Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1962, Qupperneq 13

Frjáls verslun - 01.08.1962, Qupperneq 13
það ein veglegasta matvöru-, kjöt- og nýlenduvöru- verzlun bæjarins Tvær stórar byggingavöruverzl- anir eru nú reknar í nýjum húsakynnum úti á Odd- eyrinni, Byggingavöruverzlun Akureyrar (forstjóri Helgi Pálsson) og Byggingavöruverzlun Tómasar Björnssonar (forstj. Arni Árnason). Annars eru þær flestar staðsettar í hnapp í miðjum bænum, í Bót- inni, sem kallað er. Raunar eru sunrar verzlanir þó kornnar með útbú í úthverfum bæjarins. Þrjár heildverzlanir — En þetta eru allt smásöluverzlanir, sem taldar hafa verið. Hvað eru svo heildsölur margar? — Hér eru reknar þrjár heildverzlanir, sem allar flytja inn beint frá útlöndum og hafa með höndum dreifingu fvrir íslenzkar verksmiðjur. Þær eru I. Brynjólfsson & Kvaran, Tómas Steingrímsson & Co. og Heildverzlun Valgarðs Stefánssonar. Það sem mest háir þeim hér, er hve samgöngur milli Akureyrar og útlanda eru stirðar og vörur berast seint alla leið hingað. Það væri freistandi að minn- ast á iðngreinarnar og verksmiðjurnar, sem hér eru komnar á fót, dafna og geta sér gott orð, en það verða víst aðrir til að rekja það. Akureyri er rnikil samgöngumiðstöð og iðnaðarbær, og Iijálpast það að til að gera hana mikinn verzlunarbæ, enda stutt að sækja verzlun til hans frá hagsælum sveitahéruð- um í öllum áttum. Á leið til frjálsrar verzlunar — Finnst ykkur ekki hafa rofað heldur til í verzl- un á íslandi hin síðustu ár? — Verzlunarmönnum hefir lengi blöskrað það, hve þrengt hefir verið að þeim á liðnum tímum öðrum stéttunr fremur. Nú fagna þeir auknu frelsi í verzluninni og einbeita kröftum sínum til auk- innar og bættrar þjónustu við almenning. Því er ekki að neita, að þegar við, sem starfað höfum að verzlun síðustu áratugina, komum saman til að ræða málefni okkar, bcrst talið oft að þeim tímum, Jregar höftin héldu verzluninni þrælatökum. Þá voru biðraðirnar hversdagsleg sjón við búðardyr urn land allt, en svarti markaðurinn dafnaði og blómgaðist. Þá gat hver skussi, sem komst yfir vörur, verzlað, Jjví að þá seldist bókstaflega allt. Það þurfti enga reynslu til að selja á svörtum markaði. Öllum var raun að horfa upp á ranglæti og margur að því kominn að missa móðinn. En íslendingum er seigla í blóð borin og flestir verzlunarmenn þraukuðu af hin erfiðu ár. Nú hafa menn aftur öðlazt trú á framtíðina. Nú hafa kaupmenn á boðstólum á ný allskonar vörur í fjölbreyttu úrvali. Vonandi verð- ur ])ess ekki langt að bíða, að vcrzlunin verði al- veg frjáls og mönnum engin hindrun sett gegn því, að fyrirtæki séu rekin á fullkomlega eðlilegan hátt. Eg endurtek, að hjá okkur á Akureyri þurfa sam- göngur frá útlöndum að batna, það er ófært að bíða langtímum saman eftir vörunni, jafnvel cftir að hún er komin til landsins — búið að skila henni á land í Reykjavík. Við þurfum að stefna að því að fá hana beint og án tafar. Við vitum, að unnið er að þessu. Eins þarf að gera tollskrána einfaldari og réttlátari — burtséð frá öllum markaðsbanda- lögum. Verzluninni er það lífsnauðsyn, að létt sé af allri óþarfri skriffinnsku og óraunhæfu verðlagseftir- liti. Ljósasta dæmið um það, hversu fljótt kom í ljós, hvers einstaklingsframtakið var megnugt, eftir að losna fór unr höftin illræmdu, er bygging Amaro- búðarinnar hér á Akureyri. Þetta glæsilega verzl- unarhús mundi sóma sér í hvaða erlendri stórborg sem væri. Það er glæsilegur ávöxtur hins frjálsa framtaks einstaklingsins og gefur fyrirheit um, að við séum á leið til alfrjálsrar verzlunar á Islandi. Indriði Helgason Fyrsta raftækjaverzlunin — fyrir 40 árum Elektro Co. heitir elzta fyrirtæki sinnar tegundar á Akureyri, raftækjaverzlun og vinnustofa, sem Indriði Ilelgason rafvirkjameistari stofnaði í félagi við annan mann sumarið 1922, en hefir lengst rekið einn í eigin húsakynnum að Ráðhústorgi 1. Þar hitti ég Indriða í skrifstofu hans skömmu fyrir há- degi og spjallaði við liann stundarkorn. — Þú ert náttúrlega eldri í faginu en þessi verzl- un að árumP — Já, það eru nú komin ríflega fimmtíu ár síðan ég byrjaði í faginu, já, það var einmitt 1911, scm ég kom heim með Halldóri Guðmundssyni (föður Gísla verkfræðings og hugvitsmaður er hann eins og faðirinn). Ég fór með honum til Eskifjarðar, og þar fórum við að leggja rafleiðslur í liús. Þegar FR.TÁLS VERZLUN 1S

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.