Dagblaðið - 13.08.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
Tílkynntngar
GENGIÐ
Þórólfur Ólafsson hæstaréttarlögmað-
ur lézt að heimili sínu 6. ágúst sl. Hann
fæddist i Reykjavik 14. desember 1909.
Foreldrar hans voru hjónin Ólafur
Árnason og Margrét Friðriksdóttir
Möller. Þórólfur stundaði aðallega lög-
fræðistörf og málflutninga. Hann var
skrifstofustjóri ríkisskattanefndar,
vararíkisskattstjóri, en eftir 1973 rak
hann svo lögmannsskrifstofu í Reykja-
vík til dauðadags. Þórólfur kvæntist
1942 Þorgerði Gísladóttur. Þau eign-
uðusteitt barn, Geir. (
Maria Salómonsdóttlr lézt að Hrafn-
istu 2. ágúst. Hún var fædd í Drápu-
hlíð i Helgafellssveit 21. febrúar árið
1891, dóttir hjónanna Guðrúnar
Sigurðardóttur og Salómons Sigurðs-
sonar. Maria átti lengst af heima í
Fjalakettinum, Aðalstræti 8, en fluttist
síðar á Lokastíg 24 með Sæmundi
Runólfssyni. Þegar hann lézt árið 1966
fór hún á Hrafnistu þar sem hún
andaðist.
Slgurður Sæmundsson frá Hallorms-
stað í Vestmannaeyjum verður
jarðsunginn frá Hábæjarkirkju,
Þykkvabæ, 15. ágústkl. 14.
Skeggi Ásbjarnarson, fyrrverandi
kennari, Laugarnesvegi 40, verður
jarðsunginn frá Laugarneskirkju 14.
ágúst ki. 15. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Hjartavernd eða Styrkt-
arfélag vangefinna í Reykjavík.
Sigurður Harðarson, Fjölnisvegi 18,|
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunnij
14. ágúst kl. 13.30.
Guðni Ólafsson, fyrrum póstur f Vest-
mannaeyjum, andaðist í Landakots-
spitala 12. ágúst.
Steinunn Magnúsdóttir, Eyvík Grims-
nesi, lézt 8. ágúst I Hafnarbúðum.Út-
förin verður gerö frá Stóru-Borgar-
kirkju 15. ágúst kl. 14.
Málverkasýning
í Eden í Hveragerði
Gunnar Halldór Sigurjónsson hefur opnað mál-
verkasýningu i Eden í Hveragerði. Á sýningunni eru
40 myndir og eru þær flestar til sölu. Þetta er
níunda einkasýning Gunnars Halldórs en auk þess
hefur hann tekið þátt i samsýningum. Sýningin
verður opin til 23. þ.m.
Árndis Árnadóttir frá Bildudal lézt 6.
ágúst. Hún verður jarðsungin frá
Bildudalskirkju 14. ágúst kl. 14.
Guðný Bjarnadóttir frá Hraunsnefi
verður jarðsett frá Borgarneskirkju 15.
ágúst kl. 14.
Kjartan Ólafsson héraöslæknir 1 Kefla-
vik er látinn, 60 ára að aldri. Hann var
sonur hjónanna Ólafs Ólafssonar
skólastjóra á Þingeyri og Kristinar
Guðmundsdóttur. Hann lauk
læknisprófi frá Háskóla fslands 1949
og var héraðslæknir á ýmsum stöðum,
síðast i Keflavikurhéraöi, einnig var
hann læknir elliheimilisins Hlévangs i
Keflavik. Hann var formaður ýmissa
félagshópa og Garðprófastur 1947.
Eftirlifandi kona hans er Ásdís Helga
Jóhannsdóttir og varð þeim þriggja
barna auðið.
Ferflafélag íslands
Helgarferðlr 1,—16. ágúst:
1. Snæfellsnes — Helgrindur (873 m). Gengið á
Helgrindur frá Grundarfirði. Gist i tjöldum.
2. Hveravcllir — Þjófadalir. Gist í húsi.
3. Landmannalaugar — Eldgjá. Gist í húsi.
4. Þórsmörk. Gönguferöir við allra hæfi. Gist í húsi.
Álftavatn á Fjallabaksleið syðri. Skoðunarferðir um
nágrennið. Gist í húsi.
Gönguferð: Landmannalaugar — Þórsmörk
14.—19. ágúst (aukaferö). Gist i húsum. Farmiða-
sala og allar upplýingar á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Grafískir
kvikmyndadagar
Almenn kvikmyndasýning. Föstudaginn 14. ágúst
kl. 20:00—23:00 að Kjarvalsstöðum. „Framleiðsla
grafískra kvikmynda”.
