Dagblaðið - 27.10.1981, Blaðsíða 15
Vestur-þýzka
2. deildin
Vegna þrengsla i blaðinu i gær var ekki hægt að
birta stöðu efstu liða i 2. deild vestur-þýzku knatt-
spyrnunnar. Úr því skal nú bætt:
Schalke 04 13 8 3 2 27- -13 19
1860 Múnchen 13 8 2 3 26—17 18
Fortuna Köln 13 7 3 3 27- -23 17
Hessen Kassel 12 5 6 1 19- -10 16
Hannover 96 13 7 1 5 25- -18 15
Aachen 13 6 3 4 17- -12 15
Kick. Offenbach 13 6 3 4 25- -23 15
Hertha BSC 13 6 2 5 28- -17 14
Freiburger FC 13 4 6 3 26- -23 14
VS.
Jonny Doyle lézt
af slysförum
— félagi Jóhannesar hjá Celtic
fékk í sig rafstraum
Johnny Doyle, leikmaður með skozka knatt-
spyrnuliðinu Ccltic, lézt i siðustu viku, 32ja ára að
aldri. Hann var að vinna við rafmagnstengingar á
heimili sinu og fékk i sig háan straum. Doyle kom til
Celtic frá Ayr United í febrúar 1976 og lék stöðu
miðvallarspilara. Hann lék þvi um skeið við hlið
Jóhannesar Eðvaldssonar í Celtic-liðinu. Doyle þótti
mjög sterkur leikmaður og lék einn leik með skozka
landsliðinu árið 1975.
-VS.
StórféfyrirDana
Daninn Michael Birkedal, 21 árs gamall landsliðs-
maður i knattspyrnu frá Næstved, hefur skrifað
undir samning við hollenzka úrvalsdeildarliðið.
Twente Entschede sem tryggir honum 1,5
milljónir danskra króna næstu tvö árin og Næstved
fær 400.000 d.kr. i sinn hlut. Birkedal stóð til boða
að leika með Twente i úrvalsdeildinni um helgina en
Næstved vildi það ekki, þá hefði hann ekki gelað
leikið siðustu leikina i dönsku 1. deildinni en þar á
Næstved enn möguleika á sigri. Danska knatt-
spyrnusambandið tryggði að sjálfsögðu i samning-
unum að það gæti kallað Birkedal heim i landsleiki.
Athyglisvert er að það var sala á Norðmanni,
Hallvar Thoresen, til FC Eindhoven, sem gerði
Twente kleift að kaupa Birkedal.
-VS.
Enginn með 12 rétta
í 9. leikviku Getrauna komu fram 10 raðir með 11
réttum leikjum og var vinningshlutinn kr. 14.645,00
og með 10 rétta voru 74 raðir og vinningshlutinn kr.
848,00.
Enginn seðill fannst með 12 réttum, enda gerðu
nokkur liðanna tippurum slæman grikk. Orsökin er
að öllum likindum, að haustrigningarnar i Bretlandi
eru farnar að segja til sin og vellirnir orðnir þungir
og blautir.
Hæsti vinningur vikunnar kom fram á hvitum 8
raða seðli sem bar 6 vinningsraðir, 3 með 11 réttum
og voru þær allar með sömu útfyllingunni, svo og 3
raðir með 10 réttum. Vinningurinn fyrir seðilinn
varð þvi alls kr. 46.479,00.
