Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1955, Page 4

Frjáls verslun - 01.08.1955, Page 4
Þetta má laga með verð’lækkurmm — og það strax. Ekki má líta á verðlækkanir sem slæmt fyrir- brigði, því þær má nota með árangri til að lagfæra mistök (og öllum getur yfirsézt). Það er hægt að nota þær til að losa verzlunina við óæskilegan varning og koma peningunum, sem bundnir hafa verið í honum, aftur í reksturinn. Raunverulegur tiigangur verðlækkana er fyrst og fremst að selja vörumar og þess vegna er ekki rétt að vera hræddur við þær. Ef vörurnar seljast ekki, fást ekki peningarnir í ný vörukaup. Ef verðlækkunum er réttilega beitt, munu þær auka viðskiptin og stuðla að heppilegri fjárfest- ingu. Aætluðum vörukaupum þarf að skipta niður á eftirfarandi vörur: 1. Venjulegan birgðavarning. 2. Sérstakar vörur. 3. Aðrar vörur. Venjulegur birgðavamingur er daglegur nauð- synjavarningur, hlutir, sem aldrei ætti að vanta í búðina, brauðið, smjörið og sykurinn. — Það em einlitar og mynztraðar baðmullarvörur, hvít- ar skyrtur, karlmannasokkar, og hinar sígildu, svörtu handtöskur í töskudeildinni. Birgðavarning pöntum við jafnan á ný og kaupum, þótt við eigum of miklar birgðir af öðmm vörum. Einnig munum við kaupa aðrar og sérstakar vörur, sem við gerum mikið fyrir til þess að selja, og sem. seljast vel vegna tízku eða. árstíða, en ekki jafnt og þétt eins og birgðavarningur. Sem dæmi má taka kvenpeysur, basttöskur og og nælonskyrtur. Þessar vörur verðum við að auglýsa og koma á framfæri í blöðunum, glugg- unum, 'búðunum og með sölumannakeppni. Við leggjum áherzlu á litina, hugmyndirnar og áhrif- in, og með því að við vitum, að vörurnar geta ekki talað, útbúum við spjöld fyrir allar vörur, sem sýndar eru með verði og öllum nauðsynleg- um upplýsingum. Fólk fer oft framhjá gluggum, ef vörurnar eru ekki verðmerktar, með því að það ætlar, að vörumar séu of dýrar. Ef vörur ykkar eru mikils virði og þið eruð stolt af að bjóða þær, ættuð' þið að láta alla vita söluverð- ið. Verðmiðalausar vörur fá fólk oft til að halda, að of mikið hafi verið lagt á þær. Innanbúðarsýningar ættu að vera bergmál af sýningargluggunum. Þær gera mikið til að selja vömmar og ættu að vera eins einfaldar, hávaða- lausar og áhrifamiklar og unnt er. Þetta auð- veldar sölustarfið og sparar peninga um leið og það bjargar við verðlækkunum á skemmdum vömm. Nauðsynlegt er að sölumenn og afgreiðslufólk fái allar hugsaniegar upplýsingar um vörur, sem það á að seija, og að það fylgist vel með því, á hvað aðaláherzian er lögð. Það ætti að hvetja starfsfólk þetta til að afla sér persónulegs fylgis viðskiptavinanna. Slíkt er gott fyrir verzlunina og kemur bæði söluma.nninum og viðskiptavin- inum til góða. Samkvæmt minni reynslu er engin söluaðferð áhrifaríkari en persónulegt samband, og í því sambandi vildi ég ræða notkun „viðskipta- mannaspjaldsins“. Það ætti að hafa spjald með eftirfarandi áletrun 1. Nafn viðskiptavinar. 2. Heimilisfang. 3. Símanúmer. 4. Greiðsluskilmálar, þ. e.: staðgreiðsla, reikn- ingsviðskipti eða greiðsla við heimsendingu. 5. Stærð’ir á fatnaði. Hinu megin á spjaldinu er rúm fyrir lýsingu og verðlag á varningi, sem viðskiptavinurinn hefur keypt, ásamt dagsetningu. Þið getið gert ykkur í hugarlund, hve vel góður sölumaður get- ur notfært sér slík spjöld. Við skulum taka dæmi: Eg minnist þess, að viðskiptavinur hrós- aði mér fyrir, hve vel ein afgreiðslustúlkan okk- ar afgreiddi. Mér var sýnt stutt, handskrifað bréf, sem afgreiðslustúlkan hafði sent til þess að segja frá sérstakri kjólategund, sem borizt hafði. Vegna upplýsinganna á viðskiptamannaspjald- inu gat afgreiðslustúlkan greint innkaupavenjur viðskiptavinarins og gert ráð fyrir þörfunum. Ekki þarf að geta þess, að þetta varð einn af okkar albeztu viðskiptavinum. Eg get ekki lagt nógu mikla áherzlu á það, hve mikils vir'ði þetta er og 'það sérstaklega í fatnað- arverzlun, hvort heldur er fyrir karla, konur eða börn, og einnig hef ég beitt aðferð þessari með góðum árangri í metravöruverzlun. Á þetta sér- staklega vel við, þegar nýjar árstíðabundnar vörur berast og þegar 'þarf að láta viðskiptavin- ina vita um sérstaka viðburði. Vefnaðarvöru þarf að stilla út á áhrifaríkan hátt með vel gerðum spjöldum, sem lýsa henni. Einnig er gott að hafa tízkudömur til að halda sýningu á tízkuvarningi. Þið kynnuð að spyrja, hvernig ákvarða eigi, 116 FHJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.