Frjáls verslun - 01.08.1962, Page 36
Fyrsta flug-
vél F. í.
(sem þá hét
Flugfélag
Akureyrar)
TF-ÖRN á
Akureyrar-
polli.
skipulagt. Hlutafé þess var aukið og heimili þess
flutt til Reykjavíkur. Nafni félagsins var þá breytt
í Flugfélag íslands hf.
Nokkru áður hafði verið hafizt handa um að
kaupa aðra flugvél. Iiún var af sömu gerð og hin
fyrri, kom til landsins 1940 og hlaut nafnið „Haf-
örn“. Fyrri flugvélinni, „Erninum“, hafði þá verið
breytt í landflugvél. Eftir hernám Islands vorið
1940 hafði brezka setuliðið hafizt handa um flug-
vallargerð í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Setuliðið
lagði bann við flugferðum, en eftir nokkurt þóf
fékkst leyfi til innanlandsflugferða, þó undir mjög
nákvæmu eftirliti. Sumarið 1941 hófust fyrstu reglu-
legu áætlunarflugferðir innanlands, milli Reykjavík-
ur og Akureyrar. Starfsemi félagsins var nú í örum
vexti og um áramót 1941 og 1942 var ákveðið að
félagið keypti nýja og stærri flugvél. Sú flugvél
kom til landsins vorið 1942. Það var fyrsta tveggja
hreyfla flugvél, sem íslendingar eignuðust og tók
átta farþega. Um sumarið hófust fastar áætlunar-
ferðir milli Reykjavíkur og Egilsstaða.
Snemma árs 1944 keyjiti Flugfélag íslands tvær
tveggja hreyfla De Havilland flugvélar frá Bret-
landi og um haustið eignaðist það sinn fyrsta Kata-
línaflugbát. Hann var keyptur í Bandaríkjunum
og fór íslenzk áhöfn vestur til þess að sækja hann.
Flugstjóri heim var Örn Ó. Johnson, aðstoðarflug-
maður Smári Karlsson og vélamaður Sigurður Ing-
ólfsson, en auk þeirra tveir Bandaríkjamenn. Þetta
var sögulegur viðburður, því þarna flaug íslenzk
flugvél og íslenzk áhöfn í fyrsta skipti yfir Atlants-
haf.
Nokkrum vikum eftir stríðslok í Evrópu, sum-
arið 194.5, ákvað Flugfélag íslands að gera tilraun
til millilandaflugs. Flugbáturinn, sem fyrr er get-
ið og í daglegu tali var nefndur „Pétur gamli“, var
valinn til fararinnar. Flugstjóri var Jóhannes R.
Snorrason, aðstoðarflugmaður Smári Karlsson, véla-
maður Sigurður Ingólfsson og loftskeytamaður Jó-
hann Gíslason. Auk þess voru tveir menn úr
brezka flughernum í áhöfninni. Farþegar voru fjór-
ir, sr. Robert Jaek og stórkaupmennirnir Hans Þórð-
arson, Jón Jóhannesson og Jón Einarsson.
„Pétur gamli“ lagði upp frá Skerjafirðinum í
Reykjavík að rnorgni hins 11. júlí 1945 og flaug
til Largs Bay í Skotlandi á rúmum sex klukkustund-
um. Flugvélin kom til Reykjavíkur daginn eftir og
var vel fagnað. Hinu fyrsta millilandaflugi Islend-
inga var farsællega lokið.
Síðar um sumarið fór sama flugvél tvær ferðir,
þá til Largs Bay í Skotlandi og til Kaupmanna-
hafnar, og „Pétur gamli“ var ein fyrsta farþegaflug-
36
FRJALS VKRZLUN