Frjáls verslun - 01.10.1970, Side 52
5D
FRJALS VERZLUN
Frá ritstjórn
Stöðnunar-
hættan er
yfirvofandi
Verðstöðvun er gengin í gildi og er gert ráð fyrir að
ihún renni ekki út fyrr en 31. ágúst á næsta ári. Eins
og skýrt hefur verið frá, er iþetta ráðstöfun gegn víxlhækk-
uinum kaupgjalds og verðlags, sem tóku geigvænlegt skrið
i vor. Ekki er vafi á, að ráðstöfun í þessu augnamiði var
þjóðfélaginu nauðsynleg. Um liitt má vissulega deila,
hvort verðstöðvun liafi verið rélta ráðið og eins hvort verð-
stöðvunin hafi verið nægjanlega undirhúin til að ná til-
gangi sínum með sæmilegu móti.
Þróun kaupgjalds- og verðJagsmála fyrir verðstöðvun
var slík, að a tvinaiuvegirnir bera nú stórum meiri kostn-
aðarhækkanir, umfram bætur, en gera mátti ráð fyrir í
vor, að þeir stæðu undir áfallalaust. Launahækkanir á ár-
inu voru almennt orðnar um og yfir 30%, enda þótt þjóð-
artekjurnar aukist vart nema um 10% allt árið. Hið opin-
bera hafði tekið inn í þjónustutaxta stofnana sinna
megnið af tilföllnum kostnaðarhækkunum, án þess at-
vinnuvegunum væri hætt það upp í nokkru, og er at-
vinnuvegunum þannig ætlað að bera mum meira en fært
þótti að leggja á stofnanir hins opinhera, sem segir sína
sögu. Þessi þróun eftir skamman bata frá kreppuástand-
inu síðustu ár, hefur leitt til þess, að rekstraraðstaða at-
vinnuveganna er mjög veik í upphafi verðstöðvunar, svo
að nánast ekkert má út af hera. Að auki tryggir verð-
stöðvunin ekki atvinnuvegina fyrir áframhaldandi liækk-
unum kaupgjalds og annars kostnaðar, enda eru ákvæði
hennar fyrst og fremst miðuð við að tryggja kaupmáti
launa. Þenslulhættan er þvi ekki úr sögunni gagnvart at-
vinmuvegunum. Bresti á áföll, þótt í smáum stíl verði, er
ekki um annað að ræða en rifa seglin, og hvort eð er vofir
slikt yfir við ihið þvingaða ástand, sem ávallt fylgir verð-
stöðvun til þetta langs tíma.
IMerkur
áfangi
í verzlunar-
sögunni
Opnun hins mikla verzlunarhúss Silla og Valda i Álf-
Iieimum i Reykjavík er merkur áfangi í íslenzkri verzlun-
arsögu, eins og raunar þáttur Silla og Valda í smásöluverzl-
un í Iiöfuðborginni um áratugaskeið. Sá þáttur er einstæð-
ur. 1 þessu nýja verzlunarhúsi er stærsta matvöru- og ný-
lenduvöruverzlun landsins, og vöruúi'valið er gifurlegt
bókstaflega um allt að velja, hvað gæði og verð snertir. Og
á næstunni mun hver verzlunin af annarri opna í þessu
húsi og margs konar þjónusturekstur hefjast. En alls verða
fyrirtækin i húsinu um 30. Þangað má því sækja á einn
stað flest það, sem neytandinn þarfnast af vörum og þjón-
ustu, og er óhætt að fullyrða, að svo stór og alhliða mið-
stöð er með því myndarlegasla, sem gerist í verzlun og
þjónustu í heiminum.