Staðan í úrvalsdeild
Staðan i úrvalstfeildinni i körfuknattleik að lok-
inni 4. umferð:
Njarðvík 4 4 0 328—282 8
Fram 4 3 1 325—312 6
KR 4 2 2 293—292 4
Valur 4 2 2 307—308 4
ÍR 4 1 3 309—324 2
is 4 0 4 290—334 0
Stigahæstu menn:
Danny Shouse, Njarðvík 132
Dennis McGuire, ÍS 114
Val Brazy, Fram 107
Bob Stanley, ÍR 102
John Ramsey, Val 86
Símon Ólafsson, Fram 81
Jón Sigurðsson, KR 77
Kristján Ágústsson, Val 72
Bjarni Gunnar Sveinsson, ÍS 63
Ríkharður Hrafnkelsson, Val 56
Bezta vítanýting (15 skot eða fleiri)
John Ramsey, Val 15/16 — 93,8%
Jón Sigurðsson, KR: 29/31 —93,5%
Val Brazy, Fram 19/22 — 86,4%
Bob Stanley, ÍR 24/31 — 77,4%
Danny Shouse, Njarðvík 34/45—75,6%
Garðar Jóhannsson, KR 12/16 — 75,0%
Næsti leikur í úrvalsdeildinni verður á fimmtu-
dagskvöld f iþróttahúsi Kennaraháskólans. Þá mæt-
ast IS og Valur í fyrsta leik 5. umferðar og hefst
hann kl. 20.
góma knöttinn.
DB-mynd S.
EKKIT0KST KR-INGUM
AÐ STÖDVA NJARÐVÍK
— íslandsmeistararnir unnu 69-65 og eru enn ósigraðir í úrvalsdeildinni
Ekki þurftu Islandsmeistarar Njarð-
víkur neinn stórleik til að sigra KR i
siðasta leik 4. umferðar úrvalsdeildar-
innar í körfuknattleik i gærkvöldi.
Leikið var í Laugardalshöll og sigruðu
Njarðvikingar með fjögurra stiga mun,
69—65. Þeir eru þvi enn ósigraðir i
deildinni en KR-ingar hafa nú tapað
tveimur leikjum og mega taka sig mikið
á ef þeir ætla að vera með í baráttunni
um íslandsmeistaratitilinn.
Mikili taugasiappieiki gerði vart við
sig hjá leikmönnum liðanna framan af,
einkum hjá KR-ingum, enda mikið í
húíi. Fyririliði unglingalandsliðsins,
Valur Ingimundarson, kom Njarðvík í
4—0 en Hudson og Jón Sig. jöfnuðu
strax fyrir KR. Um miðjan fyrri hálf-
leik höfðu KR-ingar náð 7 stiga for-
skoti, 21 —14, en Njarðvik jafnaði
fljótlega 23—23 og hleyptu Suður-
nesjamenn KR-ingum ekki fram fyrir
sig eftir það. Eins til fimm stiga munur
fram að hléi en þá var staðan 38—35
fyrir Njarðvík.
Gunnar og Jónas komu Njarðvík
síðan í 42—35 á fyrstu mínútu síðari
háifleiks en KR náði að minnka mun-
inn niður í eitt stig, 46—45. Þá hætti
Vesturbæjarliðið bókstaflega að hitta í
körfuna og Njarðvíkingar sigu rólega
fram úr, skoruðu 12 stig í röð og staðan
þá 58—45. Þeir léku mjög yfirvegað og
rólega á þeim tíma, eins og reyndar
mestalian ieikinn, en mikið fum og fát
var í sóknaraðgerðum KR. Ekki gáfust
KR-ingar þó upp við þetta mótlæti og
af mikilli seiglu höfðu þeir minnkað
muninn í 64—61 tveimur mínútum
fyrir leikslok. Þá skoruðu Valur og
Danny Shouse og staðan 68—61 en
John Hudson hafði skorað tvívegis
þegar 40 sekúndur voru eftir, 68—65,
og KR átti enn möguieika. En Njarð-
víkingar voru ekkert á því að glata
niður forystunni og héldu knettinum
það sem eftir var, Árni Lárusson í aðal-
hlutverki. KR-ingar brutu þá mjög
Keisarinn til Salzburg
„Franz Beckenbauer hefur áhuga á
að leika áfram og hann hefur hug á þvi
að taka boði frá Salzburg i Austur-
riki,” sagði hinn austurrfski þjálfari
Franz Beckenbauer, fyrrum fyrirliði heimsmeistara Vestur-Þýzkalands i knattspyrn-
unni til hægri, en til vinstri er núverandi fyrirliði landsliðsins, Paul Breitner, Bayern
MUnchen.
