Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 43
43
— „Tilraunastöðvarnar fella svo sinn endanlega dóm.“
Þannig er skilgreining Búnaðardeildarinnar á verkaskipt-
ingunni, og með nafninu tilraunastöðvar er átt við tilrauna-
búin fjögur og margnefndu.
Það er auðvitað enginn vansi fyrir vísindamenn Búnaðar-
deildar að vinna einföldustu tilraunastörf og að athug-
unum — til undirbúnings verulegum tilraunum. Samt er
þetta engin verkaskipting né starfstilhögun, sem röksemd
er í. Með því að hafa einn aðstoðarmann í starfi með
Klemensi á Sámsstöðum, var leikandi auðvelt að gera þar,
það sem gert hefur verið að þessum kartöflu- og grasfræ-
stofna úrvinnslu athugunum á vegum Búnaðardeildarinn-
ar. Hefðu þá vísindamenn Búnaðardeildar getað notað tíma
sinn betur til stærri starfa. Þetta er augljóst þeim, er sjá
vilja. Hið sorglega er, að hin umræddu vinnubrögð og
verkaskiptin eru eftir forskrift Tilraunaráðs jarðræktar og
Rannsóknaráð ríkisins frá 1951.1)
Hér er um svipað að ræða, eins og ef Háskóli íslands
tæki að sér að búa unglinga undir inntökupróf í Mennta-
skólann og vinsaði úr þá, sem þættu hæfastir til náms í
1) Hér má benda á það, að aðstoðarmenn hafa alls ekki verið
fáanlegir á tilraunastöðvarnar, þó að þráfaldlega hafi verið eftir
þeim leitað, og að meðan Búnaðardeildin hefur ekki aðstöðu til þess
að vinna að stærri verkefnum, er bæði krefjast bygginga og betra lands,
virðist ekki óeðlilegt, að starfsmenn deildarinnar veiti tilraunastöðvun-
um þá aðstoð, er þeir mega veita við ófullkomna aðstöðu. A það má
einnig benda, að eitt meginatriðið í kynbótum jurta, en þær telur höf-
undur þó tvímælalaust verkefni búnaðardeildar, er einmitt úrvinnsla
þeirra tegunda, er fram koma við kynbæturnar, og því alveg hliðstætt
þeirri úrvinnslu á erlendum gróðurtegundum, er búnaðardeildin hefur
gert. Útvegun þessara jurtastofna og fyrsta úrvinnsla þeirra er líka síð-
ur en svo vandalítið verk. — Skortur aðstoðarmanna á tilraunastöðvun-
um hefur lengi verið vandamál, sem öllum hlutaðeigandi aðilum hefur
verið ljóst, en annað hvort hafa engir fengizt, eða þeir hafa ekki viljað
ílendast. Hefur jafnvel reynzt fullerfitt að fá tilraunastjóra. — Ó. J.