Frjáls verslun - 01.08.1974, Qupperneq 20
Alifuglahúiö
FJÖREGG
Selur
Lifandi hænuunga
á mismUnandi aldri
Kjötkjúklinga
Grillk)úklinga
Alihænsn
Hótelkjúklinga
Kjúklingabringur
Kjúklingalæri
Egg
flfh ALIFUGLABÚIÐ
VVV FJÖREGG
þjóðirnar veita aðstoð sína.
Fyrsta námskeiðið var haldið
árið 1972 og stóð í sex mán-
uði. Umsóknir voru margar
en 17 einstaklingar frá 12
þjóðum voru valdir á fyrsta
námskeiðið. Þátttakendur
komu frá mjög ólíkum lönd-
um, eins og t. d. Suður- Kóreu
og Perú, en allir voru með
háskólapróf og langflestir
höfðu einhverja reynslu í út-
gerðarmálum.
KYNNAST ÚTGERÐAR-
FYRIRTÆKJUNUM.
Kennslubækurnar voru
strax þýddar á ensku og kenn-
arar voru valdir úr röðum
beztu starfsmanna útgerðar-
innar. Fyrir utan fyrirlestra og
umræðuhópa, voru útlending-
arnir sendir í ferðir til útgerð-
arfyrirtækja og loks var hver
og einn látinn vinna í tvær
vikur hjá útgerðarfyrirtæki.
Árangur fyrsta námskeiðsins
var svo góður, að ákveðið var
að halda kennslunni áfram.
Á seinna námskeiðinu fyrir
útlendinga voru 18 menn frá
13 löndum og í hópnum var
hafður einn norskur þátttak-
andi. Námskeiðið var með
sama sniði og hið fyrsta, nema
í lok þess fengu menn tilsögn
í ákveðnum greinum útgerðar-
innar, sem nemendurnir
höfðu sérstaklega mikinn á-
huga á. Þar að auki urðu
þeir að skrifa prófritgerð og
Ijúka brottfararprófi.
í ár verða þátttakendur 20,
en þeir eru frá Suður-Kóreu,
Bangladesh, Pakistan, Indó-
nesíu, Thailandi, Malasíu,
Tanzaníu, Ghana, Egyptalandi,
Kenýa, Tyrklandi, Perú, Mex-
íkó og Kúbu. Skólinn er að
undirbúa ný námskeið fyrir
fólk frá þróunarríkjunum, en
þau eru öll stutt og fjalla um
ákveðin efni, eins og t. d. 3ja
vikna námskeið um hafnar-
stjórn, eða 4ra vikna nám-
skeið fyrir skipamiðlara. Bæði
námskeiðin eru að þessu sinni
sniðin fyrir Tanzaníumenn, en
búist er við fleiri slíkum nám-
skeiðum.
Það er nokkuð athyglisvert,
að skólinn í Osló, er lítill, en
engu að síður mjög góður.
Starfsliðið er 5 menn og 3 aðr
stoðarmenn, en flestir kennar-
ar eru starfsmenn útgerðarfé-
laga, eða skyldra félaga og eru
fengnir að láni til þess að
kenna á námskeiðunum.
20
FV 8 1974