Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Blaðsíða 41
43
endurskoðaðir og kosnir endurskoðendur til næsta árs; aðal-
fundur kveður á um starfsemi félagsins komandi ár. Fundir-
nir skulu haldnir til skiftis í sýslunum, eftir þvf, sem síð-
asti aðalfundur ákveður.
Q. grein.
Stjórnin annast allar framkvæmdir félagsins. Hún boðar
til funda og undirbýr málefni þess til aðalfundar. Einnig
hefir stjórnin á hendi alla bókun fyrir félagið, bréfaviðskifti
og ræður starfsmenn þess. Stjórnin getur boðað til auka-
fundar til að ræða einstök vandamál, einnig er skylt að
halda aukafundi, sé þess æskt af >/3 hluta fulltrúanna.
10. grein.
Félagið lætur árlega prenta skýrslu um starfsemi sína.
Sjái félagið sér fært, gefur það út tímarit eða smáritlinga
um jarðrækt. Alt það, sem félagið lætur prenta, verður sent
öllum félögum ókeypis.
11. grein.
Gjalddagi á tillögum félagsmanna er I. Október ár hvert.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
►
12. grein.
Hver sýsia á félagssvæðinu á kost á að koma upp einni
aðaltilraunastöð á þeim stað í sýslunni, sem stjórn Ræktun-
arfélagsins álítur heppilegastan, með því skilyrði að sýslan
sjái um land og girðingu, ásamt undirbúningi jarðvegsins,
en félagsstjórnin segir tyrir um, hvernig haga skuli tilraun-
unum. Félagið styrkir tilraunastöðvar þessar með árlegu fjár-
framlagi, er ekki sé minna en */4 á móts við styrk þann,
er þær njóta annarstaðar frá, og borgar að hálfu leyti þeim
manni, er annast tilraunirnar. Það styður og eftir því sem
unt er tilraunastöðvar, er komið yrði upp af einstökum fé-
lagsdeildum, enda sé staðurinn valinn í samráði við félags-
stjórnina.