Frjáls verslun - 01.08.1955, Side 8
Bandaríkjunum eyðir meðalverzlun um 3% aí
nettósölu í alls konar auglýsingastarfsemi í blöð-
um, á spjöldum, með upphringingum, bréfum og
bíóauglýsingum. Auk þess er um 1%% sett í
sýningarglugga, útbúnað inni í verzlununum og
aðra söluaðlöðun. Samanlagður auglýsinga-
kostnaður verður þannig um 4%%. Þetta er
meðaltalið fyrir litla verzlun í Bandaríkjunum,
en hér er kostnaðurinn annar og talan kann að
breytast, en þegar sérstök vandamál ykkar eru
tekin til greina, kemur út sú tala, sem bezt hent-
ar ykkur. Aðalatriðið er að skipuleggja auglýs-
ingastarfsemina fyrirfram.
3) Utbúið vörulista.
Skrifið iista yfir vörur, sem keyptar eru og
sem mest áhrif munu hafa á viðskiptavini. Hér
er mikið atriði að vera á réttum tíma. Nauð-
synlegt er að bjóða það, sem viðskiptavinir ihelzt
þarfnast, þegar þeim Hggur mest á því. Ef það
er ekki gert, er illa farið með auglýsingakerfið
og peningana. Athugið magnið til að ganga. úr
skugga um, að það sé nægilegt fyrir söluna.
4) Nú verður að gera áætlun fyrir hvem dag
mánaðarins alveg eins og dagatal. Fjöldi fram-
sækinna fyrirtækja í Evrópu og Bandaríkjunum
nota þannig áætlanir. Hafa þau komizt að raun
um, að auglýsingafénu verður mun betur varið
þannig. Við þann dag, sem nota á vissa upphæð
í auglýsingaskyni, ber að slcrifa, hvað gera skal
svo og upphæðina. Slíka áætlun ber að gera frá
degi til dags allan mánuðinn. Það sýnir ekki ein-
göngu, hvað gert hefur verið í mánuðinum, held-
ur einnig, hvernig grundvalia ber áætlun fyrir
sama mánuð á næsta ári. Að kvöldi hvers dags
ber að skrá eftirfarandi 4 atriði í reit dagsins:
a) Hve verzlunin var mikil þann dag.
bi Veðurfar — það getur verið mikið atriði
á næsta ári.
c) Hvað keppinautarnir gerðu til að tryggja
viðskipti og hvaða sérstök tækifæri þeir
notuðu sér o. s. frv.
d) Alla meiri háttar viðburði í eigin verzlun
— birgðir seljast upp, — hópgöngur á göt-
um úti o. s. frv.
Eftir því sem áætlunin vex frá mánuði til mán-
aðar og ári til árs, getið þið borið saman við alls
kyns viðburði á tryggum grundvelli. Nýlega
sagði einn af happasælustu kaupmönnum vestan
hafs í ræðu: „Stöðugleiki sölu árstíðabundins
vamings frá ári til árs í meira en áratug (breyt-
ingin nam ekki nema 2%) sýnir enn, að fátt er
eins auðvelt og að spá um innkaup viðskipta-
vinanna á árstíðabundnum vörum.“
Skýrsla sérhvers dags, sem bætt er við áætlun
þessa, gerir hana meira virði, þar til hún verður
grundvöllur alls rekstursins.
Við skulum athuga nokkur leyndarmál, sem
áætlun þessi ljóstrar upp um:
1. Tafarlaust er hægt að segja til um hlut-
fallstölu viðskipta hvers mánaðar ársins
um sig. Þetta gefur nákvæma vísbendingu
um innkaup og auglýsingastarfsemi.
2. Finna má réttan tíma fyrir alla starfsemi,
enda sézt hvenær beztur árangur hefur
náðst.
3. Fyrirfram vitneskja fæst um, hvaða að-
ferðir keppinautar kunna að endurtaka —
í fjölda tilfella má vita daginn niikvæm-
lega.
4. Ef þið viljið hafa skrá yfir daglega sölu í
sérhverri deild, er enginn bezti grundvöll-
urinn undir úthlutun auglýsingafjár. Allt-
af er gott að veðja á þann hestinn, sem
vinnur. Setjið peningana í það, sem bezt-
an arð gefur.
5. Að lokum, og þetta er mjög áríðandi, mun
skrá þessi sýna ykkur, hvaða daga við-
skiptin voru mest. Ég hef vitað um verzl-
anir, sem auglýst hafa árum saman á lé-
legustu dögum vikunnar vegna þess, að
forstöðumennimir vissu ekki, hvaða daga
seldist bezt. Þess vegna þýðir ekki að reyna
að breyta lífsvenjum fólksins í bænum.
Onnur algeng mistök, sem þið getið komizt
hjá með því að fylgjast með viðbrögðum fólks-
ins við því, sem á boðstólum kann að vera, er
að bjóða hinar ýmsu vörur á röngum dögum, þ.
e. þá daga, sem viðskiptavinir ykkar em vanir
að nota til að kaupa aðra hluti. Þannig segir
reynslan mér, að í Bandaríkjunum er heimilis-
varningur mest keyptur snemma í vikunni og
klæðnaður seinni hluta viku. I öðrum löndum
eru eflaust aðrar venjur, og rétt er, að bjóða
fólkinu það, sem óskað er eftir á hverjum tíma.
Athugið söluskrámar, því að þar er svarið að
finna.
Sagt var, að með því að athuga árangurinn
af söluframboðinu gætuð þið sagt um, hve vel
vörur yðar seldust og hvort auglýsingastarfsemin
hafi verið ómaksins verð. Enginn kaupmaður
getur grætt á sérhverri auglýsingu, en gera þarf
ráðstafanir til að tryggja sig gegn því að vissar
120
FRJÁLS VERZLTJN