Frjáls verslun - 01.02.1972, Page 24
þess erum við umboðsmenn
fyrir M.A.N. dieselvélar, en
þær eru m. a. í báðum nýj-
ustu rannsóknarskipum okk-
ar og öllum skuttogurum sem
samið hefur verið um smíði á
Spáni.
— Hvaðan flytjið þið helzt
vörurnar?
— Mest er innflutt frá Eng-
iandi og Noregi, en auk þess
eru nokkur viðskipti við Sví-
þjóð, Danmörk, V—Þýzkaland
og Bandaríkin. Meginuppistaða
lagersölu okkar er til verzlána
— eða beint til endursölu — en
þó eru t.d. skrifstofuvörur okk-
ar seldar beint til notenda.
— Ég vil taka það fram hér
að við höfum yfirleitt verið sér-
lega heppnir með viðskipta-
menn. Því að vanskil á umsömd-
um greiðslum eru óalgeng hjá
okkur, en þegar það kemur
fyrir er í flestum tilfellum
hægt að greiða úr þeim vanda
án verulegra vandkvæða.
— Og útflutningurinn, Sig-
urður?
— Hann samanstendur af
fiskimjöli og lýsi. Mjölið fer
aðallega til Svíþjóðar, Dan-
merkur, Englands og svo ým-
issa A—Evrópulanda. Sölurnar
fara fram í gegnum umboðs-
menn okkar í Danmörku og
Englandi, nema til A—Evrópu-
landa, þangað er selt beint til
'kaupanda. Lýsið fer hins vegar
mest til Hollands og V—Þýzka-
lands.
— Hvernig náið þið í útflutn-
ingsvörurnar, kaupið þið sjálf-
ir?
— Nei, við erum aðeins milli-
liður. Við erum umboðsmenn
fyrir verksmiðjur vítt og breitt
um landið. og svo auðvitað fyrir
erlenda aðila. Við leitum að
kaupendum fyrir seljendurna
og svo öfugt. Eins og öllum er
kunnugt hefur framleiðsla á
mjöii og lýsi minnkað töluvert
á undanförnum árum eða síðan
síldveiðar lögðust að mestu
leyti niður. Við megum samt
nokkuð vel við una, því að
okkar hlutur í heildarútflutn-
ingnum hefur farið vaxandi
undanfarin ár.
— Hvað eru starfsmenn fyrir-
tækisins margir?
Við erum fjórtán samtals og
erum við mjög heppnir með
starfsfólk. Við leggjum áherzlu
á að samvinnan innan fyrirtæk-
isins sé sem bezt og nánust.
Við höldum vikulega fundi með
sölumönnum okkar, gjaldkera
og bókhaldara, og þar eru gerð-
ar áætlanir um sölumál, fjár-
mál og annað sem við kemur
rekstrinum. Fundi þessa teljum
við mjög mikilvæga og eiga
þeir eflaust mikinn þátt í því
hve góð samvinna ríkir innan
fyrirtækisins.
— Hvað getið þið sagt okk-
ur um framtíðaráætlanir?
— Nú, stærsti áfanginn er
líklega nýtt húsnæði sem við er-
um að byggja í samvinnu við
19 heildsala sem hafa stofnað
hlutafélagið Heild h.f. um þessa
byggingu, sem er um 6000 m2
hús að grunnfleti á tveim hæð-
um við Kleppsveg. Ráðgert er
að skrifstofan verði á efri hæð
en vörugeymslur á þeirri neðri.
Þessi samvinna á sjálfsagt að
leiða til aukinnar hagræðingar
á mörgum sviðum, það eru t.d.
margir þjónustuliðir sem hægt
er að sameinast um. Við erum
mjög hreyknir yfir að vera þátt-
takendur í samtökum þessum,
sem sanna, að með gagnkvæmu
trausti og sameiginlegu átaki
er hægt að ná ótrúlegu marki,
en með þessari samvinnu telj-
um við brotið blað í samstarfi
heildsala, til góðs. Ekki er vitað
hvenær hægt verður að flytja
í þetta nýja húsnæði, en von-
andi getum við haldið þar upp
á 50 ára afmæli fyrirtækisins
á þessu ári.
Nýtt fiskvinnsluhiís
á Selfossi
Rekstur Straumness hf. gengur vel
Fiskiðjan Straumnes h.f. á
Selfossi hefur nýlega tekið til
starfa í nýbyggðu, eigin hús-
næði. Er það 1400 fermetra stál-
grindahús, sem reist var í haust
á Fossheiðinni austan Eyrar-
vegs. Húsi þessu er þannig
skipt niður, að fiskmóttaka og
aðgerð eru á 200 fermetrum
í vesturenda, skrifstofur og
kaffistofa, salerni, fatageymsla
og þurrkklefi taka um 300 fer-
metra pláss í austurenda, en um
900 fermetrar fara undir salt-
fiskverkun. Þessi nýju húsa-
kynni kosta um 10 milljónir
króna.
Fiskiðjan Straumnes h.f. get-
ur tekið á móti fiski af fjórum
bátum að minnsta kosti. Sem
stendur eru fastir samningar
um vinnslu af tveimur bátum,
sem leggja upp í Þorlákshöfn,
en vonir standa til að fá fisk af
fleiri bátum.
Straumnes h.f. hefur hingað
til selt fiskinn hálfverkaðan,
upp úr salti, en nú er ætlunin
að fullverka eins mikinn hluta
aflans og kostur er, og er út-
búnaður til þess fyrir hendi.
Alls afgreiddi Straumnes nú
um áramótin 160 launamiða.
Þess ber að gæta, að aðeins
einn miði er gefinn út á hvern
verktaka, hversu marga menn
sem hann hefur í vinnu. Eru
því einstaklingarnir, sem at-
vinnu hafa haft af rekstri
Straumness h.f. margfalt fleiri.
Fiskiðjan Straumnes hf. er al-
menningshlutafélag, sem stofn-
að var á Selfossi í sepember
1970 með þátttöku um 400 hlut-
hafa. í október og nóvember
sama ár hófst rækjuvinnsla á
vegum fyrirtækisins í bygging-
um Sláturfélags Suðurlands, en
í ársbyrjun 1971 var hafin mót-
taka á fiski til verkunar af
tveimur bátum. Alls var tekið
á móti 1100 tonnum á árinu,
og fór það allt í salt.
Samkvæmt upplýsingum, sem
fram koma í blaðinu Suður-
landi, mun hi’einn hagnaður af
rekstri Straumness h. f. hafa
numið einni milljón króna ár-
ið 1971.
Framkvæmdastjóri Straum-
ness h.f. er Stefán Jónsson en
stjórnarformaður Guðmundur
A. Böðvarsson, sveitarstjóri.
24
FV 2 1972