Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1954, Page 13

Frjáls verslun - 01.12.1954, Page 13
Lappavölvan. Uin haust kvaddi ég hin heilögu fjöll Lapp- lands, tárhrein vötn með kaldbláa fleti, tjöld og torfi þakin hús við Inarivatn. Þá var laufskóg- nrinn sem logandi litahaf, en barrskógana, dökk- græna, bar við snæviþakin fjöll. Eg hvarf frá þessu æfintýralandi með trega, því þar var hver dagur heillandi fagur og áhyggjulaus. Hreindýra- hjarðirnar voru nú komnar af fjöllum, dýr þau, er setjast skyldu á vetur, mörkuð, sleðarnir teknir fram til athugunar og bátar í naustum. Tenoáin niðaði í fjarska, en við fjallabrúnir hnitaði örninn hringa og skógarbjörninn bjóst fyrir í híði sínu. Erfiðast var þó að kveðja hið góða og gestrisna fólk, því marga vini hafði ég eignazt meðal lappanna á veiðiferðum og við h rei ndýrasmöl u n. Hreindýrakóngurinn Thuri, synir hans Atti og Amul, ráðskonan Sosolo og einkadóttirin Aikia báðu mig vera. og dvelja þar vetrarlangt. „Svo ég gæti lært að aka hreinasleða og elta úlfa um fjöllin“. Á jólunum skyldi farið í kynnisferðir um dali og spegilsléttan ís ánna og vatnanna „þegar norðurljósin dansa og IJldarnir (náttúru- andar) kasta glóandi steinum um himinhvolfið“. Þá gæti ég hlustað á spakmæli NIIA einsetu- manns og sopið seyði með völfunni LABBA og talað við feðurna, sem farnir voru til Odáins- akurs. Þetta var lokkandi eins og huldufólksbænir. Félagi minn og leiðsögumaður spáði því, að svo myndi fara, ef ég yrði kyrr, að ég gæti að lokum ekki yfirgeíið Lappland. Þa.nnig hafi farið fyrir honum fyrir 7 árum, þó átti hann þá vísan frama og virðuleg embætti í einu mesta menntalandi álfunnar. Hann byggði sér bjálkahús við Tenoána, á- samt konu sinni, sem fórst af slysförum síð'ar. Þannig fór fleiri menntamönnum, frönskum FR.TÁLS YERZLUN 113

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.