Hamburger SV, Ernst Happel, i viðtali
sl. laugardag við fréttamann UPI.
Endurkoma Beckenbauers „keis-
ara” í vestur-þýzku knattspyrnuna
hefur mistekizt. Aldurinn og þriggja
ára leikur á gervigrasvöllum Bandaríkj-
anna hefur tekið sinn toll. Hann hefur
sáralitla möguleika á að vinna sér sæti í
Hamborgar-liðinu. Beckenbauer segist
vilja leika knattsprynu meðan hann
hefur gaman af því og allar líkur eru á
að hann sé nú á leið frá Hamborg til
Salzburg.
Það var Giinther Netzer, fram-
kvæmdastjóri Hamburger, og fyrrum
landsliðsmaður í Vestur-Þýzkalandi,
sem fékk Beckenbauer til að koma til
Hamborgar, þegar Kevin Keegan flutti
á ný til Englands. BP olíufyrirtækið sá
um kostnaðarhliðina. En Beckenbauer
sýndi lítið af fyrri snilli í Hamborgar-
liðinu þó svo þjálfarinn Branco Zebec
veldi hann í lið sitt. Síðan bættust
meiösli við og þegar Ernst Happek tók
við Hamborgarliðinu valdi hann yngri
menn í liðið í stað keisarans.
klaufalega af sér í stað þess að leyfa
Njarðvikingum að reyna körfuskot, því
í því var eini möguleiki KR fólginn.
Árni skoraði svo úr vitaskoti á síðustu
sekúndunni og innsiglaði sanngjarnan
sigur Njarðvíkinga, 69—65.
Leikurinn 1 gærkvöldi var ekki mikið
fyrir augað. Hann einkenndist fyrst og
fremst af taugaspennu og baráttu en
hittnin var ekki góð eins og tölurnar
Handbolti eða hvað? Jón Sigurðsson reynir að finna smugu i vörn Njarðvikinga.
DB-mynd S.
bera með sér. Annar leikurinn í úrvals-
deildinni í röð þar sem hvorugt lið nær
70 stigum. Njarðvíkingar léku mjög
skynsamlega allan tímann,-létu knött-
inn ganga rólega í sókninni og biðu
eftir góðu færi. Varnarleikur liðsins
var góður og auðséð að íslandsmeist-
aratitillinn verður ekki auðsóttur í
greipar þeirra. Helzt að nýliðar Fram
geti náð honum.
KR-ingar áttu ekki góðan dag að
þessu sinni. John Hudson og Jón
Sigurðsson náðu sér aldrei á strik og
munar um minna. Þeir skoruðu þó
mest. Ágúst Líndal var jafnbezti maður
liðsins og Garðar vaknaði til lífsins í
síðari hálfleik. Sóknarleikurinn var
slakur en vörnin hins vegar ágæt þegar
á heildina er litið. Þó mynduðust
stundum stórar eyður sem Njarðvík-
ingar voru fljótir að nýta sér.
Stig Njarðvíkur: Danny Shouse 29,
Valur Ingimundarson 10, Jónas
Jóhannesson 8, Gunnar Þorvarðarson,
Árni Lárusson og Jón Viðar Matthías-
son 6 hver og Júlíus Valgeirsson 4.
Stig KR: John Hudson 20, Jón
Sigurðsson 15, Garðar Jóhannsson 12,
Ágúst Líndal 10 og Kristján Rafnsson
8.
Dómararnir Sigurður Valur og
Gunnar Guðmundsson hafa oft dæmt
betur en í gærkvöldi. Þeir voru alls
ekki nógu samkvæmir sjálfum sér,
dæmdu ekki á slæm brot en flautuðu
hins vegar stundum af litlu eða engu til-
efni. Ekki þeirra dagur að þessu sinni.
-VS.
Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari:
Neitar að gefa eftir
landsliðsmenn Víkings
,,Eg verð að segja, að stjórn Hand-
knattleiksdeildar Vikings varð fyrir
vonbrigðum með viðbrögð Hilmars
BJörnssonar landsliðsþjálfara — við
vonuðumst eftir að tilmæli okkar
mundu mæta skilningi hjá honum,”
sagði Jón Valdimarsson, formaður
stjórnarinnar, i samtali við DB i gær-
kvöld.
Stjórn handknattleiksdeildarinnar
átti fund með Júlíusi Hafstein, for-
manni HSÍ, i gærdag og fór fram á að
þeir leikmenn Vikings sem valdir hafa
verið i keppnisförina til Tékkóslóvakiu
fyrst í nóvember, væru gefnir eftir
vegna leiks Víkings i Evrópubikarnum
við spánska meistaraliðið Atletico
Madrid nokkrum dögum eftir að
keppnisförinni til Tékkóslóvakíu lýkur.
Þessum tilmælum Vikings var hafn-
að i gærkvöld. Hilmar landsliðsþjálfari
sagði að það væri ekki til umræðu.
Hann yrði að vera með sitt sterkasta lið
í Tékkóslóvakfu og hefði þvi valið lið
með tilllti til þess.
Það er skiljanlegt, að landsliðsþjálf-
arinn vilji vera með sitt bezta lið, þegar
Eg er ekki til sölu
— hvað sem lið eins og Man.Utd. og
Nott.For. bjóða mér, segir Pal Jacobsen
„Þvi miður, Manchester United og
Nottingham Forest. Ég mun leika með
Válerengen næsta keppnistimabil og er
ekki til sölu fyrir peninga,” segir
norski landsliðsmaðurinn i knatt-
spyrnu, Pál Jacobsen, staðfastur.
Bæði Man. Utd. og Nottm. Forest
hafa sýnt Jacobsen mikinn áhuga í
haust og í brezkum blöðum var sagt að
Forest væri reiðubúið að greiða 4 millj-
ónir nprskra króna fyrir hann. En guil
og grænir skógar freista ekki Norð-
mannsins nú frekar en fyrr í haust
þegar vestur-þýzka félagið Ntirnberg
vildi fá hann til liðs við sig. Jacobsen er
mjög ánægður þegar hann lítur til baka
á nýafstaðið keppnistimabil, Noregs-
meistari með Válerengen, marka-
kóngur í 1. deild, leikir í Evrópukeppni
og gullúr fyrir 25. landsleikinn. Állt
þetta, og sú staðreynd að hann er aö
verða faöir í fyrsta skipti, hefur gert
hann staðráðinn í að leika áfram með
Oslóariiðinu, hvað sem stóru liðin úti i
heimi bjóöa. Greinilegt að Jacobsen
lætur frægðina ekki stiga sér til höfuðs.
-VS.
'þaö Ieikur erlendis en mótið i Tékkó-
slóvakíu sem slikt skiptir okkur sára-
litlu máli. Aðeins fyrsti áfangi i tveggja
ára áætlun. Þama hefði þvi verið ein-
falt að sýna tillitssemi ef vilji hefði
verið fyrir hendi. Jafnvel áður en
landsliðið var valið, þegar vitað var
gegn hverjum Vikingur hafði dregizt i
Evrópukeppninni. Það var ekki gert,
heldur fimm leikmenn Víkings valdir i
landsliöið. Undirbúningur fyrir
Evrópuleikina getur þvi ekki orðið sem
skyldi hjá Vikingsliðinu. Þó má ætla að
góð frammistaða Víkings í Evrópu-
keppninni, keppni meistaraliða, sé þýð-
ingarmeiri fyrir islenzkan handknatt-
leik en árangur landsliðsins i Tékkósló-
vakiuferðinni.
