Frjáls verslun - 01.08.1974, Blaðsíða 87
rækt hjá Heild hf. Húsinu er
skipt í 36 bil og Johan Rönn-
ing hefur 4 bil (1000 ferm.
gólfflötur), en ekkert annað
fyrirtæki hefur meira en tvö.
Heildverzlunin flytur inn
rafbúnað fyrir iðnað og skip,
en aðallega rafbúnað í dreifi-
kerfi rafveitna, s. s. dreifistöð,
spenni, háspennurofa og jarð-
strengi, allt frá hinu heims-
þekkta fyrirtæki ASEA í Sví-
þjóð.
Jafnframt því að vera heild-
sala, er fyrirtækið ráðigjafa-
fyrirtæki fyrir viðskiptavini,
og hefur til þess sérmenntaða
menn.
Alls starfa 13 manns á veg-
um fyrirtækisins, þar á meðal
raftæknifræðingar og rafvirkj-
ar.
Framkvæmdastjóri hjá Jo-
han Rönning er Jón Magnús-
son.
JÓHANN ÓLAFSSON & CO.
HF.
Jóhann Ólafsson stofnaði
fyrirtækið árið 1916, og nú
stjórnar sonur hans, Jóhann
J. Ólafsson heildsölunni.
Upphaflega verzlaði fyrir-
tækið með skotfæri, vaðstíg-
vél, smurningsolíur og vara-
hluti í bifreiðar, og seinna
með búsáhöld og leirvörur,
en nú með rafmagnsvörur
(m. a. í bíla), perur, raftæki,
Jóhann Ólafsson, framkv.stj.
gler- og stálvörur fyrir heim-
ili, hannyrðavörur, skot-
færi, lása og skrár.
10 starfsmenn vinna hjá
fyrirtækinu, þar af 2 sölu-
menn.
K. ÞORSTEINSSON & CO.
K. Þorsteinsson og Co., verzl
ar með alls konar handverk-
færi og byggingarvörur. Af
vörum, sem fyrirtækið flytur
inn má nefna Stanley, Meta-
bo, Veslock, Kongsberg og
Geilo.
Starfsmannafjöldi hjá K.
Þorsteinsson er 3.
Ólafur Jónsson hjá
K. Þorsteinsson.
KLEMENZ GUÐMUNDSSON.
Fyrirtækið er með umboðs-
sölu fyrir innlendar heildsöl-
ur og framleiðslufyrirtæki, og
sér um kynningu og dreif-
Klemens Guðmundsson.
ingu varanna um landið.
Klemenz Guðmundsson hef-
ur umboð fyrir 14 aðila og
vörur, sem hann verzlar með
eru gull„ silfurvörur, fatnað-
ur, snyrtivörur, úr, klukkur,
búsáhöld, glervörur, skinna-
vörur og vefnaðarvörur.
MARÍNÓ PÉTURSSON.
Fyrirtækið var stofnað árið
1956, og var upphaflega til
húsa að Grettisgötu 2, og síðan
Hafnarstræti 8, þar til það
fluttist í bækistöðvar Heildar
hf., og hefur þar 400 fermetra
til umráða.
Stærsti þátturinn í innflutn-
ingi fyrirtækisins er Dunopal
harðplast og blöndunartæki
frá Noregi. Þá flytur það inn
járnvörur, handverkfæri, rör
pípur, spónaplötur og ýmsar
vörur fyrir húsgagna- og bygg-
ingariðnað.
Marínó Pétursson skiptir að-
allega við verzlanir og fyrir-
FV 8 1974
87