Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1972, Qupperneq 36

Frjáls verslun - 01.02.1972, Qupperneq 36
^PokalýðuM' otj jMMMÉtufólk heÍMMM' ekkcM't hÍMtfjtMð mmú fjeru** Alþingishátíðarárinu og hafði þá aðsetur á Hótel íslandi. Hann ferðaðist einn síns liðs, en þeg- ar lagt var af stað úr Reykja- vík dugði honum ekkert minna en fjörutíu og fimm hestar og fimm leiðsögumenn. Einn klár- inn var einungis klyfjaður snyrtiáhöldum Stewarts, tann- burstum og tannpasta og ein- hverjum lifandis ósköpum af Eau de Cologne. Svona fór Stewart á hringferð um landið. Hann hafði heilar tjaldbúðir með í förum þar á meðal eitt W.C.-tjald. Og svo keypti karl- inn 200 metra af sterkasta Man- illa-kaðli, til að síga niður í Dettifoss, svo að hann næði góðri mynd. Þegar Stewart og förunejdi gisti á Hvítárvöllum, lét hann karlana vera að tína gæsaskít heila nótt, til þess að hann stigi ekki ofan í hann morguninn eft- ir. Þegar Stewart var kominn í bæinn aftur og átti að fara að borga, hljóðaði reikningurinn upp á meðal húsverð. En hann skrifaði ávísanir, sem síðar kom í ijós, að ekki var innistæða fyr- ir. Endaði þetta með því, að við skrifuðum bróður hans, sem var mikilsmetinn aðalsmaður í Bret- landi og sögðum honum vand- ræði okkar út af Stewart. Við fengum bréf að vörmu spori, þar sem okkur var tilkynnt, að við skyldum engar áhyggjur hafa, því að „fjölskyldan hefði ákveðið að taka málið að sér“. Það var líka gert. Síðar rakst ég tvisvar á Stewart á förnum vegi, á Pall Mall í London og Champs Elyssée í París, og allt- af jafnkátan. — Seinni heimsstyrjöldin hlýtur að hafa sett strik í reikn- inginn fyrir ferðamálin ekki síð- ur en sú fyrri. Hvernig var störfum þínum háttað í stríð- inu? — Ég hafði um langt árabil staðið í útgerð og þegar stríðið var í algleymingi flutti ég mik- ið af fiski til Bretlands, oft um 500 tonn á viku með leiguskip- um. En fyrir tilstilli Cook tók ég að mér að sjá um póstsend- ingar héðan til íslendinga, sem staddir voru í hinum herteknu löndum Þjóðverja. Ferðaskrif- stofa Cook var í mjög náinni samvinnu við Rauða krossinn i stríðinu og annaðist meðal ann- ars slíka fyrirgreiðslu. Auk þess varð ég umboðsmaður fyr- ir flutningadeild brezka her- málaráðuneytisins og hafði af því ærinn starfa, enda voru skipalestir hér stöðugt á ferð- inni. og stundum lágu yfir 50 skip samtímis uppi í Hvalfirði á leiðinni yfir Atlantshaf. Árið 1946 verður það svo að ráði, að við flytjumst utan, Anna Tómasdóttir, kona mín, með Tómas son okkar. sem þá var fjögurra ára. Tók ég við starfi umboðsmanns fyrir Landssamband íslenzkra út- vegsmanna í Bretlandi og gegndi því til 1951. Þá kemst enn á ný skriður á ferðamálin og brezku skemmtiferðaskipin venja komur sínar aftur hingað til lands. Þetta fór hægt og sígandi af stað. Almenn ferðamennska hefur líka vaxið stórlega, aðallega síð- ustu 10 árin, því að þá fyrst hefur skapazt nægilegt hótel- rými til að hefja verulega mark- aðsleit og kynningu. — Hverjar eru horfur fyrir næsta sumar? — Við verðum með 20 skemmtiferðaskip og á þeim um 12000 manns. Sum þeirra koma beint frá Spáni og ítalíu og að er nýjung fyrir okkur. hópferðum öðrum og einstakl- ingsferðum verður mikil aukn- ing. Mér reiknast til að það verði farnar 30—40 hópferðir með 20—30 manns i hverri. Það er þegar orðið mjög erfitt að fá inni fyrir þetta fólk á gisti- húsunum úti á landi. — Það hefur borið á gagn- rýni á, að skemmtiferðaskipin hafa svo stutta viðdvöl á íslandi og meðan á henni stendur séu farþegarnir keyrðir austur í sveitir í stað þess að þeim sé leyft að fara í búðir í Reykja- vík? Er ekki hægt að breyta þessu fyrirkomulagi? — Við getum ekki neytt fólk- ið til að fara í búðir að verzla. Ég hef hvergi kynnzt þess kon- Tómas Zoega ílettir kynningarriti um Islandsferðir, sem Ferða- skrifstofa Zoega gefur út. 32 FV 2 1972
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.