Þó er það ennþá furðulegra hjá
stjórn HSÍ að efna til þátttöku íslands
á þessu móti i Tékkóslóvakíu og það
rétt fyrir þátttöku þriggja fslenzkra liða
i Evrópukeppni. Evrópuleikirnir eru ár
eftir ár á sama tíma og þar sem þátt-
taka islenzkra liöa i Evrópumótunum
hefur verið mjög góð undanfarin ár,
voru allar likur á að islenzku liðin yrðu
í hattinum, þegar dregið var til 2. um-
ferðar Evrópumótanna. Þessu virðist
stjórn HSÍ alveg hafa gleymt, þegar
hún ákvað þátttöku i Tékkósló-
vakiumótinu. Furðulegt tiliitsleysi sem
þar kemur fram gagnvart félagsliðun-
um sem þátt taka i Evrópumótunum.
Ekki aðeins gegn Viking, heldur einnig
gagnvart Þrótti og FH. Þau lið eiga tvo
menn hvort i landsliðinu, sem fer til
Tékkóslóvakfu. Sem betur fer eiga þau
þó létta mótherja í 2. umferð Evrópu-
mótanna. Þarna hefur stjórn HSÍ gert
sig seka um mikla yfirsjón.
-hsim.
Pái Jacobsen i landsleik Norðmanna og Nígeriu f sumar.
Valdimar Valdimarsson, fyrrum starfsmaður fþróttavallanna f Kópavogi, fyrir framan vallarhús knattspyrnuvallarins við
Vallargerði.
Hvað er að gerast í
vallarmálum Kópavogs?
„Hvað er að gerast í vallarmálum í
Kópavogi?” spyr Valdimar Valdimars-
son, fyrrum starfsmaður iþróttavall-
anna i Kópavogí. Valdimar starfaði við
íþróttavellina i allmörg ár og hann er
mjög uggandi um þróun mála nú, telur
aö margt hafi gengið úr skorðum og
mikið þurfi að bæta. DB heimsótti
Valdimar fyrir skömmu og ræddi við
hann um vallarmál Kópavogs. Gefum
honum orðið:
„Ef fyrst er vikið að sjálfum aðal-
leikveilinum í Kópavogi, grasveiiinum
við Fífuhvammsveg, þá hefur illa verið
haidið á málum þar, svo vægt sé til
orða tekið. Sem dæmi má nefna að
sumarið 1979 var grasið á vellinum
slegið alveg niður í rót en í reglum um
hirðu vallarins segir að hæð grassins
megi aldrei vera minni en 3 sm. Af
þessu leiddi að það sumar var völlur-
inn nánast eins og malarvöllur, svo
harður var hann. Undir vellinum eru
hitalagnir, dýr og vandmeðfarin tæki.
Ég spyr: Var hitakerfið aldrei í lagi
síðastliðið vor? Var nokkurt samráð
haft við þann sem lagði kerfið og hann
fenginn til að fylgjast með hvort það
væri yfirleitt í lagi? Ef ekki, hvers
vegna? Ég vil aðeins benda á að það er
mikil trú að geta trúað því að ástand
Kópavogsvallar í vor hafi aðallega
verið guði að kenna. Þar hefur fleira
komið til. Hvað fóru margir leikir fram
á vellinum síðastliðið sumar? Meistara-
flokkur Breiðabliks lék þar 8 leiki, 3.
deildarlið ÍK aðeins tvo og kvenna-
flokkur Breiðabliks fjóra leiki.
Meistaraflokkur karla hjá Breiðablik
fékk nokkrar æfingar á vellinum,
stúlkurnar enga. Hvar er nú jafnréttið?
Nokkru austan við aðalleikvanginn
er annar grasvöllur, svonefndur Smára-
hvammsvöllur. Þarna léku yngri flokk-
arnir í allt sumar, meistaraflokkur ÍK
þurfti að leika þar flesta sína heima-
leiki og kvennalið Breiðabliks helming
sinna leikja. Ég er ekki að hallmæla
vellinum sjálfum, hann er með betri
grasvöllum. Aðalmálið er að þar er
engin aðstaða, ekkert salerni, ekkert
vatn, ekki hægt að komast í húsaskjól í
hálfleik þar sem of langt er að fara að
aðalleikvanginum. Hér er um gífurlegt
ábyrgðarleysi að ræða. Hvað á aö gera
ef slys ber að höndum? Það sárgræti-
legasta við þetta allt saman er að þarna
var aðstaða til skamms tíma. Skúr sá
er stóð við Smárahvammsvöllinn og
bauð upp á aðstöðu, þó ekki væri hún
kannski fyrsta fiokks, var tekinn og
fluttur að aðalleikvanginum og innrétt-
aður fyrir lyftingaþjálfun. Af hverju
var ekki hægt að fá einhvern annan
skúr undir þá þjálfun í stað þess að
fjarlægja eina húsaskjólið við Smára-
hvammsvöll?
