Frjáls verslun - 01.08.1974, Blaðsíða 41
ariðnaðiinum sem slíkum og
gætu reist þetta hús á hag-
kvæman og ódýran hátt. Hafa
þeir látið vinna ýmsa fram-
kvæmdaþætti á þeim árstím-
um, þegar minnst hefur verið
að gera, eins og t. d. jarðvegs-
skipti. Þá hafa forsteyptar ein-
ingar í húsið verið gerðar
innanhúss á veturna, súlur og
bitar í loft. Sagði Tryggvi, að
lagt hefði verið út í fram-
kvæmdir þessar af miklum
kjarki og áræði. Hefði þurft
látlausa þrautseigju til að út-
vega fjármagn til byggingar-
innar. Úr verzlunarlánasjóði
hefur fengizt lán, sem þó er
undir 10% af kostnaðarverði.
Von hafa þeir félagar um lán
úr Lífeyrissjóði verzlunar-
manna, sem myndi hugsanlega
nema um 10% af kostnaði.
Önnur fyrirgreiðsla er ekki
fyrir hendi nema það, sem
tekst að kría út með ærinni
fyrirhöfn og löngum viðtölum
við bankastjóra nyrðra og fyr-
ir sunnan.
KEA VERÐUR AÐ ÞOLA
SAMKEPPNI.
Bjarni Bjarnason hefur í 7
ár átt og rekið verzlunina
Brekku við Byggðaveg. Nú
hefur hann selt þá verzlun og
helgað sig byggingu nýju kjör-
búðarinnar. Hann sagði, að
Kaupfélag Eyfirðinga hefði
um 90% af allri matvöruverzl-
un á Akureyri og kaupmönn-
um, sem viði það kepptu, fækk-
aði stöðugt. Kaupmannaverzl-
unin er háð kaupfélaginu
hvað mjólkursölu snertir en
Bjarni sagðist ekki búast við,
að neinir erfiðleikar yrðu á að
fá mjólkurvörur í búðina. Eins
framleiðir kaupfélagið ýmsar
kjötvörur, en fengjust þær
ekki, mætti verzla við Slátur-
félag Suðurlands.
Bjarni sagði, aði þeir félag-
ar vildu fyrst og fremst sanna,
að einkaframtakið ætti rétt á
sér sem slíkt og að heilbrigð
samkeppni gæti orðið mjög já-
kvæð fyrir kaupfélagið. Væri
athyglisvert, hve margir Ak-
ureyringar heTðu tjáð sig um
nauðsyn þessa máls og biðu
opnunar búðarinnar með
eftirvæntingu.
„Við óttumst ekki sam-
keppni viði kaupfélagið á jafn-
réttisgrundvelli. Við höldum
því ekki fram, að KEA sé ó-
nauðsynlegur aðili en það
verður að þola samkeppni“,
sagði Bjarni Bjarnason að lok-
um.
Höfum ávallt
ti§ reiðu allar
stærðir hóp-
ferðabíla og
leiguhifreiðir
Bifreiðastöð
Aðalsteins Guðmundssonar
Húsavík sími 41260
FV 8 1974
41