Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Page 41

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Page 41
43 endurskoðaðir og kosnir endurskoðendur til næsta árs; aðal- fundur kveður á um starfsemi félagsins komandi ár. Fundir- nir skulu haldnir til skiftis í sýslunum, eftir þvf, sem síð- asti aðalfundur ákveður. Q. grein. Stjórnin annast allar framkvæmdir félagsins. Hún boðar til funda og undirbýr málefni þess til aðalfundar. Einnig hefir stjórnin á hendi alla bókun fyrir félagið, bréfaviðskifti og ræður starfsmenn þess. Stjórnin getur boðað til auka- fundar til að ræða einstök vandamál, einnig er skylt að halda aukafundi, sé þess æskt af >/3 hluta fulltrúanna. 10. grein. Félagið lætur árlega prenta skýrslu um starfsemi sína. Sjái félagið sér fært, gefur það út tímarit eða smáritlinga um jarðrækt. Alt það, sem félagið lætur prenta, verður sent öllum félögum ókeypis. 11. grein. Gjalddagi á tillögum félagsmanna er I. Október ár hvert. Reikningsár félagsins er almanaksárið. ► 12. grein. Hver sýsia á félagssvæðinu á kost á að koma upp einni aðaltilraunastöð á þeim stað í sýslunni, sem stjórn Ræktun- arfélagsins álítur heppilegastan, með því skilyrði að sýslan sjái um land og girðingu, ásamt undirbúningi jarðvegsins, en félagsstjórnin segir tyrir um, hvernig haga skuli tilraun- unum. Félagið styrkir tilraunastöðvar þessar með árlegu fjár- framlagi, er ekki sé minna en */4 á móts við styrk þann, er þær njóta annarstaðar frá, og borgar að hálfu leyti þeim manni, er annast tilraunirnar. Það styður og eftir því sem unt er tilraunastöðvar, er komið yrði upp af einstökum fé- lagsdeildum, enda sé staðurinn valinn í samráði við félags- stjórnina.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.