Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1934, Side 79
81
þá Akrahreppur til vesturhlutans, en Rípurhreppur til
austurhlutans«.
Eftir all-langar umræður var tillagan borin upp til
samþyktar með 4. lið áætlunarinnar, og samþykt með
öllum samhljóða atkvæðum.
Þá var fundi frestað til kl. 9 að morgni næsta dag.
Þann 17. mars kl. 9 árdegis var fundinum fram-
haldið.
Var þá tekinn fyrir 6. liður dagskrárinnar, sem var
erindi ráðunauts Vigfúsar Helgasonar, um framræslu.
Erindið var fróðlegt og hvatti hann bændur til þess
að ræsa betur fram land það, sem tekið er til ræktun-
ar, og gera það nokkru áður en landið er ræktað.
Einnig gaf hann ýmsar gagnlegar bendingar um fram-
ræsluna. Fundarmenn þökkuðu erindið með lófataki.
Nokkrar fyrirspurnir voru gerðar til ráðunautsins,
sem hann svaraði greinilega.
Þá var haldið áfram að ræða fjárhagsáætlunina,
þar sem fyr var frá horfið.
Fimta lið fylgdi svofeld tillaga frá stjórninni:
»Fundurinn felur stjóm Búnaðarsambands Skag-
firðinga að koma af stað á næsta hausti byrjun á sút-
un skinna, með nauðsynlegustu tilheyrandi áhöldum.
I þessu skyni má stjórain leigja húsnæði, þar sem
hentug skilyrði væru fyrir hendi, og ráða mann til
starfsins. Jafnframt skal stjómin vinna að því að
tekin verði upp notkun sútaðra skinna, til ýmislegra
heimilisþarfa innan héraðs. Ætlast er til þess, að hér-
aðsbúar geti fengið sútað bæði loðskinn og húðir með
vægu verði. Ennfremur gætu nokkrir menn af sam-
bandssvæðinu fengið leiðbeiningar í einfaldri sútun
skinna, ef óskað er eftir.
Til alls þessa heimilast stjórninni að verja á þessu
ári allt að 1400 krónum úr sambandssjóði«.
6