Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1954, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.12.1954, Blaðsíða 26
EDISON Mesti velgjörðarmaður mannkynsins ' ■-i'. Þegar Thomas Alva. Edison fæddist í þennan heim, átti læknirinn að hafa hvíslað að föðnr hans: „Það er allt :;of stórt höfuðið á drengnum. Allt of stórt! Það er hætt við, að heilinn sé eklci rétt skapaður. Mér lízt ekki á það.“ Og læknir- inn kvaddi og fór. Hann hafði gert skyldu sína. Þessi orð læknisins bárust út smátt og smátt. Og þegar drengurinn stálpaðist, virtist mörgum sem spáin ætlaði að rætast. Þetta fór þó á annan veg, og allar hrakspár bernskuáranna voru gleymdar og grafnar með framtaki og hugvits- semi þess manns, sem allt mannkynið átti eftir að standa í ómetanlegri þakkarskuld við. Edison var uppfinningamaður í orðsins fyllstu merkingu; sennilega sá lang afkastamesti, sem nokkurntíma hefur uppi verið. A þeim 84 árum, sem hann lifði, voru honum veitt hvorki meira né minna en 1097 einkaleyfi af Einkaleyfisskrif- stofu Bandaríkjanna, allt frá grammófóninum til litla vartappans, sem vakir yfir rafstraumi heimila okkar. Á hátindi sköpunarferils síns lét Thomas Edison þessi orð falla: „Heitasta ósk mín er að gera allt, sem í mínu valdi stendur, til þess að losa fólk undan þrældómi og skapa því eins mikla hamingju og velmegun og föng eru á. Á þessu ári, 1954, höldum við hátíðlegt „demantsafmæli rafljóssins“, en nú eru liðin 75 ár frá því Edison fann upp glóðarlampann. Þessi lampi, sem fullgerður var 21. október 1879, varð brautryðjandi rafljóssins og orkuiðnaðar nútímans. Hann skapaði bjartari heimili, verk- smiðjur, skóla og sjúkrahús; gerði götur og þjóð- vegi öruggari og skapaði aukna möguleika til lesturs og náms. Á þeim tímum, þegar gas, olía og kerti voru það helzta, sem notað var til lýsinga, má segja, að glóðarlampi Edisons hafi hleypt sólskini inn í húsin. Tveimur árum áður, 1877, hafði hann fundið upp grammófóninn, en einkaleyíi á honum var veitt 19. febrúar 1878, aðeins átta dögum eftir að Edison varð 31 árs. Þegar hann var spurður að því á fullorðinsárum sínum, hver uppáhalds upp- fyndning hans væri, nefndi hann ávallt grammó- fóninn. Á meðan Edison vann að uppfinning- um sínum, skrifaði hann í dagbók sína: „Það leikur enginn efi á því, að ég mun geta tekið upp rödd manna og endurvarpað henni sjálf- krafa á hinn fullkomnasta hátt, hvenær sem er.“ I dag getum við keypt hljómplötur, er endur- varpa röddum manna, sem eru löngu dánir. Árið 1889 fann Thomas Edison upp kvik- myndatöku- og sýningarvélina.. Mönnum. kann að þykja það harla ótrúlegt, að fyrsta kvikmynd- in, sem Edison framleiddi, var talmynd, þar sem þöglu myndirnar voru yfirleitt sýndar um langt árabil áður en tal og tónn var upp tekinn. I þessari fyrstu kvikmynd lians var aðalhlutverk- ið tónlistarmaður, sem lék á fiðlu, og var tónlistin jafnframt tekinn upp á Edison-grammófón. Um leið og kvikmyndin var sýnd, var tónupptakan samræmd við allar hreyfingar eins og þær birt- ust á léreftinu. Samfara þróun glóðarlampans urðu margs- konar vandamál á vegi hins unga uppfinninga- manns. Hann sá fram á það, að fáir menn höfðu efni á því að hafa einkarafstöðvar fyrir heimili sín; vinsældir og framfarir raflýsingarinnar bygggðust á rafmagnsmiðstöð fyrir lampana. Bogaljósin, sem fundin höfðu verið upp áður, 126 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.