Frjáls verslun - 01.10.1970, Qupperneq 45
PRJALS VERZLUN
43
Erlendar fréttir
IJr öBluim álfum
S JÓN V ARPSLEIGA
VINSÆL.
í Englandi eru rekin þrjú fyr-
irtæki, sem leigja út sjónvarps-
tæki í stórum stíl, Domestic
Electric Rentals, Grenada og
Radio Renter, sem er stærst.
Fyrirtæki þessi hafa þegar
teygt sig til annarra landa.
Njóta þau alls staðar verulegra
viðskipta, og raunar skipta við-
skiptavinirnir milljónum. Það
kostar um 6—7 þúsund krónur
að hafa á leigu sjónvarpstæki í
eitt ár, svart-hvítt eða lita. En
innifalið er ókeypis eftirlit og
viðgerðir.
ERLENT FJÁRMAGN
TIL SOVÉTRÍKJANNA.
Sovétstjórnin leggur nú mjög
mikla áherzlu á að fá erlend
fyrirtæki til að fjárfesta í
vinnslu hinna gífurlegu nátt-
úruauðæva, sem er að finna í
Síberíu. Sjálf hefur Sovétstjórn-
in ekki nægilega mikið fjár-
magn til að leggja í þetta, því
að aðaláherzlan er nú lögð á
uppbyggingu landbúnaðarins,
sem alltaf virðist vera stjórn-
inni jafnþungur í skauti. Fyr-
ir skömmu var sovézk sendi-
nefnd á ferð í Bretlandi, þar
sem hún ræddi við brezka fjár-
mála- og athafnamenn. Banda-
ríska blaðið Fortune segir að
allt bendi til þess að árangur
þessara viðræðna verði til þess
að evrópskir og japanskir at-
hafnamenn og fyrirtæki muni
á næstu árum leggja hundruð
milljóna dollara í ýmis fyrir-
tæki um málmvinnslu og annað
í Síberíu. Segir blaðið að enn
geti bandarískir fjármálamenn
ekki notað sér þau miklu tæki-
færi sem þarna bjóðast, vegna
þess að bandarískum bönkum
er bannaö að lána fé til Sovét-
ríkjanna til langs tíma.
PUNDIÐ Á VÖLTUM
FÓTUM.
Brezki hagfræðingurinn De-
rek Robinson sagði nýlega í
London, að brezka stjórnin gæti
ekki komist undan því að fella
gengi pundsins ef álaginu á
efnahagskerfi landsins yrði ekki
létt af mjög fljótlega.Sagði Rob-
inson að grundvallarstaða efna-
hagskerfisins væri svo veik, að
hún þyldi ekki álagið lengur og
það yrði að minnka, ef forðast
ætti gengisfellingu á næstu 18
mánuðum. Robinson varaði sér-
staklega við afleiðingum ólög-
legra verkfalla.
Danska rafmagnsfyrirtækið Hellesens er velþekkt á íslandi
fyrir rafhlöður sínar og hafa skemmtilegar auglýsingar þess í
sjónvarpinu vakið athygli. Hellesens er citt traustasta og elzta
rafmagnsfyrirtækið í Danmörku og hjá því starfa þúsundir
manna. Það eru nú 82 ár frá því að W. Hellesens fann upp þurr-
rafhlöðuna, en fjöldaframleiðsla hófst árið 1887. Síðan hefur
fyrirtækið stöðugt vaxið og framleiðir nú um 150 milljónir raf-
hlaða af hundrað mismunandi gerðum, sem fluttar eru út um
allan heim, en um tveir-þriðju hlutar framleiðslunnar eru flutt-
ir út. Rannsóknarstofur fyrirtækisins vinna stöðugt að nýjum
uppfinningum og endurbótum á framleiðslunni.
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMIÐUR
LAUGAVEGI 39
REYKJAVÍK
Yilko
KJÚKLINGASLIPA
MEÐ
NTJÐUJM