Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 24
24
og bezta fáist ekki gert í málefnum Búnaðardeildarinnar og
því, sem fléttast þar saman við. Það er blátt áfram skylda
mín að gera ráð fyrir, að þau öfl geti orðið ofan á, íllu
heilli, sem virða meira malbik en mold, og meta dýrara
eigin stundarhag og þægindi heldur en framtíðarheill mik-
ils máls. Um leið tel ég það blátt áfram skyldu mína að
gera það litla, sem ég get, til þess að bjarga því sem bjargað
verður, ef ílla fer og hin verri leið verður valin, Framhalds-
deildin flutt frá Hvanneyri og Búaðardeildin kyrrsett fyrir
sunnan Kollafjörð, þó ekki sé nema með því að benda á hið
næst bezta, er gera má og gera verður, ef hið versta á ekki
að verða ofan á, eins og nú er jafnvel útlit fyrir.
Hið versta, sem getur skeð með Búnaðardeildina og
Framhaldsdeildina, er það, sem nú er á döfinni og helst
heyrist um: Að byggt verði við Atvinnudeildina við Hring-
brautina, svo að það verði framvegis húsnæði fyrir skrif-
stofur og rannsóknastofur Búnaðardeildar. Raunar hefur
einnig komið til tals, að Búnaðardeildin flytti í leiguhús
næði hjá Búnaðarfélagi íslands, er félagið hefur reist höll
sína við Melatorg. Samhliða þessu á svo, eins og ég hef áður
sagt, að efna til nýrrar beitarhúsaaðstöðu fyrir búvísinda-
menn Búnaðardeildar á Korpúlfsstöðum, hopa á hæl þang-
að frá Varmá.
Jafnframt á svo Framhaldsdeildin á Hvanneyri að leggj-
ast riður, en Búnaðardeildin og Háskóli Islanás á við þess
ar aðstæður að taka að sér framhaldsmenntun í búfræði,
svo að endist til kandidatsprófs.
Þetta má ekki ske. Það verður að fylkja liði vakandi
manna, til þess að afstýra þessum lágkúruskaþ, og koma.
Búnaðardeildinni á gras.
Þetta síðast nefnda atriði málsins er ofur einfalt og hið
sama, hvort sem Búnaðardeildin verður svínbundin Reykja-
víkurmegin Kollafjarðar eða kemst upp að Hvanneyri.
Búnaðardeildin á að fá hæfilegt og hentugt land til fullra