Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Blaðsíða 39
41
3. Að félagið útvegi meðlimum sínum gott fræ og útsæði,
góð jarðyrkjuverkfæri og tilbuin áburðarefni, ef reynslan
sýnir, að svarað geti kostnaði að nota þau hér á landi,
og ennfremur trjáplöntur til gróðursetningar fyrir lítið verð.
4. Að félagið gefi hverjum, sem óskar þess, allar upplýsingar,
sem að jarðrækt lúta, vill það því ætíð reyna að hafa í
sinni þjónustu menn, sem færir eru um að gefa þessar
upplýsingar. Einnig vill það láta menn ferðast um og
halda fyrirlestra um jarðrækt, til að auka áhuga manna
og þekkingu í því efni.
5. Að koma á fót verklegri kennslu í garðrækt, plægingum,
grasfræsáningu og gróðursetningu trjáa á einum stað í
hverri sýslu á Norðurlandi.
4. grein.
Sjái félagið sér fært að hafa verksvið sitt víðtækara, en
ákveðið er í 3. gr., getur aðalfundur tekið ákvörðun uijn það.
11. Stjórn og fyrirkomulag.
5- grein.
Félagi er hver sá, sem greiðir 2 krónur árlega í félags-
sjóð, eða 20 krónur í eitt skifti fyrir öll. Einnig hver sá,
sem aðalfundur hefir kosið sem heiðursfélaga. Búnaðarfélög,
sem greiða 10 krónur árlega, verða og taldir félagar.
6. grein.
Félagsmenn skiftast í deildir, er aðallega séu bundnar
við hreppa eða kaupstaði. Þó geta fleiri hreppar sameinast
í eina deild, ef hreppsbúum kemur saman um og stjórn Rækt-
unarfélagsins samþykkir það. í hverri deild skulu vera minst
20 félagsmenn eða 15 félagsmenn og I Búnaðarfélag Hver
deild skal hafa eitthvert ætlunarverk, er sé í samræmi við
störf og stefnumið aðalfélagsins. Einnig skulu deildirnar tak-
ast á hendur störf hreppsbúnaðarfélaganna, þar sem búnaðar-
félagsmenn óska þess, og koma þær þá algjörlega í þeirra
stað. Deildirnar eru háðar lögum félagsins, en að því er
3