Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1955, Side 1

Frjáls verslun - 01.08.1955, Side 1
A réttri leið Kyrrstöðu fylgir hrörnun. Þetta á einnig við um atvinnuvegi. Það eru dauðamörk á þeirri atvinnu- stétt, sem ekki fylgir framvindu þróunarimiar, að- hæfir sig nýjum aðstæðum og kappkostar að þjálfa sig til lausnar stöðugt breytilegum viðfangs- efnum. Það hefur sem betur fer jafnan verið lífsmark en ekki feigðar, á íslenzkri verzlunarstétt, svo er fyrir að þakka þeirri bjartsýni, er hún hlaut í vöggu- gjöf og veganesti. Þau eru fjölmörg viðfangsefnin, sem bíða úr- lausnar verzlunarstéttarinnar, en eitt hið bráðasta, og það sem miklu kann að ráða um farsæld og örlög hennar, er aukin menntun, vaxandi verkkunn- átta, fullkomnari starfshæfni. Það er verzlunarfólk- ið sjálft, frá sendisveini til forstjóra, jafnt í smá- sölu sem heildsölu, kunnátta þess og hæfni, sem er hymingarsteinninn undir hagkvæmum verzl- unarháttum. Nýlega hafa SAMTÖK VERZLUNARSTÉTTAR- INNAR í samvinnu við aðrar stofnanir stigið spor á réttri leið til aukinnar verzlunarmenningar. Er hér átt við tvær heimsóknir erlendra viðskiptasér- fræðinga á vegum Framleiðniráðs Evrópu og fyr- ixlestur forstjóra Oslóarkauphallar. Heimsóknir þessar eru árangur af aukinni þátttöku íslendinga í alþjóðlegTÍ efnahagssamvinnu. FRAMLEIÐNIRÁÐ EVRÓPU er önnur greinin af tveim, er spruttu upp af MARSHALL-AÐSTOÐINNI svonefndu. Tilgangur stofnunar þessarar er að stuðla að aukinni framleiðslugetu og bættu dreif- ingarkerfi aðildarþjóðanna. IÐNAÐARMÁLA- STOFNUN ÍSLANDS er í beinu sambandi við Framleiðniráðið og á vegum hennar hafa nýverið tveir hópar sérfræðinga heimsótt ísland. Voru þeir skipaðir hinum færustu mönnum í ýmsum sér- greinum verzlunar og hafa þeir með fyrirlestrum. heimsóknum x fyrirtælri og hverskonar leiðbein- ingum og ábendingum frætt íslenzkt verzlunarfólk um helztu nýjxmgar í verzlunarháttum. Margt hef- ur borið á góma í erindum sérfræðinganna og mun aðeins getið hér um nokur atriði. SJÁLFSÖLUVERZLANIR voru eitt af aðalum- ræðuefnum hinna sérfróðu um smásöluverzlun. Er þess að vænta, að leiðbeiningar þeirra muni hér bera sýnileg merki, því að talsverð hreyfing er á meðal kaupmanna um að taka upp slíkt verzlvm- arfyrirkomulag og hefur ein glæsileg verzlun þeirr- ar tegundar nýlega verið opnuð í Reykjavík. VÖRUÞEKKING hefur nokkuð verið tekin til meðferðar, enda er hún brýn nauðsyn, jafnt þeim, er við smásölu og heildsölu fást, og vantar tals- vert á að við hana hafi verið lögð nægileg rækt hér á landi. SÖLUSTARFIÐ OG SAMSTARF MILLI HEILD- SALA OG SMÁSALA eru á meðal verkefna síðari hóps sérfræðinganna, er aðaUega hafa telrið við- fangsefni heildverzlunar eða stórsöluimar til meðferðar. Er engin vanþörf á að þessum þætti viðskiptanna séu gerð betri skil en oft er raunin á. VÖRUGEYMSLUR eru því miður tíðum í litlu samræmi við hin glæsilegu verzlunarhúsakynni hérlendis. Góð vörugeymsla er þó engu ónauðsyn- legri en rúmgóð skrifstofa eða snotur verzlun. Af lélegum vörugeymslum leiðir óhollustu, vörurým- un, skemmdir og venjulega óhæfilegan vinnukostn- að. Hömlur á fjárfestingarleyfum eiga líklega einna mest sökina á hinum slæma húsakosd, sem vörugeymslur verzlana yfirleitt eru í. Á þessu þarf að verða breyting. Verzlanir, jafnt heildverzlanir sem smásöluverzlanir, þurfa að fá til afnota eða eignast nýtízku vörugeymslur, og ættu leiðbeining- ar sérfræðinganna að koma í góðar þarfir, er ráð- izt verður í þær framkvæmdir. KAUPHALLIR eru lítið kunnar hér á landi, enda hefur kauphallarstarfsemi ekki verið rekin hér á Framh. á bls. 134. FRJÁLS VERZLTJN 113

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.