Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1962, Page 1

Frjáls verslun - 01.08.1962, Page 1
FRJÁLSVERZLUN Útg.: Frjáls Verzlun Útgéfufélag h/f RiUtjðn: Birgir Kjaran Ritnefnd.: Birgir Kjaran, formaður Gisli Einarsson Gunnar Magnússon í ÞESSU HEFTI: JAKOB Ó. PÉTURSSON: Akureyri — 100 óra kaupstaöur ★ Framómenn í viðskiptalífi Akureyrar — viðtöl við ýmsa Akureyringa ★ Tónlistarstarfsemin á Akureyri ★ Leiklistin á Akureyri ★ Togaraútgerð á Akureyri ★ HARALDUR HANNESSON: Nonnahús ó Akureyri ★ SVEINN SÆMUNDSSON: Flugfélag Islands stofnað á Akureyri 1937 ★ EINAR KRISTJÁNSSON: Gamli maðurinn á bak við Stjóm útgáfujélags FBJÁLSRAR VERZLUNAR Birgir Kjaran, formaður Gunnar Magnússon Helgi Olafsson Sigurliði Kristjánsson Þorvarður J. Júlíusson Slcrifstofa: Vonarslræti 4, 1. hæð Sími 1-00-85 — Pósthólf 1193 Víkingsprent h.f. Prentmót h.f. FRJÁLS VERZLUN 22. ÁRGANGUR — 3.-4. HEFTI — 1962 Frelsi og framfarir Það hefir þótt tilhlýðilegt að helga þetta tölublað Frjálsrar verzlunar Akureyri og Akureyringum, því að þess var minnzt í sumar þar nyrðra, að þá voru liðin 100 ár frá því að staður- inn hlaut kaupstaðarréttindi. Brugðið er upp mynd af sögu bœjarins í aðalatriðum, en vitatúega verður að stilcla þar á stóru og sleppa mörgu, sem sjálfsagt vœri að hafa með, ef kostur vœri á að verja meira rúmi til að segja þessa sögu. En af lestri þeirra greina, sem hér birtast um Akureyri og þá, sem staðinn byggja, œtti mönnum að vera Ijósari sú þróun, sem þar hefir átt sér stað á þessari fyrstu öld kaupstaðarins. Þá er og rætt við eða getið ýmissa forvígismanna á sviði kaupsýslu og iðnaðar, svo og helztu fyrirtœkja þar nyrðra. Saga Akureyrar er hin sama og annarra bæjarfélaga hvar sem er á landinu að því leyti, að það er fyrst og fremst dugur og framtak einstaklingsins, sem er hvati allra framfara. Það eru einstaklingarnir, djarfhuga menn, sem eru hvarvetna und- irstaðan, og þegar þeir njóta frelsis til framkvæmda, þarf eng- inn að kvíða því, að þróunin verði ekki í rétta átt. Akureyri liefir lúnsvegar sérstöðu að einu leyti: Samvinnu- verzlunin varð þar fljótt mjög öflug, og þegar til komu að aulci allskonar friðindi hennar og sérréttindi umfram aðra, kæfði hún næstum framtak einstaklingsins. En enginn getur gengið af því dauðu, og þegar allir sitja við sama borð í við- skiptum eins og nú, segir dugur lúns einstaka manns til sín. Þar sem liann nýtur frelsis koma framfarirnar af sjálfu sér.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.