Dagblaðið - 27.10.1981, Page 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
ÓLAFUR EINAR
FRIÐRIKSSON
Er íranska klerkaveldið fyrírmynd strangtrúaðra múhameðstrúarmanna í Egyptalandi?
Egypzka strangtrúarhreyfmg-
in veröur sífellt herskárri
Mubarak leggur til atlögu gegn þjóðemissinnuðum stúdentum
Hosni Mubarak varaforseti, Sadat og Abu Ghazala varnarmálaráðhcrra i
heiðursstúkunni skömmu áður en árásin var gerð.
hinum 12 yfirfuilu og vanbúnu
háskólum Egyptalands. Stjórnin
hefur líka gripið til sérstakra að-
gerða gegn stúdentum. Háskólarnir í
Alexandríu, Asyut og Monsra hafa
ekki tekið til starfa enn, vegna þess
að stjórnin óttast andstöðu stúdent-
anna þar.
Stúdentarnir í Asyut þykja orðnir
herskáastir og kröfuharðastir allra.
j kennslustundum gerðu stúdent-
arnir sífellda hríð að fyrirlesurum.
Þeir vildu koma á ritskoðun og okkur
var sagt að kenna ekki þróunarkenn-
ingu Darwins og vitna ekki í vestræna
rithöfunda, sagði einn kennari við
Háskólann í Kairó. Prófessor við
Háskólann í Asyut hefur lýst þvi
hvernig stúdentar brugðust við
sýningu á egypzkri kvikmynd þar sem
sýnd var víndrykkja og magadans.
Hópurinn safnaðist saman fyrir
framan kvikmyndahúsið, bað bænir
um heilagt stríð og réðst síðan inn og
barði áhorfendur með reyrstöfum.
Hann sagði einnig að jafnvel William
Shakespeare hafi orðið skotspónn
strangtrúaðra stúdenta sem lýsi leik-
ritum hans sem „kristilegum kross-
farabókmenntum”. Við urðum að
fara í felur og æfa utan háskóla-
svæðisins þegar við ætluðum að setja
upp Kaupmanninn frá Feneyjum,
Árásin á heiðursstúkuna.
úr sjálfvirkum rifflum.
Hermenningir köstuðu handsprengjum og skutu
Islamskur strangtrúarmaður yfirheyrður af öryggislögreglunni, iklæddur hefð-
bundnum cgypzkum kufli sem var nánast einkennisbúningur stúdentanna, en þeim
er nú bannað að klæðast.
læknisaðstoð. Þar eru settar strangar
reglur um þátttöku í bænahaldi og
þar hlusta meðlimirnir þúsundum
saman á reiðilestur um tengsl Sadats
við vestræn ríki, um friðarsamninga
hans við ísraelsmenn og um þá efna-
hagsstefnu hans að hleypa erlendu
fjármagni inn í landið.
Hvorki Shake-
speare né Darwin
Vopnaður vörður við markaðstorgið í Asyut, þar sem strangtrúaðir skutu 53 lög-
regluþjóna til bana.
Handtökur þær og fangelsanir,
sem Sadat Egyptalandsforseti stóð
fyrir nokkrum vikum fyrir dauða
sinn á strangtrúuðum múhameðs-
trúarmönnum og vinstrisinnum,
virðast hafa virkað sem olía á eld á
þann ásetning strangtrúarmanna að
ráða honum bana. Hosni Mubarak
eftirmaður Sadats hefur sagt að hann
hafi brugðizt of seint við og sjálfur
n.efur Mubarak ekki viljað lenda í
sömu gryfju, því hann hefur lýst því
yfir að allir þeir, sem uppvísir verða
að því að efna til uppþota, verði
skotnir á staðnum. Stjórn hans hefur
einnig gripið til harðra ráðstafana
gegn strangtrúuðum, en talið er að
virkasti hluti þeirra sé meðal háskóla-
stúdenta.
Þeir sem stóðu að árásinni á
lögreglustöðvarnar í Asyut í suður-
hluta Egyptalands daginn eftir
morðið á Sadat voru meðlimir í
hreyfingu islamskra strangtrúar-
manna. sem náð hefur miklu fylgi
innan egypzkra háskóla. Hreyfingin
er almennt kölluð Gaamat Islameya
eða Islamskt samfélag, en hefur
margar undirdeildir sem eru mismun-
andi herskáar og greinir á um leiðir
til að koma á þjóðskipulagi í Egypta-
landi í anda Kóransins. Upphafið að
ofsóknum Sadats gegn hreyfingunni
voru skotbardagar sem áttu sér stað
milli múhameðstrúarmanna og krist-
inna í einu fátækrahverfi Kairó-
borgar. Fjórtán manns voru skotnir
til bana og Sadat taldi það réttlæta
aðgerðirgegn hreyfingunni. Um 1600
manns voru handteknir að meðtöld-
um kristnum og vinstrisinnum, en
handtökunum var fyrst og fremst
beint gegn strangtrúuðum
múhameðstrúarmönnum. Sam-
kvæmt opinberum heimildum var
bróðir þess manns sem stjórnaði
síðar árásinni á Sadat meðat þeirra
handteknu.
