Vísbending


Vísbending - 20.12.2002, Blaðsíða 14

Vísbending - 20.12.2002, Blaðsíða 14
VÍSBENDING Vísbending ársins Nú er botninn sleginn í 20. árgang Vísbendingar. Árið var um margt athyglivert þar sem efnahagskrísur og spilling settu mark sitt á það og óvissan um efnahagssveifluna gerði menn tvístígandi. Slíkur línudans einkenndi einnig íslenska viðskipta- og efnahagsumræðu þar sem ísland er að mörgu leyti á krossgötum um þessar mundir. Vísbending hefur eins og endranær leitað fanga víða og notið aðstoðar helstu sérfræðinga landsins í viðskipta- og efnahags- málum. Margir þeirra skrifuðu athygliverðar greinar, eins og Sig- urður Jóhannesson, Ólafur Klemensson, Þórður Friðjónsson, Bjami Bragi Jónsson, Guðmundur Magnússon og Gylfi Zoéga svo að einungis fáeinir séu nefndir. Við þökkum öllum þeim sem skrifað hafa í Vísbendingu fyrir framlag þeirra. Hér á eftir má sjá glefsur úr því sem skrifað var á árinu. Frjálst ísland f. yrir Islendingum hefur farist eins og mörgum fyrrverandi nýlendu- -/ þjóðum: Þeir kenna fyrrverandi nýlenduherrum um allt, sem miður hefur farið, í stað þess að líta í eigin barm. Getur ekki verið, að fátœkt okkar hafi að mestu leyti verið okkur sjálfum að kenna? Hefur hún ekki átt rœtur sínar í skipulagi, sem lamaði allt framtak? 13. tbl. - 29. mars (Hvers vegna var Island fátækt? - Hannes H. Gissurarson). Y'firleitt má gera ráð fyrir að stjórnirnar hafi hag sjóðfélaga að leið- arljósi, en hœtta er á að kappsfullir stjórnarmenn [lífeyrissjóðannaj láti atvinnusköpun eða önnur pólitísk sjónarmið villa sér sýn, eða beygi sig fyrir þrýstingi stjórnvalda, fremur en að hœtta á að missa völdin. I valfrjálsu kerfi er þessi hœtta lítil, samkeppnin gerir það að verkum að sjóðirnir reyna hvað þeir geta til þess að þóknast sparendum. 14. tbl. - 5. apríl (Frjáls verslun með lífeyrisréttindi? - Sigurður Jóhannesson). Almennt hafi því stóru ríkin varast þá skattasamkeppni, sem Irland er þekktast fyrir síðari árin og Island hefur nú byrjað á. Samsetning skattanna hafi heldur ekki borið Ijós merki slíkrar samkeppni, sem helst mundi létta sköttum af rekstri og flytjanlegu fjármagni, en koma að sama skapi þyngra niður á vinnutekjum, sem eru staðbundnari. 5. tbl. - 1. febrúar (Hnattvæðing og hagsæld - Bjarni Bragi Jónsson). Einkavæðing ríkisins TT’f við viljum af stjórnmálaástœðum takmarka hlutdeild ríkisins i 1—/ þjóðartekjum þá er ljóst að slíkt fer ekki saman við aukna eftir- spurn eftir menntun, samgöngum og heilsugœshi nema að slík þjónusta verði að miklu leyti einkavædd. I öðru lagi virðist svo vera sem ríkis- útgjöldin ráðist að nokkru af breytingum skatttekna: Skalttekjur orsaka ríkisútgjöldin en ríkisútgjöldin orsaka ekki skatttekjurnar. 18. tbl. - 3. maí (Wagner og ríkisútgjöldin - Gylfi Zoega). x /litlu landi sem bæði hefur búið við takmarkanir á fjárfestingum út- lendinga og skort hefur erlendar fjárfestingar um langt skeið kann að vera að haíli nokkuð á ríkisvaldið í samskiptum við stórufjárfestana og vel má vera að samskipti ríkisvaldsins við m.a. erlend álfyrirtœki og DeCode beri nokkur merki þess. 17. tbl. - 26. apnl (Breytir einhv. hvaðan peningamir koma? - Þór Sigfússon). T-'yrstu mœlingar lífsgœðastuðulsins sem gefnar eru upp í skýrslu Sam- 1 einuðu þjóðanna eru frá 1975. Þá var Island einnig meðal efstu þjóða og reyndar ofar en