjón Bjarna er mikið og til-
finnanlegt, finnist ekki bíllinn.
„Við höfum verulegar áhyggjur af
þessum bíl,” sagði Héðinn Skúlason
lögreglufulltrúi í gær.
„Þess eru ekki dæmi fyrr að stolið sé
Wm
Nýi Hafnarfjarðar
vegurinn opnaður
innan skamms
Framkvæmdum við hina nýju ak-
braut Hafnarfjarðarvegar í Garða-
bæ hefur miðað mjög vel að undan-
förnu og er búizt við því að akbrautin
verði opnuð fyrir umferð um eða eftir
næstu helgi.
— Malbikunarframkvæmdum lýkur
annað kvöld og þá er stutt í að ak-
brautin verði opnuð fyrir umferð,
sagði Rögnvaldur Jónsson verkfræð-
ingur hjá Vegagerðinni er DB hafði
samband við hann. Sagði Rögnvaldur
að um leið og hin nýja akbraut kæmi í
gagnið, þá yrði eystri akbrautinni sem
nú er ekið um lokað og framkvæmdir
hafnar við undirgöng í framhaldi af
undirgöngunum undir nýju akbraut-
inni. Væri áformað að þessu verki yrði
lokið fyrir 1. október, en þá væri hægt
að aka á fjórum akreinum um Hafnar-
fjarðarveg allt að Hraunsholti í
Garðabæ.
Búið er að bjóða út vegarlagninguna
um Hraunsholt og verða tilboð opnuð
21. ágúst næstkomandi. Félagsmála-
ráðherra frestaði vegalagningunni á
þesssum stað í sumar vegna mótmæla-
aðgerða íbúanna en ef ekkert óvænt
kemur upp þá ættu framkvæmdir að
geta hafizt 1. september.
-ESE.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáUgötu 49 — Sími 15105
Ibúð í Kaupmannahöfn
er til leigu frá 1. september til 1. júli nk. á góðum kjörum.
Heppileg fyrir fjölskyldu, sem færi utan til framhalds- eða
eftirmenntunar.
Upplýsingar hjá auglýsingaþjónustu DB i síma 27022 eftir
kl. 12.00.
H—567
Bjarni Marteinsson arkitekt. Myndin er
tekin á samkomu Félags harmóniku-
unnenda á Hótel Borg. Bjarni er nikkari
mikill og formaöur félagsins.
DB-mynd: Einar Ólason.
„alvöru bíl” þannig að ekki fínnist
tangur né tetur af honum. Komið hefur
fyrir að bílar hverfi sem eru númers-
íausir og algjör „hræ”. Það eru alltaf
nokkur brögð að bilaþjófnuðum.
Þjófar stela jafnt læstum bílum sem
ólæstum. Jafnvel kemur fyrir að bílum
sé stolið sem eru með læstu stýri.
Læsingin er þá brotin. Yfirleitt finnast
stolnir bílar eftir 1—2 daga. Þó eru
dæmi um að við höfum leitað bíla í 2—
3 vikur. Enginn annar bíll er ófundinn í
augnablikinu en Wagoneer Bjarna.”
Héðinn sagði lögregluna engar stað-
festar upplýsingar hafa fengið um
ferðir stolna jeppans. Fregnir hafi þó
birst af honum á ferð í Hvalfirði og á
Þingvöllum. Það væru óstaðfestar
upplýsingar.
Kristján Guðmundsson sölumaður
bifreiðatrygginga hjá Samvinnutrygg-
ingum sagði eigendur bíla aðeins fá
bætur vegna stolinna bila væru þeir
kaskótryggðir. Bíll í fullri kaskótrygg-
ingu yrði þannig bættur að fullu, hyrfi
hann gersamlega af völdum þjófnaðar.
Hafi eigandinn tryggt bíl sinn í kaskó
með eigin áhættu að hluta, yrði bíllinn
bættur í samræmi við eigináhættuna.
-ARH.
LADA1600 CUUOI
Með sérstökum samning-
um við LADA-verksmiöj-
urnar hefur tekist að fá af-
greidda til islands Lada
1600 sem sérstaklega hefur
verið framleiddur fyrir
Canada markað. Lada 1600
Canada er að auki búinn
nýja /^OZON" blöndungn-
um sem sparar bensín-
notkun um 15% án nokkurs
orkutaps.
Verð til öryrkja
ca. 48.800
Munið! Varahlutaþjónusta okkar er i sérflokki.
Það var staðfest i könnun Verð/agsstofnunnar.
Verð kr. 70.600
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
fpóíuTaíN
Sudurlandsliraul 14 - llrykjaiik - Sími :tU4»4NI
\»