Sadat studdi
strangtrúaða
Sterk hreyfing strangtrúaðra
múhameðstrúarmanna hefur verið í
Egyptalandi frá árinu 1928 er svo-
nefnt Islamskt bræðralag var
stofnað. Það var þjóðernissinnuð
hreyfing sem vildi koma á islamskri
stjórn og samfélagsskipan í Egypta-
landi, sem þá var undir stjórn Breta.
En eftir ósigur Egypta í stríðinu við
ísraelsmenn árið l%7 kom fram ný
kynslóð ungra strangtrúarmanna,
sem var róttækari og herskárri en sú
eldri. Strangrúrarhreyfingin
blómstraði í samfélagi þar sem meiri-
hluti manna hefur ríka trúarvitund.
Sadat var einnig fylgjandi hreyfing-
unni i upphafi sjöunda áratugarins
og örvaði hana til aðgerða til að
skapa mótvægi við vinstrisinnaða
andstæðinga sína.
Herskáasti hluti strangtrúar-
hreyfingarinnar gengyr undir
nafninu Al-takfir Wal-hegira og
hefur á stefnuskrá sinni að koma á
islömsku samfélagi með vopnavaldi.
Islamska bræðralagið hefur reynt að
færa stjórnkerfi landsins nær anda
Kóransins, en Wal-hegira, sem
stofnað var seint á sjötta áratugnum,
telur hins vegar að egypzkt samfélag
sé allt andtrúarlegt og sjúkt af spill-
ingu. Strangtrúarhreyfmgin innan
háskólanna hefur ekki farið dult með
andstöðu sína gegn Sadat fyrrum for-
seta en hins vegar ekki verið með-
mælt beitingu ofbeldis fram til þessa.
Það kom því á óvart að stúdentar
sem meðlimir voru í Islámska sam-
félaginu skyldu standa að skotárás-
unum á lögreglustöðvar í Asyut þar
sem 53 lögreglumenn voru drepnir og
sýnir að aukin harka er að færast í
deilur strangtrúaðra og ríkisstjórnar-
innar.
Stúdentar
herskáastir
Það þykir ljóst að héðan i frá muni
aðalandstaðan við egypzku stjórnina
koma frá strangtrúuðum stúdentum í
Ljauoi wai jaruseuur viu nuiuua
merkið um hernaðarsigur Egypta
yfir ísraelsmönnum árið 1973:
Almenningur fékk ekki að koma
nálægt athöfninni.
starfa hefur stúdentum verið bannað
að hafa skegg og ganga i hinum hefð-
bundnu egypzku kuflum. Kvenstúd-
entum hefur verið bannað að vera
með blæjur fyrir andlitinu eða að
ganga í hefðbundnum egypzkum
kvenbúningi, en það var eitt megin-
einkenni strangtrúaðra að hafna
gallabuxum og öðrum vestrænum
klæðnaði og taka upp þjóðlegan
klæðaburð. í háskólunum hefur nú
verið stofnuð sérstök öryggis-
lögregla.
Mubarak forseti ætlar greinilega
ekki að leyfa strangtrúarhreyfing-
unni að þróast upp í sama styrk og
hún náði i íran. Hann hefur jregar
gagnrýnt efnahagsstefnu Sadats
fyrirrennara síns og sagt að hún hafi
einkum leitt til aukinnar neyzlu
þeirra sem betur mega sín í landinu
en hafi ekki skapað atvinnu. Hann
hefur einnig reynt að koma á sam-
vinnu við stjórnarandstöðuna og
einangra þannig hina ólíku hópa
strangtrúaðra. Ibrahim Shukri leið-
togi Sósíalistafiokksins hefur sagt að
viðræður hans við Mubarak væru
upphaf að nýju tímabili gagnkvæms
trausts milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu. Forsetinn hefur látið í það
skína, að hann myndi láta lausa
einhverja þeirra pólitísku andstæð-
inga sinna sem Sadat lét handtaka í
september. En þeim sem hvatt hafa
til ofbeldis verður engin miskunn
sýnd, segir forsetinn.
Milli meðlima islamska samfélagsins
þar og háskólayfirvalda hafa rikt
stöðugar deilur undanfarin ár, um
hvort halda eigi aðskildar kennslu-
stundir fyrir kvenfólk og karla og um
hvort gera eigi hlé á kennslustundum
á bænatímum. Islamska samfélagið
er þar vel skipulögð stofnun, sem sér
meðlimum sínum fyrir kennslu-
bókum, fötum, húsnæði og ókeypis
eins og við værum að gera eitthvað
óhæfuverk, sagði prófessorinn.
Skegg og kuflar
bannað
Egypzka stjórnin hefur byrjað
aðgerðir sínar gegn strangtrúar-
hreyfingu stúdenta með því að svipta
þá hinum ytri einkennum sínum, í
þeim háskólum sem tekið hafa til