í dag. ...Afyrri hluta tíunda áratugarins dróst Island aftur úr efstu þjóum þar sem þjóðin var komin í þriðja sœtið árið 1990 með stuðulinn 0,913... en féll niður í það níunda með stuðulinn 0,918 árið 1995. lsland spretti þó úr spori í lífsgœðakapplilaupinu á seinni liluta tíunda áratugarins, þó ekki nœgilega mikið til að ná bronsinu á ný. 30. tbl - 26. júlí (Lífsgæðingur - eíj). CfkattlœMunin á þessu ári var þó stórt skref til aukins frjálsrœðis og Ljhefur sennilega gert gœfumuninn að ísland telst nú „frjálst land" [skv. mati The Heritage Foundation]. Enn er þó mikið svigrúm til aukins frjálsræðis. 5. tbl. - 15. nóvember (Frjálst og samkeppnishæft ísland (V-ÍA) - eíj). Krónan og gengismál M’arkaðskerfið hefur sína galla sem oft koma í Ijós þegar grunn- þætti, eins og traust og heiðarleika, þrýtur. Það vill hins vegar oft gleymast að hið opinbera hefur einnig sína galla, það er einnig drifið áfram af eiginhagsmunum sem oft þarf að hemja til þess að þeir geti þjónað almannahagsmunum, rétt eins og í einkageiranum. Endalaus út- þensla ríkisins er ein birtingarmyndin en það þarfað varpa kastljósinu að þeirri staðreynd að óhófleg grœðgi og eiginhagsmunir eru enn al- varlegri í innviðum ríkisins en þau geta nokkurn tímann orðið á mark- aðinum. 29. tbl. - 19. júlí (Græðgi ríkisins - eíj). Lagasetning um 20 milljarða ríkisábyrgð til DeCode hratt af stað þörfum umrœðum um hlutverk ríkisins í atvinnulífinu. Sértœkur stuðningur hins opinbera við fyrirtœki nemur 20-30 milljörðum króna á ári hér á landi. 22. tbl. - 31. maí (Uppbygging í skjóli ríkisstyrkja - Sigurður Jóhannesson). Markaðsvirði Landsbanka, Búnaðarbanka og Landssímans er sam- tals 80-85 milljarðar króna eða nærri fimmtungur af mark- aðsvirði altra félaga á Verðbréfaþingi íslands. Ef þessi fyrirtœki yrðu einkavœdd aðfullu gœti velta hlutabréfa á þinginu aukist um 15-30% frá því sem nú er. 12. tbl. - 22. mars (Framhald einkavæðingar - Þórður Friðjónsson). ltyjð er hins vegar Ijóst að peningamálastefna sem byggir á verðbólgu- Jr markmiði getur valdið verulegu gengisflökti. Tiltölulega litlar vaxta- lœkkanir valda miklu gengisfalli og vaxtahœkkanir samsvarandi gengis- hœkkun. Peningamálastefna sem miðast við að halda verðbólgu stöðugri getur þá aukið mjög við óvissu íþeim greinum sem framleiða vörur til út- flutnings og/eða keppa við innflutning. 6. tbl.- 8. febrúar (Gengisflökt og inngrip á vinnumarkaði - Gylfi Zoéga). Varasamt er að draga þá ályktun að myntráðsfyrirkomulag henti ekki í litlum, opnum hagketfum þótt nokkur misbrestur hafi verið áfram- kvœmd mála i Argentínu. Hér staðfestist að styrk fjármálastjórn og var- færni í erlendum lántökum skiptir meira máli en fyrirkomulag gengis- mála. 2. tbl. - 11. janúar (Argentína - Björn G. Ólafsson). 1 Telstu hœttumerkin yfir stöðugleik gengisins standa í samhengi við J. Jannars vegar grundvallarkjör framleiðslu og viðskipta, sem raun- gengið er fulltrúi fyrir, og hins vegar stöðugleik almenns verðlags, þar sem opinber fjármál skipta miklu en vaxtastjórn er þrautalendingin. AII- vel virðist horfa um þessa efnislegu þœtti, hvort sem litið er til íslands eða vestrœnna landa almennt. 19. tbl. - 10. maí (Raungengi krónunnar... - Bjarni Bragi Jónsson). Gleðileg jól og farsœlt komandi ár! NÓISÍRÍUS 14

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.