Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 38
38
XVIII.
Erfitt er fyrir ókunnuga að átta sig á því, hvernig á því
stendur, að tilraunastörf þeirra vísindamanna í Búnaðar-
deild, sem fást eiga við furtakynbœtur og rœktunarrann-
sóknir, hafa leiðst svo mjög inn á meira en vafasama braut,
svo sem áður er lýst, stundum er jafnvel unnið að hálf-
gerðri endurtekningu á því, sem verið er að gera á tilrauna-
búunum fjórum, og þó að því sé ekki til að dreifa, ýmist í
hálfgerðri samkeppni við tilraunabúin, eða að athugunum
og tilraunum þess háttar, sem tilraunabúin eiga að eðlileg-
um hætti að sinna.
Starfsmenn Búnaðardeildar á þessu sviði fyrr og nú verða
ekki sakaðir um þetta einir manna, þó að mjög sé þeim málið
skylt, hér er stærra í efni. Rannsóknaráð og Tilraunaráð
jarðræktar hafa blátt áfram á ótrúlegan hátt beitt mjög
óheppilegri handleiðslu í málinu og beint starfinu inn á
þá braut, sem hefur verið gengin nú um skeið.
í tillögu dags. 7. apríl 1951, kemst Rannsóknaráð þannig
að orði um verkefnin og „framtíðarskipun jarðræktartil-
rauna og jurtakynbóta við búnaðardeild“:
„1. Samanburðarrannsóknir á fóðurgrösum með það fyrir
augum að velja fræblöndur, er aðeins innihalda tegund-
ir, er koma að fullu gagni við íslenzka staðhætti. Álitleg-
ustu fræblöndurnar yrðu svo sendar tilraunastöðvunum
víðs vegar um land til þess að prófast frekar við fjöl-
breytileg skilyrði. ■
2. Kornræktartilraunir, þar sem stöðugt séu reynd ný af-
brigði, sem fram koma erlendis og reynt að velja úr
þau, sem bezt henta hér. Álitlegustu tegundirnar yrðu
svo reyndar frekar á tilraunastöðvum út um land, og
mundu þær svo rækta sáðkorn handa bændum af þeim
afbrigðum, sem bezt reyndust.
3. Samanburðartilraunir á kartöfluafbrigðum, þar sem