Sýndar verða kvikmyndir sem fjalla um grafiskar
kvikmyndir og grafiska kvikmyndagerðarmenn. Hér
er um aö ræða kvikmyndir sem skýra og sundur-
greina þessa listgrein. — Hverjir gera slíkar kvik-
myndir? Hvernig eru þær gerðar og hvers vegna?
MYNDALISTI:
The Light Fantastlck: Yfirgripsmikil kvikmynd um
sögu grafískrar kvikmyndagerðar hjá kanadísku
kvik myndastofnuninni sem hvaö mest hefur stuðlað
aö efiingu og framþróun þessarar listgreinar síðustu
árin.
Moving Pictures: Heimildarmynd um framleiöslu
grafiskrar kvikmyndar sem unnin var af pólska
grafikhönnuðinum og kvikmyndageröarmanninum
Jan Lenica.
The Eye Hears, The Ear Sees: Yfirlitsmynd um
brautryðjandann Norman McLaren hjá kanadísku
kvikmyndastofnuninni.
Sannar sögur í Suðurkvísl
Ennþá þykir okkur Löður
skemmtilegra en Dallas. Þessir
sannrasöguþættir úr Suðurkvisl eiga
þó margt sameiginlegt með sápunni
— helzti munurinn sýnist manni vera
sá aö hlátursmaskínan er ekki sett í
gang með vissu millibili í Dallas eins
og I Löðri. Og brandaramir eru ekki
jafngóöir.
Skrítin samsetmng þessir Dallas-
þættir. Ef ég man rétt var fólk
nokkuð almennt þeirrar skoðunar
þegar þessar sönnu sögur byrjuðu, að
þetta „hlyti nú að lagast”. Satt að
segja hélt ég það llka — mér var að
öðrum kosti lífsins ómögulegt að
skilja hvað hafði valdið miklum
vinsældum Ewing-fjölskyldunnar um
heim allan. Ég skal játa það hér og nú
að ég skil það ekki enn — Tommi og
Jenni voru mínir menn.
Dagskrá útvarps og sjónvarps í
gærkvöld var I rauninni ágæt fyrir
minn smekk. Fréttirnar ollu mér að
vísu nokkrum vonbrigðum — ekki
fyrir það aö fréttamenn ríkisfjöl-
miðlanna séu svona ógurlega lélegir,
heldur vegna þess eins að það er
hreinlega ekkert merkilegt í fréttum
þessa dagana. Meira að segja veður-
fréttirnar eru ómerkilegar í þessu
tilliti. Sjónvarpið er með þeim
ósköpum gert (eða er það
mannfólkið?) að setjist maður niður
og hafi ekkert annað sérstakt að gera
þá er allt að því erfitt að lyfta
sitjandanum upp úr mjúkum stólnum
aftur. Því sátum við sem fastast undir
Tomma og Jenna, auglýsingunum,
Dallas og meiri vondum
auglýsingum. Þá kallaði skyldan og á
meðan sýndur var mestur hlutí mynd-
ar um hjartasjúkdóma — sem ég var
búinn að einsetja mér að missa ekki
af — lá ég í símanum. Það gerði
kannski ekkert til — á hinum enda
línunnar var góður maður.
Óli lokbrá læddist svo inn tíl min
þegar Þorgeir fluttí þrettán-
hundraðasta Bítlaþáttinn. Segir ekki
meiraaf þvi.
A
k
Til Heiðurs Heðin Brú
í þórshöfn 1 Færeyjum eru út komin Bókatíðindi,
ritstýrð af Emil Thomsen, bókaútgefanda þar.
Tíðindin eru að þessu sinni helguð rithöfundinum
Heðin Brú sem nú er áttræöur og eru í þeim margar
greinar um ritstörf hans. Norski prófessorinn Reidar
Djupedal fjallar um uppbyggingu sagna hans, Carin
Sandquist frá Svíþjóö fjallar um málfar þeirra, Vé-
steinn Ólason dósent skrifar ,,Nokkur orð um góöan
granna”, Bjarne Nielsen Brovst, lektor frá Dan-
mörku, skrifar persónulegar endurminningar um
Brú, Hanus A. Samuelsen kennari i Færeyjum
sendir Heðin Brú kveðju og William Heinesen sendir
starfsbróður sínum skemmtilega kveðju.
Stórgjöf til
Krabbameinsfélagsins
Nýlega barst Krabbameinsfélagi Islands 30.000
krónur gjöf til minningar um hjónin Ingibjörgu Þ.
