Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1972, Side 15

Frjáls verslun - 01.02.1972, Side 15
Útlönd Efnahagsvandamálið í Bretlandi: Háar kaupkröfur meðan reksturinn berst í bökkum Verkföll hafa tröllriðið brezku atvinnulífi undanfarin ár. Það er ekki að ástæðulausu, að bæði stjórn Harold Wilson og stjórn Edward Heaths hafa reynt að setja löggjöf til að koma í veg fyrir, að verkföll smárra hópa stöðvuðu atvinnu- rekstur á stórum sviðum. Eilíf verkföll í Bretlandi hafa verið mesti bölvaldur í efnahagsmál- unum. Hvað eftir annað hafa verkföll á ýmsum sviðum at- fallið hefur rekið annað. Stjórn Verkamannaflokksins tókst að komast hjá jafn stórum áföll- um og stjórn íhaldsflokksins hefur orðið að þola. Harold Wilson varð þó að kaupa dýru verði þann frið, sem verkalýðs- félögin þó veittu honum um tíma. Hann varð að falla frá löggjöf um vinnudeilur, sem hann hafði kallað eitt mikil- vægasta verkefni samtíðarinn- ar, að sett yrði. Svona lítur blaðið Daily Express á málin: Á 19 öldinni var krafa verkamanna, að þeir losnuðu úr viðjum „grimmra kapitalista", en á 20. öldinni hafa orðið endaskipti á hlutunum, og nú eru það kapitalistar, sem krefjast þess, að þeir losni úr viðjum „grimmra verkamanna". vinnulífsins stíflað lífæðar efnahagslífsins. Hæst ber verk- fall kolanámumanna nú eftir áramótin. Menn minnast verkfalls póst- manna fyrir ári, verkfalla í bíla- og skipasmíðum og fjöl- margra annarra. Hvert verk- SKÆRUVERKFÖLLIN ÞUNGBÆRUST. Mörg þau verkföll, sem þungbærust hafa orðið brezku atvinnulífi, hafa verið skæru- verkföll og „ólögleg verkföll'*, sem ekki nutu samþykkis stjórnar brezka alþýðusam- bandsins. Það er gegn þess konar verkföllum, sem brezkar ríkisstjórnir hafa beitt sér, stjórn Wilsons og stjórn Heaths. Verkalýðsfélögin hótuðu Wil- son ,,borgarastríði“, ef hann hrynti þessum lögum fram. Stjórn Heaths hefur komizt lengra, en hún mætir fyrir vikið slíkri andstöðu verka- lýðsforingja, að margir telja, að þeir hafi meiri áhuga á að steypa stjórninni en hækka kaup umbjóðenda sinna. Verkföllin verður að líta á í ljósi þess. að brezkt atvinnu- líf stendur síður en svo í blóma um þessar mundir. At- vinnuleysingjar í landinu eru yfir ein milljón, sem er hið mesta, sem verið hefur frá tím- um kreppunnar miklu. Mörg fyrirtæki berjast í bökkum. BREZK FYRIRTÆKI OF LÍTIL. Reyndin er sú, að nútíma tækni er á því stigi ,að stærð brezkra fyrirtækja er orðin ó- hagkvæm. Þau eru flest of lít- il, og samruni er óhjákvæmi- legur. Tímaritið Economist ræðir um, að mörg fyrirtæki muni þarfnast ríkisstuðnings. Þetta á einkum við um stór iðnfyrirtæki, en framtíð Bret- lands sem iðnaðarveldis hvílir á þeirra herðum. Menn minn- ast hruns Rolls Royce, sem ríkisstjórnin varð að forða. Ýmis smærri fyrirtæki geta enn komizt af. En þau stríða við vaxandi einokunarhneigð á mörkuðunum. Framleiðslan þjappast saman um færri og færri fyrirtæki, og þá jafn- framt um færri og færri verk- smiðjur, sem þýðir fækkun verkafólks á svæðum, þar sem gömlum, óarðbærum verk- smiðjum hefur verið lokað. FV 2 1972 15

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.