Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Page 29

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Page 29
VII. £eiðbeiningaferðir star/smanna Rœktunarfélags Norðurlands, sumarið 1906. i. Sigurður Sigurðsson skólastjóri ferðaðist um vestursýslurnar (einkum Húnavatnssýslu) frá 13. júlí til I. ágúst. — Þar í talin för til Reykjavíkur. Skoðaði hann tilraunastöðvarnar á Æsustöðum, Blöndu- ósi, Sauðárkrók og Hólum, og einnig nýstofnaða trjáræktar- stöð á Sveinsstöðum. Kom hann auk þess á ýmsa staði til athugana og leiðbeininga. Dagana 30. ágúst til 2. sept. fór Sigurður ásamt Ingi- mar bróður sínum um Bárðardal. Förin var »gerð í þeim tilgangi, að komast að raun um, samkvæmt ósk Bárðdæl- inga, hvort gerlegt væri að koma Skjálfandafljóti upp yfir grundirnar í dalnum.« Mælingarnar sýndu, að fyrirtækið er vel mögulegt. Þarf 3400 faðma langan skurð til að ná vatni yfir 300—400 dagsláttur. Skurðurinn yrði um 550 dagsverk. Aætlað er, að kostnaður við fyrirtækið muni verða alt að 2000 krón- um. Ætla má, að áveitan mundi auka grasvöxtinn svo mikið, að fyrirtækið hljóti að gefa talsverðan arð. A Hvarfi f Bárðardal mældu þeir fyrir vatnsleiðsluskurði, er flytja skal vatn úr fljótinu yfir eyju, er liggur fyrir neðan bæinn. Til þess þarf um 550 faðma langan skurð. Mundi kostnaður við hann nema um 200 krónum. 15.—16. sept. fór Sigurður fram í Eyjafjörð. Var það einkum eftir ósk félagsmanna R. N. í Saurbæjardeild. Héldu

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.