Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Qupperneq 2

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Qupperneq 2
4 þess og starfsþrek voru æði óljósar eftir þvf að dæma, er síðar hefir komið í ljós. — Margir hafa ekki fyllilega gert sér það ljóst, að tilraunastarfsemin er og á að vera megin þátturinn í öllum framkvœmdum félagsins. A hana verður að leggja aðaláherzluna. Markmið Ræktunarfélagsins er mikil og arðsöm jarðrœkt og að þessu takmarki leitast það við ná með margbreyttum og ítarlegum tilraunum. — Það vill láta spyrja íslenzku náttúruna hvað auðveldast og arðsamast sé að rækta hér, og hvernig eigi að gera það, spyrja þangað til fengin eru áreiðanleg svör. En tilraunaleiðin er seinfarin og torsótt, en hún er líka langvissasti vegurinn að takmarkinu. Eg hefi orðið þess var að sumir gera sér þetta ekki fylli- lega ljóst og gera því ýmsar þær kröfur til félagsins, sem eru með öllu ósanngjarnar. En eg skal þegar taka það fram, að þessir menn eru sem betur fer sárfáir í samanburði við fjölda félagsmanna. Tortrygni og ótrú á alla nýbreytni eru stórskaðlegar öll- um góðum félagsskap og framfaraviðleitni, og því miður eru þær systurnar uppvöðslumeiri vor á meðal en góðu hófi gegnir, en oftrú á ný fýrirtæki og oftraust til þeirra manna er með þau fara geta líka verið varasamar. Slík oftrú á venjulega rót sína í því, að menn gera sér ekki glögga grein fyrir því, hversu fyrirtækinu er varið og ætlast svo til ýmislegs þess, bæði af fyrirtækinu og mönnum þeim, sem að þeim standa, sem ekki nær nokkurri átt. Þetta hefir því miður átt sér stað með Ræktunarfélagið og forgöngumenn þess, þótt það sé furðu lítið þegar þess er gætt, að félagið er enn á bernskuskeiði og því ekki búið að ná fullri festu. Það lítur svo út, að stöku menn hafi vænst þess undurs eða kraftaverks, að félagið umsteypti allri jarð- rækt hér á landi á einu eða tveimur árum og að félagsmenn hefðu þegar stórkostlegan beinan hag af því að vera í félag- inu. Svo þegar þessar vonir rættust ekki á þann hátt sem menn höfðu ætlað, urðu þeir óánægðir og hótuðu jafnvel sumir að fara úr félaginu eða neituðu að borga tillög sín og voru með því sjálffarnir úr þvf. Slíkir menn sem þessir eru fáir sem betur fer, en aftur eru þeir nokkrir sem mislíkað hefir

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.