Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1962, Qupperneq 17

Frjáls verslun - 01.08.1962, Qupperneq 17
Þetta er niðursuöuverksmiðja K. Jónssonar & Co. allsherjar iðnsýning á Akureyri í sambandi við 100 ára afmæli kaupstaðarins. Tvær lyftur eru í húsinu, bæði fólks- og vörulyfta. Arkitekt. innan- liúss var Konráð Árnason, og lnisgögn og innrétting öll er smíðuð úr teak og liarðplasti í trésmíða- verkstæði Ágústs Jónssonar. Sagði Stefán að lok- um, að þeir hefðu fyrst farið saman til útlanda, hann og Skarphéðinn, einkum um Þýzkaland til að skoða og kynna sér nýjustu verzlunarhús á fjöl- mörgum stöðum, áður en hafizt var handa um undirbúning Amaró-hússins. Ég spyr síðan Skarphéðin, hvernig standi á nafn- inu Amaró, og þá vill hann helzt. ekki svara því, hafa það fyrir pínulítið leyndarmál út af fyrir sig. Síðan spyr ég hann um byrjun fyrirtækisins og sögu í stórum dráttum. — Það var 1941, að við Valgarð Stefánsson stór- kaupmaður stofnuðum Klæðagerðina Amaró hf., en 1950 seldi Valgarð mér sinn hluta. í fimm ár var framleiddur aðeins kvennærfatnaður úr innfluttu prjónaefni. En í stríðslok sendi ég mann til Eng- lands til að kynna sér framleiðslu á ,,lnterlock“ (tvíprjónuðum) fatnaði. Keyptar voru prjónavélar, og síðan er eingöngu flutt inn garnið og dúkurinn prjónaður hér og sparast við það rnikill gjakleyrir. Rétt um það leyti var byggt verksmiðjuhús við Lögbergsgötu, þar sem framleiðslan hefir farið fram síðan. í maí 1947 keyptum við gamla ltyels-húsið í Hafnarstræti 101 og byrjuðum smásöluverzlun. — Hvort fellur þér betur, verzlun eða verksmiðju- rekstur? — Það er svo sem ágætt hvað með öðru, sé ekki reynt að gera manni allt til bölvunar og erfiðis. Ég hef reynt hvort tvcggja, frelsi og ófrelsi í verzlun. Það sér fljótt á, þegar haftafarganinu er létt af. Um leið og verzlunin cr gefin frjáls, rís hér sem annars staðar hvert fyrirtækið á fætur öðru. Ég bið alls ekki um sérréttindi. Það á enginn heimtingu á þeim. Ég er harðánægður, ef ég fæ sömu réttindi og aðrir. — Heldurðu áfram verzlun i gamla Ryels-húsi, þegar þessi nýja höll er öll komin í gagnið? — Já, Amaró-búðin verzlar með hvers konar vefn- aðarvöru, og nú skiptist hún í deildir — karlmanna- fataverzlun (herradeildin) verður í gamla húsinu, kvennadeild og álnavara í nýja húsinu. — Leikur ekki mörgum forvitni á að skoða í gluggana hjá þér og skima hér inn á gafl? — Það er ekki laust við það. Eins og búið er að segja þér, eru tvær lyftur hér í húsinu, sem veitir ekki af í sex hæða húsi. En það er sérkennilegt við landslagið hér á Agureyri, hve brekkurnar eru brattar. Úr brekkunni hér á bak við húsið er hægt að ganga beint inn á 6. hæð. FHJÁLS VERZLUN 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.