Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Blaðsíða 1
I.
Slæktunarfélagið.
(Yfirlit.)
»Gjörvöll landsins fen og flóa,
fúakeldur, holt og móa,
á að láta grasi gróa,
gjöra að túni alla jörð,
jafnvel holt og blásin börð»"
Þann 26. marz í vetur sem leið voru liðin 4 ár frá því að
Ræktunarfélag Norðurlands var stofnað á Hólum í Hjaltadal,
en 11. júní 1903 var því fyrst nafn gefið á almennum fundi,
sem haldinn var á Akureyri. Þá var og stjórn kosin og lög
samþykt.
Stofnendur félagsins voru 46, en þeim fjölgaði svo óvenju-
lega fljótt, að um næstu áramót á eftir hafði tala félagsmanna
meir en 14-faldast og nú um síðustu áramót var hún orðin
tvítugföld.
Þessi bráðþroski félagsins ber ljósan vott um það, að fé-
lagsstofnun þessi hefir verið fyllilega tímabær. Tilfinningin
fyrir því, hve jarðrækt vorri sé ábótavant, var orðin svo lif-
andi og umbótalöngunin svo rík í brjóstum fjölda margra
manna hér norðanlands, að þeir skipa sér tafarlaust undir
merki félagsins, fylkja sér einhuga um þá stefnuskrá þess:
að gera margbreyttar nýjar jarðrœktartilraunir og útbreiða meðal
aimennings þekkingu á öllu því, sem að jarðrœkt lýtur og lík-
indi eru til að komið geti að gagni.
En þótt félagsstofnun þessi fengi hinar beztu undirtektir
hér á Norðurlandi og menn gengju í það hópum saman, þá
verður því ekki neitað, að hugmyndir sumra um starfsemi
1