í sumar var fullyrt að aðalleikvöllur-
inn væri ofnotaður. Samkvæmt því
ætti Smárahvammsvöllurinn að vera
ónýtur nú þar sem á honum voru æf-
ingar eða leikir fiest kvöld og fiestar
helgar í sumar. Hann var að vísu aldrei
sleginn niður i rót!
Það versta í sambandi við Smára-
hvammsvöllinn er virðingarleysið sem
þeim er þar leika og æfa er sýnt. Gott
dæmi um það er að í sumar fór 6.
flokkur Breiðabliks í heimsókn austur
á Seifoss. Þar var tekið mjög vel á móti
þeim og Selfyssingar endurguldu síðan
heimsóknina. Umsjónarmaður 6.
fiokks Breiðabliks fékk leyfi frá vallar-
stjóra tii að nota Smárahvammsvöll-
inn. Þegar Selfossdrengirnir komu til
keppni var æfing á vellinum og mikið
þref þurfti til að komast á hann. Það
tókst þó um síðir. Þarna voru saman-
komnir um 100 drengir en ekki var
þeim boðið upp á neina búningsað-
stöðu og yfirleitt enga þjónustu svo að
þeir þurftu að gera allar sínar þarfir úti
i móum. Þeir voru þarna í kalsaveðri á
bersvæði við að skipta um föt! Á þessu
getum við séð hve mikil virðing er borin
fyrir börnunum.
En það eru fleiri veilir í Kópavogi en
þessir tveir. Vallargerðisvöllur er senni-
iega bezti malarvöllur landsins hvað
yfirlag snertir. Þar hefur verið, og er,
aðstaða fyrir dómara og þar er líka sal-
ernisaðstaða fyrir áhorfendur. f sumar
var dómaraherbergið yfirleitt aldrei í
nothæfu ástandi og saiernisaðstaðan
aldrei opnuð. Hreinlæti er mjög ábóta-
vant i Vailargerði og kanna mætti hve
oft heilbrigðisfulltrúi kemur til að líta
eftir þarna. f allt sumar voru glerbrot á
víð og dreif í kringum völiinn og jafn-
vel inn á honum. Vallarstarfsmenn
sinntu lítt að fjarlægja þau.
Annar malarvöllur er starfræktur í
Kópavogi, Melaheiðarvöllur. Hann er
mjög illa staðsettur, á hæsta punkti í
bænum og rýkur mikið úr honum í
þurrkum og hvassviðri. Ég spyr, af
hverju er bæjarfélagið að reka tvo
malarvelli, sinn í hvorum bæjarhluta?
Vallaryfirvöld í Kópavogi ættu að
hætta að vera að reyna að skipta
bænum i tvo hluta í knattspyrnunni.
Ekki er um slíkt að ræða í handbolt-
anum þó þar séu einnig tvö félög. Af
hverju geta ekki bæði knattspyrnufé-
lögin setið við sama borð og notað
sama keppnisvöll? Ætla vallaryfirvöld
kannski að byggja keppnisvöl! í
Snælandshverfi ef einhverjum skyldi
detta í hug að stofna félag í þeirri trú að
þeir séu að gera það fyrir krakka í því
hverfi? Þetta hefur gengið svo langt að
haldið hefur verið UMSK-mót í 5.
fiokki á Melaheiðarvelli á meðan
Vallargerðisvöllur vár ónotaður og
auður. Mun farsælli lausn væri að
koma upp minni völlum, 40x80, m,
við hvern skóla i Kópavogi, félögin
gætu æft þar að vild en Vallargerðis-
völlur yrði notaður sem keppnisvöll-
ur.”
