Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Blaðsíða 30
32
þeir þá fund í deildinni og var S. staddur á fundinum
til viðtals og ráðagerða.
2. Ingimar Sigurðsson búfræðingur ferðaðist um Suður-Þing-
eyjarsýslu 5.—13. júlí, um Skagafjarðarsýslu x.—7. ágúst,
um Eyjafjarðarsýslu 7.—13. s. m. og enn fremur um sömu
sýslu 17.—21. september.
Niðurlag skýrslu hans er á þessa leið:
»A ferðum mínum hefi eg komið á 89 bæi. Hefi eg
alstaðar dvalið lengur eða skemur eftir því hve mikið
var að starfa á þverjum bæ. — Þau hefir verið leitað álits um, eru: atriði, sem einkum
túnrækt (á 33 stöðum),
hirðing og notkun áburðar (- " — )-
nýræktun, sáning hafra og grasfræs (- 33 — ).
garðyrkja (- 67 — )-
vatnsveitingar (- 28 — ).
trjárækt (- 13 — ).
verkfæri (- 11 — ).
lokræsla (- 49 — ).
girðingar (- 58 — )•
Svarðarleit hefir verið gerð á 33 stöðum, (þar af fanst
svörður á 22 stöðum).
Eg hefi haldið fyrirlestar á einum stað — í Flatey —
og var hann sóttur af 30—40 manns. Um leið var haldinn
þar fundur og rædd ýms búnaðarmálefni 0. fl.
Það er mér mikið gleðiefni, að þar sem eg hefi farið í
sumar, virðist vaknaður almennur áhugi á búnaðarframför-
um hjá bændum, enda er þess full þörf, því langt erum
við á eftir nágrannaþjóðunum í því efni, jafnvel þeim, sem
búa eins norðarlega og við og hafa við sömu erfiðleika
að búa, að því er snertir landskosti og loftslag, t. d. í
norðanverðum Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Ekki dylst mér það, að eins arðvænlegt mun vera að
stunda landbúnað hér á landi eins og í hinum fyrnefndu
löndum.