Guðmundsdóttur og Jóhann Kristófersson sem
bjuggu á Aöalbreið i Vestur-Húnavatnssýslu. Gef-
andinn óskaði þcss að nafn sitt yrði ekki birt.
Slíkar gjafir koma sér einkar vel fyrir félagið þar
sem þaö hyggst hefja húsbyggingu á lóð þeirri sem
Reykjavíkurborg úthlutaði þvi viö Hvassaleiti 1
sumar.
Það er ætlun stjórnarinnar aö láta allar gjafir sem
félaginu berast renna i húsbyggingarsjóö nema ein-
hvers annars sé eindregið óskaö.
Minna má á að gjafir til Krabbameinsfélagsins
eru skattfrjálsar.
Varð á heyi
Á vegum búreiknistofú landbúnaðarins hefur verið
reiknaöur framleiðslukokstnaður á heyi nú f sumar.
Miöaö viö vélbundið hey og að baggamir séu
teknir á túni er áætlaöur framíeiðslukostnaður kr.
1,40 á kg. Sé heyið komið i hlöðu, er kostnaöurinn
áætlaöur kr. 1,50 á kg.
Nýlistasafnið
Fimmtudaginn 13. ágúst kl. 20 opnar sýning á verki
eftir hollenzkan myndlistarmann, Paul MOller að
nafni. Hér er um svipað verk aö ræöa og þau sem
sýnd voru f safninu fyrr f sumar, þ.e. verk háö tíma
og rými. Verk þetta er svokölluð ..installation” og
gæti þýtt ..uppsetning”. Hér er á ferðinni install-
ation með videoi og er ugglaust fyrsta video-
installation sem sett er upp hér á landi. Þessi installa-
tion er afsprengi annarrar sem kallaöist ..Tracking”
og átti sér stað 1 járnbrautalest og hollenzku land-
slagi. Fjallar hún um skynjun á hreyfingu f tíma og
rými. Hér samanstendur hún af video-bandi Ijós-
myndum og texta.
Á fimmtudaginn 20. ágúst kl. 20 mun Paul Múller
framkvæma geming sem hann kallar „Black-
square” er samanstendur af verknaði hans og kvik-
mynd, þar á sér stað samspil hans og þess sem i kvik-
myndinni er. Sýningin er opin frá 16—22 virka daga
og 14—22 um hdgar, henni lýkur fimmtudaginn 20.
ágúst.
dóttur. Kvikmyndir Osvaldar Knudsens hafa verið
sýndar eftir hlé.
Yfirlitssýningunni á vcrkum Þorvaldar Skúla-
sonar lýkur um næstu helgi eöa sunnudaginn 16.
ágúst. Sýningin er opin daglega kl. 14—19.
Doppa
fór að heiman frá Stórholti 25 sl. miövikudag. Hún
er gulbrún á skrokkinn, með hvitar lappir og bringu.
Þeir sem kynnu að hafa séð hana eða geta gefið
einhverjar upplýsingar um ferðir Doppu, vinsamlega
hringií sima 14013.
85 ára er i dag, 13. ágúst, Sigurrós
Jónasdóttir, Ásvallagötu 53 hér i bæ.
Hún tekur á móti gestum sínum I kvöld
á heimili sonar sins og tengdadóttur aö
Heiðarbæ4Rvík.
AA-samtökin
I dag, fimmtudag, veröa fundir á vegum AA-sam-
takanna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010),
græna húsið kl. 14 og 21 (ungt fólk), Tjamargata 3
(s. 91-16373), rauða húsið kl. 21, Luagameskirkja
safnaðarheimili kl. 21, Kópavogskirkja kl. 21,
Akureyri, Geislagata 9 kl. 21, Dalvík, Hafnarbraut4
kl. 21, Blönduós, Kvennaskóli kl. 21, Patreks-
fjörður, Ráðhúsinu við Aðalstræti kl. 21, Sauöár-
krókur, Aöalgata 3 kl. 21, Seyðisfjörður, Safnaðar-
heimili kl. 21, Vestmannaeyjar Heimagata 24 kl.
20.30. Staðarfell Dalasýslu, Staðarfell kl. 19, og
Vopnafjörður, Hafnarbyggö 4 kl. 21.
Á morgun, föstudag, verður fundur 1 hádeginu að
Tjamargötu 5, kl. 12 og 14.