Sjúkrasjóður
— til hvers?
„Allt frá því Kópavogsvöllur var
opnaður, 7. júní 1975, hefur verið tekin
17% vallarleiga af völlum heimaleikj-
um Breiöabliks. Einnig hefur verið
tekið 7% gjald sem heitir í knatt-
spyrnuhandbókinni „gjald til knatt-
spyrnuráðs heimaliðs”. Þetta er líka
gert í Reykjavík, að visu aðeins 6%.
Eftir því sem ég bezt veit, er gert ráð
fyrir því að þessum 7% sé skipt þannig:
Sjúkrasjóður 3%, önnur 3% til efl-
ingar knattspyrnumála í heimabyggð
og 1% til íþróttaráðs. Það er dálítiö
hart að taka 3% í sjúkrasjóð sem
enginn hefur fengið úr þótt meiðzt
hafi. Þó held ég að sjóðurinn hafi v.erið
notaður, ekki tii að borga sjúkrabætur.
Nú spyr ég, hvað er gert við þessa
peninga? Var vallarklukkan keypt fyrir
þá?
Eitt virðist hafa breytzt tiifinnanlega
síðustu ár. Það er eins og búið sé að
slita starfsfólk vallanna úr tengslum við
börnin og unglingana. Ekki er lengur
hægt að fá lánaða bolta og mætti þó
kaupa nokkra fyrir hagnaö af sjoppu-
rekstri á Kópavogsvelii. Er sjoppan
kannski einkarekstur valiarstjóra?
Mikil afturför er að geta ekki haft opið
á völlunum þegar með þarf. Meira að
segja er farið að láta þjálfara hafa lykla
til að spara starfsfólk. Ekki heyrist þó
neinn sparnaðartónn í kostnaðar-
áætlun, þar sem áætlað er að 665.000
kr. verði borgaðar vallarstarfsfólki í
vinnulaun á þessu ári. Að minnsta
kosti fimm manns vinna þarna en vel er
hægt að reka vellina yfir veturinn, og
hafa þó opið eins og þarf, með tveimur
starfsmönnum, aðeins með þvi að
byrja að vinna kl. 13 í stað kl. 8,” sagði
Valdimar Valdimarsson að lokum.
-VS.
Jóhannes
heimsmeistari
Jóhannes Hjálmarsson frá Akureyri
vann það mikla afrek að verða heims-
meistari öldunga i kraftlyftingum á
heimsmeistaramótinu sem fram fór f
Chicago i Bandaríkjunum um helgina.
Jóhannes lyfti 200 kg i hnébeygju, 130
kg í bekkpressu og 267 kg i réttstöðu-
lyftu. Samanlagt lyfti hann þvi 597 kg,
37 1/2 kílói meira en næsti maður.
Glæsilegt hjá Jóhannesi sem er tiltölu-
lega nýbyrjaður að æfa lyftingar og DB
óskar honum til hamingju með heims-
meistaratitilinn.
Bradfordí
þriðju umferð
Einn leikur var i enska deildabikarn-
um í gærkvöld en síðari leíkirnir i ann-
arri umferðinni verða háðir nú í vik-
unni. Bradford City, efsta liðið i 4.
deildinni, sigraði Mansfield 0—2 á úti-
velli. Komst því i þriðju umferð saman-
lagt 5—4. Mansfield sigraði i fyrri leik
liðanna i Bradford, 3—4. Bradford
City er undir stjórn Roy McFarland,
fyrrum landsliðsmanns Englands, sem
lék lengi með Derby. Fór til Bradford i
sumar.
Einn leikur var i 2. deild ensku knatt-
spyrnunnar á sunnudag. Lundúnaliðin
Orient og Charlton gerðu jafntefli, 1—
1.
I