Frjáls verslun - 01.10.1970, Side 5
FRJÁLS VERZLUN
FRJÁLS
VERZLUN
10. tbl., 30. árg.
1970.
Mánaðarlegt tímarit um
viðskipta- og efnahags-
mál — stofnað 1939.
Gefið út i samvinnu við
samtök verzlunar- og
athafnamanna.
Otgáfu annast:
Frjálst framtak hf.
Skrifstofa að Suðurlands-
braut 12, Keykjavik.
Pósthólf 1193.
Símar: 82300, 82302.
Framkvæmdast jóri:
Jóhann Briem.
Ritstjóri:
Herbert Guðmundsson.
Setning og prentun:
Félagsprentsmiðjan hf.
Myndamót:
Rafgraf hf.
Brot og hefting:
Félagsbókbandið hf.
Áskriftarverð á mán kr. 95,00.
öll réttindi áskilin.
Endurprentun að hluta
eða öllu leyti óheimil,
nema til komi sérstakt
leyfi útgefanda.
3
Meðal annarra orða...
Öruggar
reglur um
literfðir fjdr,
en hvenœr
verður þekk-
ingin nýtt?
Þær iðnaðarvörur, sem hæst ber í viðleitni okkar til að fram-
leiða slíkar vörur til útflutnings, eiga uppruna sinn að rekja
til landbúnaðarins - að slepptum fiskafurðum og framleiðslu
stóriðjuvera. Gærur og ull fjárins eru mikilvæg hráefni.
Og gæði hráefnisins skipta auðvitað höfuðlmáli. Rann-
sóknir dr. Stefáns Aðalsteinssonar hafa leitt í ljós öruggar
reglur um litaerfðir íslenzka fjárins. En spurningin er, hve-
nær sú þekking verður nýtt almennt í gæru- og ullarfram-
leiðslunni. Um rannsóknir dr. Stefáns og niðurstöður má
lesa í greinargerð hans hér í blaðinu, á bls. 14.
„Smáþjófamir" komnir í sjónvarpið
Það er staðreynd, að mikið hefur verið hnuplað í kjörbúð-
um og öðrum verzlunum hér á landi undanfarin ár, og þess
eru dæmi, að vöruhnupl hafi numið allt að 3% af veltu
kjörbúðanna — skipt hundruðum þúsunda í búð. Nú hafa
sjónvarpskerfi og ýmis fleiri tæki verið sett „smáþjófun-
um“ til höfuðs. . . bls. 20.
Hafnarfjörður vex ört
Hafnarfjörður er kaupstaður á sjötugs-
aldri og hefur lifað tímana tvenna. Síð-
ustu árin hefur mikil gróska verið í
uppbyggingu bæjarins, og á álverið í
Straumsvík sinn þátt í því. Um 400
íbúðir eru nú í smíðum í Hafnarfirði,
og svo virðist stefna, að Hafnarfjörður
taki brátt sæti fjölmennasta kaupstað-
arins í landinu .. . bls. 26.
Tryggingafélögin eru of mörg
... segir Baldvin Einarsson,
forstjóri Almennra trygg-
inga hf., m. a. í fróðlegu við-
tali við FV, sem er á bls. 22.
Þar er bæði fjallað um Al-
mennar tryggingar hf. og
ýmis atriði tryggingamála,
sem ofarlega eru á baugi.