Kaupið hækkar um 8,92%
Kauplagsnefnd reiknaði út á fundi sínum i gær
visitöluhækkanir, sem koma til framkvæmda 1.
september næstkomandi. Hækkun verðbótavísitölu
er 8,92% við hærri mörk og hækka öll laun um þá
hlutfallstölu upp að 8.304 krónum. Lægri mörkin
em hins vegar 7,90% og kemur sú hækkun ofan á
laun fram yfir 8.304 krónur. Framfærsluvísitala
hækkar um 8,96% um mánaðamótin.
Reykjavfkurvika 17.—23.
ágúst1981
Myndina á spjaldinu teiknuöu Siguröur Kristjánsson
11 ára og Stefán Hrafnkelsson 10 ára I hugmynda-
samkeppni sem framkvæmdanefnd Reykjavikur-
viku efndi til meðal grunnskólanemenda i Reykjavík
sl. vetur.
Norræna húsið
Siðasta Opna hús sumarsins i Norræna húsinu
verður fimmtudagskvöld 13. ágúst kl. 20:30.
Nanna Hermansson borgarminjavörður flytur þá
erindi á dönsku og sýnir litskyggnur um Reykjavlk
fyrr og nú. Eftir hlé veröur sýnd kvikmynd Osvaldar
Knudsens Reykjavlk 1955, en þaö er 35 min. kvik-
mynd tekin í lit og sýnir þróun borgarinnar, ýmsar
byggingar og ibúa. Myndin er meö islenzku tali.
Góð aðsókn hefur verið að Opnu húsi 1 sumar og
hafa ferðalangar frá Norðurlöndunum fengiö að
hlýða á erindi um upphaf byggðar á íslandi, þjóð-
visur, islenzkar nútimabókmenntir, ísland idag, eld-
virkni á íslandi og nú siðast um Reykjavik fyrr og
nú, auk þessa hafa þjóödansar verið á dagskrá sem
og tónleikar Manuelu Wiesler og Helgu Ingólfs-
Strætó Í50 ár
Reykjavíkurvika ff?
17.-23. ágúst 1981
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr.148-10. ágúst 1981 £ gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 7,676 7,695 8,466
1 Stariingspund 13,504 13,539 14,893
1 Kanadadollar 6,168 6,184 6,802
1 Dðnsk króna 0,9486 0,9510 1,0461
1 Norsk króna 1,2225 1,2257 1,3483
1 Sœnsk króna 1,4191 1,4228 1,5661
1 Hnnsktmark 1,8361 1,6404 1,8044
1 Franskur franki 1,2418 U451 1,3696
1 Belg. franki 0,1822 0,1827 0,2009
1 Svissn. f ranki 3,4681 3,4772 3,8426
1 Hollenzk florina 2,6886 2,6936 2,9984
1 V.-þýzktmark 2,9841 2,9918 3,2910
1 (tölsk líra 0,00605 0,00606 0,00667
1 Austurr. Sch. 0,4249 0,4260 0,4686
1 Portug. Escudo 0,1133 0,1136 0,1250
1 Spánskur peseti 0,0746 0,0760 0,0834
1 Japansktyen 0,03221 0,03229 0,03493
1 frsktDund 10,904 10,933 12,159
SDR (sérstök dráttarréttindi) 8/1 8,4789 8,5012
Sfcnsvari vegna gengisskráningar 22190.
ÖMAR
VALDIMARSSO
mr
I
GÆRKVÖLDI
Gert ar ráð fyrir suðlwgri átt um aNt
land, skúrum á Suður- og Vasturtandl
og Iftils háttar fyrir norðen.
Kl. 6 var hasgvlðri, akúr og 9 stíg í
Reykjavlt, sunnan 3, rigning og 9 stig
á Gufuskákim, haegviðri, akýjað og 10
stig á Gaharvita, hasgvlðri, akýjað og
7 stig á Akureyri, haagvlðri, akýjað og
6 stig á Raufarhðfn, þoka ( grennd,
hasgvlðri og 6 stig á Deletanga,
eustan 4 , alskýjað og 8 stig á Hðfn,
suðaustan 5, úrkoma f grennd og 9
stig á Stórhðfða.
I Pðrshðfn var skýjað og 10 stig, I
Kaupmannahðfn þokumóða og 18
stig, ( Osló þokumóða og 17 stig, I
Stokkhólmi skýjað og 19 stig. i
London lágþokublettlr og 13 stig, (
Hamborg þokumóða og 14 stig, í
Paris þokumóða og 16 stig, í Madrid
heiðrikt og 17 stig, ( Ussabon þoku-
móða og 15 stig, (Washlngton mtetur
og 23 stlg.
Andlát
Sýningar
ItJ.I J s
t