Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1954, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.12.1954, Blaðsíða 17
Prá liönum dögum- Samaslaður næturvarðanna var undir veggjum Landsbankans GuSm. Stefánsson, 1'órSur Geirsson, Kristján Jónasson og Utajur Magnússon. Flestir Reykvíkingar og margir aðrir kannast við' Þórð Geirsson, fyrrverandi lögregluþjón. — FRJÁLS VERZLUN átti nýlega tal við liann og bað hann segja lesendum blaðsins eitthvað frá því, sem á daga hans hefur drifið. Hvenær og livar ertu jæddur? Ég er fæddur 4. ágúst 1877 að Bjarnastöðum í Grímsnesi, að því er kirkjubækurnar segja og verður maður víst að halda sig við það. Til Reykjavíkur fluttist ég alkominn árið 1901. Iívaða störf stundaðir þú? Fyrst var ég til sjós á þilskipum, en síðan vann ég í Slippnitm við hampþéttun skipa og köfun. Starfaði lengi sem eini kafarinn hér, því að Ársæll Sigurðsson var þá á björgunarskipinu Geir. Ekki höfðum við kafararnir þá talsamband við aðstoðarmenn okkar eins og nú tíðkast. Eina samband okkar við þá var lína og kipptum v\ð í hana eftir þar til gerðu merkjamáli. Hvenœr gerðist þú svo lögregluþjónn? Upphafið að löggæzlustöríum mínum var það, að ég varð fyrsti næturvaktmaðurinn í Slippn- um. Eg var við það frá því í byrjun september til loka desembermánaðar 1907. Þá bauðst mér gæzlustarf hjá kaupmönnum í Hafnarstræti og var ég þar til aprílloka 1908. Starf þetta var alltaf lagt niður að sumrinu. Þegar ákveðið var að íjölga næturvörðunum í lögreglunni um einn (í fjóra) frá og með 1. janúar 1908, þá sótti ég um það starf, en fékk ekki. Sá, er hlaut stöðuna, sagði henni svo upp frá 1. júní sama ár. Þorvaldur Björnsson yfir- lögregluþjónn lagði að mér að endurnýja um- sókn mína, en þegar ég neitaði því, þá endur- nýjaði hann hana sjálfur, og var ég ráðinn. Næstu 13 ár gegndi ég svo lögreglustörfum á næturnar. Þá voru vaktaskipti ekki byrjuð. Ef ekkert sérstakt var um að vera, þá hófst starfið kl. 10 á kvöldin og lauk kl. 7 að' morgninum. Skeði nokkuð sérstakt mn jólin á meðan þú varst á þessari vakt? Nei, þá var allt með kyrrum kjörum eins og vera ber á þessari hátíð friðarins. Rabbað við Þórð Geirsson fyrrverandi lögregluþjón FRJÁLS VERZLUN 117

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.