Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 18
Þóltt kartöflurækt Skagamanna hafi lengi verið þjóðfræg. er það þó fyrst og fremst fiskurinn, sem hefir orðið staðnum lyfti- stöng, og þegar skip koma í höfn er um að gera að koma afl- anum sem fljótast á land, svo að skipið geti farið sem fyrst út aftur til fanga. meðal allra upplýstra þjóða; því leggjtt menn járn- brautir, grafa skurði skipgenga, þar sem því verður við komið, með ærnum kostnaði og fyrirhöfn, til þess að vöruaflinn geti streymt með sem mestum hraða á markaðinn og þaðan aptur út um allan heim.“ Svo undarlega bregður við eftir fenginn sigur, að enginn kaupmaður sezt að á Akranesi fvrr en árið 1872. Sá fyrsti, er þar setur verzlun á stofn, er Þorsteinn Guðmundsson, og hann er og fyrsti maðurinn á Akranesi, sem eignast þilskip. Það var árið 1876, og hefst þá skútuöldin á Skaga, sú er margfræg hefir orðið af vísunni landskunnu um kútter Harald. Þegar verzlunarstaður er löggiltur á Skipaskaga, er ekkert timburhús þar, því síður steinhús, en híbýli manna cinungis torfkofar og sjálfsagt miðl- ungi rcisulegir margir hverjir. Árið 1871 er þar reist fyrsta íveruhúsið úr timbri. Það átti Hall- grímur Jónsson í Guði’únarkoti (Miðteig), einn mesti framfaramaður og rismesti persónulciki á Skipaskaga á öldinni, sem leið. 1879 var fyrir hans tilstuðlan reistur barnaskóli á Akranesi. Var hann hlaðinn úr steini og múrhúðaður. Var hús það notað til kennslu fram til 19-16, er það brann, en nýr skóli hafði verið reistur 1912. Lengi vel var skólinn gamli einnig aðalsamkomustaður og fundahús Akurnesinga. Þar voru m. a. framboðs- fundir haldnir, og þar mun sá maður, er lengst allra hefir á Alþingi setið, Pétur Ottesen, hafa flutt fyrstu framboðsræðu sína. — Ekki verður svo skilizt við byggingasögu Akraness á 19. öld, að ekki sé drepið á það, að í Görðum á Akranesi, sem að vísu tilheyrðu Innri-Akrancshreppi þá, en voru síðar lagðir undir bæjarland Akranesskaupstaðar, reis af grunni fyrsta sementssteypuhús á íslandi og að líkindum á Norðurlöndum. Það var reist af séra Jóni Benediktssyni, en hann var síðasti Akra- nespresturinn, er í Görðum sat. Var húsið reist á árunum 1876—1881, og stendur það enn og hýsir nú Byggðarsafn Akraness. Segja má, að frá 1880 hafi verið samfellt fram- faratímabil á Akranesi, þó að framfarirnar séu að vísu fremur hægar fyrst framan af. Um aldamótin síðustu eru íbúar á Akranesi (Skipaskaga) orðnir 767. Skömmu síðar eða 1906 er fyrsti vélbáturinn keyptur til Akraness, og fjölgaði þeim fljótt. Er fyrsti vélbáturinn kemur hingað, er enginn lagður vegur til á Akranesi, utan smáspotti, þar sem nú cr neðri hluti Vesturgötu. Nú munu lagðar götur á Akranesi vera 45 og samanlögð lengd þeirra 14 km. Nokkrar eru steinstcyptar. Fyrsta steinbryggja er gerð 1915 af Bjarna Olafssyni, skipstjóra. Hafn- argerð er hafin 1930, og má segja, að nú séu hafnar- málin í allgóðu lagi. í byrjun síðari heimsstyrjald- arinnar eru íbúar á Akranesi orðnir nærri 2000, og 27. júní 1941 eru gefin út lög um kaupstaðarrétt- indi handa Akranesi. Á þeim rúmum tveim ára- lugum, sem liðnir eru síðan, hefir kaupstaðurinn blómgazt og eflzt á flestum sviðum. Auk sjávar- útvegs hefir iðnaður risið á legg, og menningarmál- um verið meiri gaumur gefinn með ári hverju. 18 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.