Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Page 38
X.
oCög
Rœktunarfélags Norðurlands.
1. grein.
Félagið heitir Ræktunarfélag Norðurlands. Heimili þess og
varnarþing er í Akureyrarkaupstað.
I. Tilgangur.
2. grein.
Tilgangur félagsins er:
1. Að láta gjöra nauðynlegar tilraunir til jarðræktar á Norð-
urlandi.
2. Að útbreiða meðal almennings þekkingu á öllu því, sem
að jarðrækt lýtur, og líkindi eru til að komið geti að gagni.
3. grein.
Félagið vill ná tilgangi sínum með þvf að verja tekjum
sínum og sjóðseignum á þann hátt er nú skal greina:
1. Að koma á fót einni tilraunastöð á Norðurlandi, þar sem
gjörðar verði tilraunir með garðyrkju, grasrækt, skógrækt
og tilbúin áburðarefni.
2. Að minni tilraunastöðvum verði komið á fót, víðsvegar um
Norðurland, að minsta kosti einni í hverri sýslu. A þess-
um stöðvum verði gjörðar þær tilraunir, sem sérstaklega
geti haft þýðingu fyrir hvert hérað, t. d. með tilbúin á-
burðarefni, einnig þær tilraunir, sem búið er að gjöra á
aðalstöðinni, og líkindi eru til að mundu hafa þýðingu
fyrir jarðræktina, t. d. grasfræsáning, garðyrkju og gróður-
setning trjáa. Tilraunum þessum skal stjórnað frá aðal-
stöðinni.